Morgunblaðið - 04.07.2017, Side 20

Morgunblaðið - 04.07.2017, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017 ✝ Kristín Björns-dóttir fæddist 1. júní 1942 í Vest- mannaeyjum. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Mána- teigi, Hrafnistu, 21. júní 2017. Faðir hennar var Björn Guð- mundsson, kaup- maður og útvegs- maður í Vest- mannaeyjum, fæddur 24. júní 1916, dáinn 24. júní 1992. For- eldrar Björns voru Guðmundur Eyjólfsson sjómaður og Áslaug Eyjólfsdóttir. Móðir hennar var Sigurjóna Ólafsdóttir, fædd 21. apríl 1917, dáin 24. nóvember 1981. Foreldrar Sigurjónu voru Ólafur Ingileifsson útgerðar- maður í Vestmannaeyjum og Sigurjóna Sigurjónsdóttir. Systkini Kristínar eru; Áslaug, fædd 8. febrúar 1947, og Guð- fædd 2007. 2) Sigurður, fæddur 14. júní 1969. Maki hans er Hildur Hafstein, fædd 29. októ- ber 1971. Synir þeirra eru Birnir, fæddur 1996, Dagur, fæddur 1998, Ólafur, fæddur 2003, og Tindur, fæddur 2007. 3) Ólafur, fæddur 21. nóv- ember 1980, dáinn 23. nóv- ember 1980. Eftir hefðbundið grunn- skólanám starfaði Kristín um skeið sem flugfreyja hjá Loft- leiðum. Þegar synirnir voru komnir á legg, hóf Kristín nám á heilsugæslubraut Ármúla- skóla í Reykjavík og lauk því í maí 1978. Þá lauk hún námi frá Ljósmæðraskóla Íslands í september 1980 og námi frá Nýja hjúkrunarskólanum í Reykjavík í maí 1986. Kristín starfaði sem ljósmóðir á kvennadeild Landsspítalans, hjúkrunarfræðingur á Landa- koti og síðar ljósmóðir á Heilsuverndarstöð Reykjavík- ur, við mæðraeftirlit. Kristín átti við þungbær veikindi að stríða um árabil. Útför Kristínar verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag 4. júlí 2017, klukkan 15. mundur, fæddur 21. júlí 1953. Kristín giftist 16. október 1965 Ólafi G. Sigurðs- syni endurskoð- anda sem fæddur er 30. september 1942. Faðir hans var Sigurður Ólafsson kennari á Ísafirði og síðar skólastjóri og hreppstjóri í Sandgerði, fædd- ur 6. september 1918, dáinn 13. mars 1985. Móðir hans var Guðrún Jörgensdóttir Hansen, húsfreyja á Ísafirði og kennari í Sandgerði, fædd 27. maí 1921, dáin 28. ágúst 2001. Börn Kristínar og Ólafs eru; 1) Björn, fæddur 24. nóvember 1966. Maki hans er Helga Thors, fædd 17. maí 1971. Þeirra dætur eru Kristín Kolka, fædd 2002, og Birna, Ég var einstaklega heppin með tengdamóður. Kristín var traust og úrræðagóð, tilfinninga- rík og hjartahlý en á sama tíma gat hún verið beinskeytt þegar svo lá á henni. Svo var hún afar uppátækjasöm. Við áttum margt sameiginlegt og um margt vorum við ólíkar. Milli okkar ríkti kær- leikur og skilningur, við vorum stoltar hvor af annarri. Kristín kenndi mér margt. Hún var með eindæmum hagsýn; hristi veislur fram úr erminni, föndraði gjafir, prjónaði, sultaði og nýtti hvern efnisbút sem hún fann til að sauma svuntur. Hún elskaði að dekra við okkur öll, en mest elskaði hún hann Óla sinn, sem hún kallaði stundum Tarzan í gríni. Hún dýrkaði syni sína tvo og dáði barnabörnin sín sex. Sú ást var svo sannarlega gagn- kvæm. Þessi fjölskylda er ein- staklega kærleiksrík. Það ríkir með þeim einlægni og jarðteng- ing, hógværð og styrkur sem dregur að sér gott fólk og sterka og djúpa vináttu. Kristín var stórglæsileg kona og smekkleg. Hún var glettin og lífsglöð, hrókur alls fagnaðar og leið vel í margmenni þar sem hún sagði gjarnan gamansögur. Hún tók sjálfri sér ekkert of alvarlega og gerði reglulega