Fréttablaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 22
Ég hef oft lagst í rúmið vegna heimþrár og þjáist iðulega af miklum söknuði. Maður fer á mis við margt við að flytja langt í burtu frá sínum nánustu og ég vildi sannarlega geta skipt mér í tvennt,“ segir Ruth sem er stödd heima í jólafríi eftir sjö ára fjarveru frá fósturjörðinni. „Ó, það er yndislegt að koma heim. Úr skógareldunum í snjóinn. Að labba Laugaveginn á Þorláks- messu var draumi líkast og að vakna á aðfangadag í nýfallinni mjöll. Dóttir mín, sem ekki hafði séð snjó síðan á öðru árinu, tók andköf af gleði og vildi miklu frekar fara út að leika sér en að halda jól,“ segir Ruth og hlær. „Mér hefur alltaf reynst erfitt að vera fjarri heimahögunum um jól. Ég er fædd og uppalin á Íslandi og venst því aldrei að sjá pálmatré um allt, þótt ekki vanti jólaskrautið í henni Ameríku. Því andaði ég léttar, að komast heim í frost og snjó, og helst vildi ég geta keyrt hringinn í vetrardýrðinni.“ Börn eru börnum verst Ruth var sjö ára þegar hún fór á 17. júní-skemmtun í heimabænum Keflavík. „Þar voru Maggi Kjartans og Júdas að spila niðri í bæ og við vin- konurnar vildum fá að syngja lag. Þegar til kastanna kom þorðu þær ekki á sviðið svo ég endaði þar með Gvendi Þribba sem var þekktur Keflvíkingur sem gekk um með kaskeiti og munnhörpu og var kall- aður Þribbi því hann var þríburi. Um svipað leyti var leitað logandi ljósi að barni til að leika í Róberti bangsa og mér var umsvifalaust kippt þar inn og þannig byrjaði ballið,“ rifjar Ruth upp hvernig það kom til að hún varð skær barna- stjarna á áttunda áratugnum. „Ég held að flestir viti að það er ekki auðvelt að verða frægur mjög ungur, en það er líka gaman. Í dag getur hver sem er orðið stjarna á samfélagsmiðlum og mörg börn freista þess að komast í sviðsljósið. Að verða barnastjarna krefst hins vegar góðs stuðnings fjölskyldunn- ar því ellegar getur maður týnst í öllum hasarnum,“ segir Ruth sem var feimin út á við sem frægt barn og leið best innilokaðri í hljóðveri með heyrnartólin á sér. „Börn eru börnum verst þegar kemur að stríðni og ekki allir sem þola einelti. Mér var vissulega strítt en á sama tíma sóttust margir eftir því að verða vinir mínir. Margir sem voru mér samferða í barna- skóla hafa á fullorðinsárum beðist fyrirgefningar á framkomu sinni og áttað sig á því að þeim leið senni- lega verr en mér, því börn skilja ekki fyrr en eftir á hvað þetta var rosalegt. Tónlistin hefur hins vegar alltaf verið mín tjáningaraðferð og trúin hefur hjálpað mér á þeirri vegferð.“ Hlustar ekki á kjaftasögur Ruth var óvænt skotin ástarörvum Amors þegar hún heimsótti systur sína, Steinunni Hildi Trusdale, í Kaliforníu árið 2005. „Þá bjó núverandi eiginmaður minn, Joseph, ofar í götunni og gafst ekki upp við að reyna að kynnast mér. Atburðarásin varð öll mjög óvænt en við höfum verið límd saman síðan,“ segir Ruth en saman eiga þau Joseph dótturina Kieu sem fæddist þeim 2007. Systir Ruthar býr enn vestra. Hún er fyrsta íslenska konan til að gegna herþjónustu fyrir Banda- ríkjaher og tók þátt í Íraksstríðinu þar sem hún varð