Fréttablaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 32
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ester Gísladóttir
Aflagranda 40 (áður Granaskjóli 42),
lést föstudaginn 22. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Gísli Valtýsson
Guðmundur H. Valtýsson Jónína Jóhannsdóttir
Hörður Már Valtýsson Helga Hrönn Hilmarsdóttir
Edda Valtýsdóttir Kjartan Tumi Biering
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
Jóns A. Hassing
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Hrafnistu í Kópavogi fyrir góða og
hlýlega umönnun.
Valgerður B. Hassing
Guðbjörg Hassing Olgeir Karlsson
Kristín Anna Hassing
Linda Björk Hassing Ann-Sofie Axelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Úlfhildur Hermannsdóttir
Hömrum, Mosfellsbæ,
lést þann 26. desember. Úförin fer
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Alzheimersamtökin.
Þóranna Halldórsdóttir Magnús H. Sólmundsson
Lárus Halldórsson Anna Þóra Stefánsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Kristín
Þorláksdóttir
lést miðvikudaginn 27. desember.
Útför hennar fer fram frá Lindakirkju
föstudaginn 5. janúar kl. 15.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð
dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar.
Gylfi Guðbjörn Guðjónsson Þorbjörg Magnúsdóttir
Guðjón Guðjónsson Guðrún Soffía Pétursdóttir
Hjálmfríður Guðjónsdóttir Sævar Berg Ólafsson
Bryndís Björk Guðjónsdóttir Gunnar Þór Gunnarsson
Anna Dröfn Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Gísli Sævarr Guðmundsson
frá Gröf í Þorskafirði,
Hæðargarði 35, Reykjavík,
lést þann 18. desember. Útförin fer
fram frá Lindakirkju miðvikudaginn
3. janúar klukkan 15.
Anna Steinbjörnsdóttir
Guðrún Alda Gísladóttir Uggi Ævarsson
og börn.
Ástkær mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Hafdís J. Bridde
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 27. desember.
Útförin auglýst síðar.
Andrés Þór Bridde Anna María Hannesdóttir
Hermann Bridde Elín Eiríksdóttir
Alexander Bridde Ingibjörg Sigurðardóttir
Þórdís Klara Bridde Bjarni Júlíusson
Guðni Bridde Hrefna Björk Arnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, langalangamma,
systir og mágkona,
Þórunn Ólafía Kristbjörg
Sigurðardóttir
(Þóra Sigurðardóttir)
lést á Hrafnistu í Reykjavík þann
27. desember sl.
Sigríður Pétursdóttir Jónas Már Ragnarsson
Þorgerður R. Pétursdóttir Öyvind Glömmi
Gísli Pétursson
Bjarni Júlíus Einarsson
Rúna Pétursdóttir Egill Lárusson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Guðrún Sigurðardóttir Bragi Guðnason
Við þökkum samúð og hlýhug
við fráfall og útför
Jóns Hjaltasonar
hæstaréttarlögmanns,
Vestmannaeyjum.
Steinunn Sigurðardóttir,
Þorleifur Jónsson Halldóra Andrésdóttir,
Ómar Arnarson
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir Hermann Einarsson
Anna Lilja Jónsdóttir Brynjólfur Garðarsson
Þorbergur Hjalti Jónsson Helga Skúladóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Guðný Rósa Georgsdóttir
andaðist mánudaginn 4. desember
síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu
Grenilundi á Grenivík. Útförin fór fram í
kyrrþey þann 22. desember síðastliðinn
frá Höfðakapellu á Akureyri.
Aðalheiður Guðmundsdóttir Friðbjörn B. Möller
Alexandra Ösp Möller
Birgir Arnór Birgisson Sigurdís Björg Jónasdóttir
Evíta Alice Möller Andrés Helgi Björnsson
Björn Guðmundsson
Birna Ósk Björnsdóttir Tony Vokey
Linda Björg Björnsdóttir Ísak Óli Sigurjónsson
2006 Styrkjamálið: FL Group styrkir Sjálfstæðisflokkinn
um 30 milljónir tveimur dögum áður en ný lög um styrki til
stjórnmálaflokka ganga í gildi.
2006 Íslenska kvikmyndin Köld slóð er frumsýnd.
2011 Eyríkin Samóa og Tókelá færa sig vestur yfir dag-
línuna og sleppa úr einum degi (30. desember), til að
flytjast yfir á tímabelti sem hentar viðskiptahagsmunum
eyjaskeggja betur.
Merkisatburðir
Þetta er nýstofnuð kammersveit, við köllum okkur Elju. Við erum öll af sömu kynslóð, erum annaðhvort í námi erlendis eða
höfum nýlokið námi. Okkur fannst vera
tími til kominn að okkar kynslóð léti í
sér heyra. Við höfum verið með þetta í
bígerð í svona tvö ár, en erum nú loksins
að fara að halda okkar fyrstu tónleika,“
segir Björg Brjánsdóttir, meðlimur
hinnar glænýju sveitar Elju sem mun
kveðja sér hljóðs í fyrsta sinn í kvöld.
Bjarni Frímann Bjarnason er stjórnandi
sveitarinnar og einn stofnenda en hann
var nýlega ráðinn hljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir
fara fram í gömlu kartöflugeymslunum í
Ártúnsbrekku en rýmið er verið að gera
upp og því verður breytt í hönnunar- og
listamiðstöð sem verður opnuð í vor.
„Það er svolítið skemmtilegt að vera
glæný hljómsveit í glænýju rými. Og
þetta er auk þess mjög falleg staðsetning
þannig að við erum spennt fyrir þessu.“
Hvað verður spilað í kvöld? „Við
ætlum að vera með ansi breitt pró-
gramm – allt frá Haydn, klassískri sin-
fóníu yfir í kvikmyndatónlist eftir Mica
Levi og við verðum líka með eistneskan
kvartett eftir Helenu Tulve, sem er sam-
tímatónskáld, og svo verður mjög hress
konsert fyrir kammersveit eftir Stra-
vinskí sem er nefndur eftir Dumbarton
Oaks.“
Hvað er svo næst á döfinni hjá ykkur?
„Við stefnum á að vera með nokkur
verkefni á hverju ári. Næstu tónleikar
eru strax 7. janúar – þá komum við
fram sem hluti af tónleikaröðinni Vel-
komin heim í Hörpu. Þá verðum við með
aðeins minni kammerverk. Við spilum
Brandenborgarkonsert númer fimm
eftir Bach, en hann var mikil inspírasjón
fyrir Strav inskí í konsertinum sem við
spilum á morgun, þannig að það er smá
svona tenging á milli verkefna þar. Síðan
verðum við með strengjakvartett eftir
Báru Gísladóttur, sem er einmitt með-
limur í Elju, bassaleikari og tónskáld.“
Tónleikarnir hefjast klukkan átta í
gömlu kartöflugeymslunum.
stefanthor@frettabladid.is
Kynslóð lætur í sér heyra
Hin nýstofnaða kammersveit Elja spilar á sínum fyrstu tónleikum í kvöld. Meðlimir
sveitarinnar eiga það sameiginlegt að vera af sömu kynslóð tónlistarfólks.
Elja við æfingar í nýuppgerðum kartöflugeymslunum.
Okkur fannst vera tími
til kominn að okkar
kynslóð léti í sér heyra.
2 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s T U d A G U r24 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
2
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
D
-C
B
5
4
1
E
9
D
-C
A
1
8
1
E
9
D
-C
8
D
C
1
E
9
D
-C
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K