góðlátlegt grín að sjálfri sér. Svo hló hún manna hæst svo gleðitárin streymdu. Hún grét oft og mikið úr hlátri, hún Kristín. En tárin streymdu líka undir lokin. Já, saman grétum við ör- lögin. Þetta var ekki sá endir sem hún sá fyrir sér og hún átti erfitt með að sætta sig við það. Við sem þekktum Kristínu eigum öll erfitt með að sætta okkur við það. Það er þó gott til þess að hugsa að nú sé hún komin á betri stað. Hvíl í friði, mín kæra Kristín. Þín Helga Thors. Sumt fólk setur svo sterkan svip á umhverfi sitt með breytni sinni, framkomu og fasi að eftir er tekið. Þannig var Kristín syst- ir mín sem lést 21. júní eftir langa baráttu við illvígan Park- insonsjúkdóm. Þá baráttu háði Kristín af einstöku æðruleysi og jafnaðargeði. Við hlið hennar í þeirri baráttu stóð sem klettur í brimróti eiginmaður hennar Ólafur Gunnar, sem studdi hana með ráðum og dáð og af einstakri ást og umhyggju. Seinustu árin bjó Kristín á Hrafnistu og eftirtektarvert var hversu starfsfólki þar var vel til hennar og hvað því þótti vænt um hana. Það segir ýmislegt um persónu Kristínar að henni skyldi takast, þrátt fyrir erfið- leika sína, að laða fólk að sér í þeim mæli sem hún gerði enda var jákvæðni og skemmtileg og hlýleg framkoma henni eðlislæg. Það er margs að minnast þeg- ar horft er til baka. Kristín var glæsileg og smekkvís kona með glaðværa og aðlaðandi fram- komu. Hún var vinamörg, hjálp- söm og félagslynd og hafði gam- an af því að bjóða fólki heim til sín og gera vel við það enda af- burða kokkur og gestgjafi. Heimili þeirra hjóna var og er einstaklega fallegt. Ekki voru þeir þó allir háir í loftinu sem fóru saddir frá Krist- ínu. Ég minnist þess eitt sinn að við hjónin fórum að veita því eft- irtekt að miðsonur okkar, Krist- inn, sem alltaf hafði verið grann- holda, tók að gildna. Skýringuna fundum við fljótlega. Hann hafði ásamt vinum sínum tekið að venja komur sínar til Kristínar í frímínútum frá Árbæjarskóla enda stoltur af þessari glæsilegu og góðu frænku sinni. Hún hafði haft gaman af og þótt vænt um að sjá þessa snáða og tróð þá út af súkkulaðiís og öðru góðgæti, þannig að þeir leituðu aftur og aftur til hennar. Kristín átti ekki langt að sækja gestrisni sína og kunnáttu í matseld því mjög gestkvæmt var ætíð á heimili foreldra okkar, Björns Guðmundssonar og Sig- urjónu Ólafsdóttur, að Birkihlíð 17 í Vestmannaeyjum. Kristín vandist því fljótt að hjálpa til og aðstoða mömmu enda elst okkar systkina og ávallt mjög ábyrgð- arfull og umhugað um velferð okkar. Mér og fjölskyldu minni reyndist Kristín ávallt vel. Hún hafði iðulega á orði að hún hefði átt stóran þátt í uppeldi mínu og að hún hefði meira að segja látið mig pissa á sig þegar ég lúrði hjá henni því hún hefði ekki viljað vekja mig. Er ég ekki frá því að þetta sé allt saman rétt. Með Önnu konu minni og Kristínu tókst síðan góður og djúpur vinskapur og nutu þær þess mjög að vera í samvistum hvor við aðra. Nú er komið að þáttaskilum. Þessi óhugnanlegi og ólæknandi sjúkdómur sem rænir fólk reisn, getu og lífslöngun á síðari stigum hans hefur enn tekið sinn toll. Huggun harmi gegn er þó að vita Kristín Björnsdóttir ✝ Ólafur ValurSigurðsson fæddist í Reykja- vík 12. desember 1930. Hann lést á Landspítalanum 13. júní 2017. Sonur hjónanna Sigurðar Ólafs- sonar bygginga- verkfræðings, f. 30.12. 1901, d. 1970, og Rebekku Ágústsdóttur húsfreyju, f. 24.3. 