fyrir sprengju. „Steinunn fór tvær ferðir sem hermaður til Íraks og fékk Purpurahjartað (e. Purple Heart medal) fyrir fórn sína í stríðinu. Hún missti heyrn og meiddist í baki ásamt því að þjást af áfalla- streituröskun eftir sprenginguna. Bandaríkjaher er með sjóð fyrir slasaða hermenn og fær Steinunn lífeyri frá hernum samkvæmt því,“ útskýrir Ruth. Móðir Ruthar, listakonan Ríkey Ingimundardóttir, bjó um tíma vestra og gætti barna Steinunnar. „Mamma er flutt aftur heim til Íslands og hefur það gott, enda vill hún hvergi annars staðar vera,“ segir Ruth, sæl að vera heima. „Ég gæti vel hugsað mér að flytja heim á ný. Áður tók ég kjaftasögur nærri mér en ég nenni því ekki lengur. Það stoppar mig í að flytja heim að maðurinn minn þolir illa veðurfarið. Hann keppti áður í glímu, brotnaði illa og þurfti gervi- lið í mjöðm sem veldur honum vanlíðan í kulda. Hann er líka alls staðar stoppaður á flugvöllum og lendir í málmleit vegna liðarins,“ segir Ruth og kímir. „Annars elskar Joseph Ísland og einkum íslensk jól og áramót því á gamlárskvöld má ekkert sprengja í Ameríku. Í staðinn fer maður á flugeldasýningar sem eru hálfgert prump miðað við hér heima. Ég get ekki beðið eftir að sjá Kieu upplifa íslenskt gamlárskvöld og vonast til að hún sjái norðurljósin líka.“ Má ekkert aumt sjá Eftir sjö ára útivist finnur Ruth stóran mun á íslensku þjóðfélagi. „Mér finnst margt hafa breyst og ég sem þóttist nú rata upp í Breiðholt endaði í Smáralind! Mér blöskrar líka dýrtíðin og verðmunur á nauðsynjavörum er svakalegur. Það var reyndar ódýrt að fljúga heim með WOW en mikið rosalega er dýrt að kaupa sér sjampó hér heima og smá ost- biti kostar 2.000 kall! Það skýtur skökku við að geta flogið heim frá Ameríku en ekki með góðu móti þvegið sér um hárið!“ segir Ruth og skellir upp úr. Ruth býr með fjölskyldu sinni í bænum Vista í Kaliforníu, mitt á milli Los Angeles og San Diego. „Vista er paradís. Þar er frábært loftslag og mikil gróðursæld, sem er líka hættuleg vegna skógarelda. Við búum skammt frá Carlsbad- ströndinni og Oceanside og líf mitt er ósköp venjulegt. Ég er nú heimavinnandi húsmóðir því ég slasaðist á hendi en lengst af hef ég unnið við umönnun aldraðra og þar er ég í essinu mínu,“ segir Ruth sem tekur brátt aftur til starfa með öldruðum en Joseph starfar sem umsjónarmaður í Carlsbad by the Sea og sér um innanhússsmíðar. „Ég hugsaði lengi um Tommy, gamlan mann með elliglöp, sem nú er látinn. Ég má ekkert aumt sjá og finnst hræðilegt þegar farið er illa með eldri borgara. Tommy var yndislegur og hélt að ég væri konan sín. Alltaf þegar ég sagði: „Jæja, Tommy minn. Það er kominn háttatími,“ svaraði hann: „Já, elskan mín. Ertu að koma upp í?“,“ segir Ruth og hlær dátt að hlý- legri minningunni. Hún segir engan stað öruggan í Ameríku. „Börn fara aldrei út að leika sér ein síns liðs og það er mikið um barnsrán vestra. Ég tek því enga sénsa og mundi ekki lifa það af ef eitthvað slæmt kæmi fyrir dóttur mína. Hún er því í menningar- sjokki að vera komin til Íslands og mega fara ein út að leika sér í snjónum. Þvílík forréttindi!