1899, d. 1982. Systkini Ólafs eru Ágúst Gunnar Sigurðsson, f. 1928, d. 1947, og Vigdís Sigurðardóttir, f. 30.12. 1936. Hálfbróðir samfeðra Grétar Sigurðsson, f. 4.12. 1926, d. 17.12. 1994. Ólafur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ingibjörg Jónas- dóttir, f. 1932, d. 2011. Áttu þau Sigríði Ólafsdóttur hjúkr- unarfr., f .15.12. 1953, maki Árni Rafnsson, f. 1952. Börn þeirra eru: a) Rafn, f. 1977, b) Elmar, f. 1982, maki Sigrún Huld Gunnarsdóttir, þau eiga tvær dætur, Maju og Köru. Uppeldissonur Tómas Ían Brendansson. c) Árni Valur, f. 1988. d) Páll Frímann, f. 1991. Dóttir Sigríðar er Ingibjörg María Gousbier, f. 30.5. 1970, maki Patrick Gousbier, börn entspr. frá MR 1951, farmannapr. frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík 1959 og skipstjórnarprófi á varðskip 1965. Ólafur byrjaði til sjós 1951, var í farmennsku í fjögur ár. Frá 1957 1. stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Þá lengst af á V.S. Tý. Hann tók þá þátt í öllum þorskastríðunum. Einnig stýrimaður og skipherra á þyrlum og flugvélum Land- helgisgæslunnar. Frá 1985- 1994 fastráðinn skipherra hjá Landhelgisgæslunni. Ólafur Valur hlaut margar viðurkenningar fyrir björg- unarstörf og hönnun sigl- ingatækja. Gegndi formennsku í Stýri- mannafélagi Íslands 1968-75, sat í ritnefnd sjómannablaðsins Víkings. Hann þýddi Stóru skipabók- ina ásamt Bárði Jakobssyni lögfræðingi og kom að ritunum Landið þitt, Alfræðiorðabók- inni og Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs. Ólafur hafði mikinn áhuga á siglingum, hann ásamt konu sinni, Sigurást, sigldi mikið á skútum, meðal annars frá Seattle til Alaska Þá var hann mikill ÍR-ingur og stundaði skíðaiðkun af kappi í Hamragili ásamt því að koma þar upp trjárækt. Hann var áhugamaður um varðveislu sögu Landhelg- isgæslunnar og V.S. Óðins. Útför hans fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 4. júlí 2017, og hefst athöfnin kl. 13. Adeleid Sigríður, Madelein Sóley, Babtist Máni. Árið 1956 kvæntist hann Sig- urást Gísladóttur, f. 15.11. 1930, d. 4.2. 2004. Eign- uðust þau fjóra drengi. 1) Óskírð- ur Ólafsson, f./d. 27.10. 1957. 2) Sig- urður Ólafsson, skipstj. og útgerðarfr., f. 27.7. 1959. Hann á þrjár dætur og uppeldisdóttur: a) Helga Rán, f. 13.10. 1981. Maki Einar Oddsson. b) Andrea Rós, f. 9.6. 1989, maki Antonio Fattoruso, dóttir Anna Bella. c) Gunnlaug Birna, f. 25.1. 2000. d) Hólm- fríður Rebekka Víkingsdóttir, f. 6.4. 1994. 3) Gísli Ólafsson, f. 3.3. 1961, véla- og skipa- verkfr., maki Agnes Garð- arsdóttir, f. 14.10. 1964. Börn þeirra: a) Garðar, f. 7.2. 1992, og Sigurást Sóley, f. 24.8. 1994. 4) Ólafur Valur Ólafsson, f. 21.8. 1963, ferða- og hótelfr., maki Sigurlín Ólafsdóttir, f. 4.5. 1958. Ólafur Valur var í sambúð með Jónínu Steinunni Þor- steinsdóttur (f. 1936) er hann lést. Óli Valur ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann lauk stúd- Við gamlir skipsfélagar á árun- um 1950-1960 á Lagarfossi, sem var einn af hinum svokölluðu þrí- lembingum, viljum minnast okkar gamla félaga, Ólafs Vals Sigurðs- sonar, skipherra, sem við kveðj- um í dag. Fyrir um það bil 12 ár- um kom Ólafur að máli við Kristján Júlíusson heitinn hvort við gömlu félagarnir á Lagarfossi, á þessum gullaldarárum siglinga, ættum ekki að hittast í kaffi. Komu þeir síðan til mín og var ákveðið að hittast í Perlunni og hóa í gömlu félagana. Það kom ljós að þessi gömlu vináttubönd höfðu aldrei slitnað. Allar götur síðan hefur hópurinn komið sam- an mánaðarlega yfir veturinn í Perlunni en núna í Sjóminjasafn- inu. Síðasta kaffi var í lok apríl en þá kom Ólafur akandi á sínum bíl. Margir hafa fallið frá á þessum tíma, blessuð sé minning þeirra, en eitt má fullyrða að þetta kaffi- spjall hefur veitt okkur mikla gleði og sýnt að gamli Laggi hafði sérstaka sál. Þegar Ólafur kom á Lagarfoss lentum við saman á vakt. Ég minnist þess að hann kom með nýjan brag, talaði rólega og yf- irvegað og fylgdi það honum gegnum lífið. Ólafur gerðist síðan varðskipsmaður, tók þátt í öllum þorskastríðunum og var meira að segja tekinn til fanga af breskum sjóliðum. Eftir að Ólafur kom í land skipaði hann sér í sveit með Hollvinafélagi varðskipsins Óðins og vann þar geysimikið starf. Einnig starfaði hann mikið fyrir Sjóminjasafnið. Ólafur var heiðr- aður á ýmsan hátt en ég veit að honum þótti afar vænt um að fá heiðursmerki sjómannadagsins fyrir störf í þágu sjómanna. Við kveðjum góðan dreng í Guðs friði. Við gömlu skipsfélag- arnir sendum fjölskyldu Ólafs innilegar samúðarkveðjur. F.h. gömlu skipsfélaganna á Lagarfossi, Björn Pálsson. Ólafur Valur Sigurðsson, sund- félagi okkar til margra góðra ára, hefur nú lagt í hinstu vestursigl- ingu sína á eilífðarsænum. Hans sæti við kaffiborðið er nú autt en minningin um hann lifir með okk- Ólafur Valur Sigurðsson Okkar yndislega og fallega ESTER EVA HALL, sem lést 2. júní á Mount Auburn Hospital í Boston, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 6. júlí klukkan 15. Spencer Hall Óðinn Alexander og Viktor Þór synir þeirra Rósella Mosty Ágúst Gunnarsson Aníta Mist, Tanya Líf Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN ÓSKARSSON, Egilsbraut 19, Þorlákshöfn, lést 21. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug. Sigfríður Óskarsdóttir Guðbjörg Ósk Kjartansdóttir Markús Örn Haraldsson Sigríður Kjartansdóttir Gestur Áskelsson Jensína Kjartansdóttir Þorsteinn Ægir Þorsteinsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, DAVÍÐ WALLACE JACK flugvirki, lést á líknardeild LSH í Kópavogi föstudaginn 30. júní. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, föstudaginn 7. júlí klukkan 15. Bergdís Ósk Sigmarsdóttir Róbert Jack Díana Dröfn Heiðarsdóttir Sigmar Jack Hege Elísabeth Wennersgaard Vigdís Jack og barnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR, Keldulandi 15, Reykjavík, lést af slysförum fimmtudaginn 29. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gylfi Þórðarson Karítas Margrét Jónsdóttir Gústaf Reynir Gylfason Benedikt Gísli Gylfason Kristján Birgir Gylfason barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR VIKTORÍA ÞÓRISDÓTTIR, Rekagranda 1, lést á Landspítala við Hringbraut 14. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Björgúlfur Pétursson Hjördís S. Pálsdóttir Steindór J. Pétursson Aðalbjörg Pálsdóttir Þóra Pétursdóttir Steingrímur Haraldsson Pétur Pétursson Hildur Ómarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SKARPHÉÐINN VALDIMARSSON, Sóltúni 9, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 6. júlí klukkan 15. Hildur Ágústsdóttir Ragna Dúfa Skarphéðinsdóttir Guðmundur Kjalar Jónsson Ágúst Skarphéðinsson Jóhann Þr. Skarphéðinsson afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.