“ segir Ruth um sitt fagra föðurland. „Maður skilur það ekki fyrr en maður er fluttur annað hvað Ísland er dásamlegt. Ég sakna Íslands alveg hryllilega og þess að geta drukkið vatn úr krananum sem maður tók sem sjálfsögðum hlut en er ekki möguleiki úti. Dóttir mín hélt að ég væri að eitra fyrir sér þegar ég sagði að hún mætti drekka kranavatnið þegar hún tannburstaði sig!“ Stolt af Glódísi Töru Ruth á fjórar dætur, eina fóstur- dóttur og fjögur barnabörn. Glódís Tara, dóttir Ruthar, er ein þeirra sem kærðu lögmanninn Robert Downey fyrir kynferðisbrot. „Ég get ekki einu sinni byrjað að tala um það án þess að reiðin ólgi innan í mér,“ segir Ruth. „Ég er ofboðslega stolt af Glódísi og hinum stelpunum að hafa staðið upp og sagt frá. Því ef konur sitja heima og þegja komast níðingarnir upp með glæpinn. Sem betur fer bítur sök sekan og Robert Downey ætti ekki að ganga laus.“ Ruth er kristin og sækir kirkju baptista í Vista. „Ég hef trúað á Guð síðan ég var lítið barn og á mitt sterka, persónulega samband við Guð. Bandaríkjamenn eru lif- andi í trú sinni og kirkjan eins og fjölskylda manns. Ég finn mikinn styrk í trúnni, ekki síst þegar ég bý svo langt frá öllum sem ég elska.“ Ekki farið í andlitslyftingu Ruth vekur eftirtekt fyrir glæsileik, ljósan makka og flott líkamsform. „Ég hef ekki farið í andlits- lyftingu,“ segir Ruth og hlær, „en ég geng alltaf fimm mílur á stigvél á morgnana. Ég spái lítið í mataræð- ið en er svona títla að eðlisfari. Úti er allt afslappaðra og ég fer í nátt- fötunum í 7-11 að ná mér í kaffi á morgnana. Þetta er öðruvísi en hér heima þar sem allir hafa sig til því þeir eiga von á að rekast á einhvern sem þeir þekkja.“ Í bíl frá Leifsstöð heyrði Ruth gamalkunna rödd æsku sinnar syngja „Jólasveinninn kemur í kvöld“ og svo beint á eftir jólalagið „Þú komst með jólin til mín“. „Mér hlýnaði um hjartarætur. Það er sætt að fólk nenni enn að hlusta á gömlu jólalögin mín og þá veit ég að ég hef skilið eitthvað eftir mig,“ segir Ruth brosmild. „Ég verð alltaf Íslendingur í húð og hár; alin upp í snjó. Ég bið fyrir hjartans kveðju til allra sem ég þekki og lofa að koma fljótt aftur til að hitta þá vini mína sem ég næ ekki að hitta á þessum stutta tíma yfir hátíðarnar. Ég sendi líka lands- mönnum öllum heillaóskir um gæfu og gleði á nýja árinu.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Ruth með Joseph Moore, dætrunum Kieu Jamaya R. Moore og Glódísi Töru Fannarsdóttur, og Andra Pétri Alexsyni, öðrum sona Glódísar. MYND/ANTON BRINK Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Framhald af forsíðu ➛ Nánari upplýsingar í síma 1817 eða á 365.is HEILL HEIMUR ÁN MYNDLYKILS Þú þarft ekki myndlykil til þess að horfa á fjölbreytta dagskrá allra sjónvarps- stöðva 365, tímaflakkið, Frelsið og Stöð 2 Maraþon Now. Nánari upplýsingar í síma 1817 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . D E S E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 2 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 D -B 7 9 4 1 E 9 D -B 6 5 8 1 E 9 D -B 5 1 C 1 E 9 D -B 3 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.