Morgunblaðið - 04.07.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gerir jafnan þitt besta og það er
ekki hægt að fara fram á meira. Ekki óttast
að öðrum þyki þú eigingjörn/gjarn.
20. apríl - 20. maí
Naut Forðastu skyndiákvarðanir í dag.
Gefðu skít í fortíðina með stæl – eins og
þér einni/einum er lagið – og haltu áfram
að vera sú manneskja sem þig hefur alltaf
langað að vera.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vinir og félagar eru öruggir,
ágengir og oflætislegir í dag. Illu er best
aflokið svo brettu upp ermarnar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Heimurinn er frekar ruglingslegur
staður, en það er ekki honum að kenna.
Með góðri skipulagningu tekst þér það
sem þú ætlar þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð snjalla hugmynd um hvernig
losa má vinnustaðinn við óþarfa og drasl.
Gleymdu samt ekki sjálfum þér því þú átt
líka við þín vandamál að stríða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Allt ber að sama brunni og þegar
málalyktir blasa við getur þú óhræddur
tekið til þinna ráða. Nú er það allt að baki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhver misskilningur gæti komið upp
milli ástvina sem þarf að leiðrétta. Sá sem
þú berð tilfinningar til er vonandi einhver
sem á eftir að gefa eftir andspænis furðu-
legri visku þinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er gott að þiggja aðstoð
annarra þegar mikið liggur við en gleymdu
ekki að þakka hana þegar allt er afstaðið.
Yfirboðarar þínir ætlast eftir sem áður til
fullrar kurteisi af þinni hálfu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt það til að fara fram úr
sjálfum þér í fjárfestingum. Gættu þess að
bregðast þeim ekki. Reyndu að láta þetta
ekki fara í taugarnar á þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Lítilfjörleg störf eru ekki til,
bara lítilmótlegt viðhorf. Veltu því fyrir þér
hvaða stefnu líf þitt er að taka og hvert þú
stefnir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Munið að gera ekki meiri kröfur
til annarra en þið gerið til ykkar sjálfra.
Sýndu skilning og láttu samstarfsmenn
þína ekki gjalda þess að þeir eru ófull-
komnir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú færð stuðning við málstað þinn
úr óvæntri átt og má segja að hann skipti
sköpum fyrir þig. Vertu bjartsýn/n og opn-
aðu vasana.
Slæmur endir (Frá bæjardyrumSkugga ),“ segir Helgi R. Ein-
arsson:
Hann vildi tíkina taka,
sem telst nú varla til saka,
en þá eigandi birtist
er brjálaður virtist
og byrjaði vandræði’ að baka.
„Óráð,“ bætir Helgi við og víkur
að því sem mest er um rætt á netinu:
Það mun ei þyrnum stráð
að þrauka í lengd og bráð.
Laun munu rísa
á landinu Ísa.
„Lof sé þér, Kjaraóráð.“
„Fæðingardagsfílósófía“ er
yrkisefni Páls Imsland þegar hann
heilsar leirliði „á húmri nóttu“:
Það trauðlega teljast nein ofmæli
og tæplega eru það vanmæli,
að á fæðingardegi,
þá flestallir eigi,
sér formlega staðfest eitt afmæli.
„Allra hagur að leyfa fiskeldi í
sjó,“ segir Ármann Þorgrímsson:
Fjölmenningin finnst mér vera góð
flestir telja lífsgæðin þá vaxa
einrækta því enga skyldi þjóð
og ekki heldur sauði, kýr og laxa.
Guðmundur Björnsson sýslumað-
ur orti um Snæbjörn í Hergilsey, –
og eru stökurnar vísast ortar um
einhverjar svaðilfarir á sjó, sem
þeir fóru saman:
Í þrautum reynir manninn mest;
margur er stundar voðinn.
Snæbjörn stýrir bragna best
Breiðfirðinga goðinn.
Þegar yfir skeflir skafl,
skaflinn fárs og nauða,
hann við Ægi teflir tafl,
taflið lífs og dauða.
Ég rakst á þessa vísu í Iðunni:
Hljómbylgjan helst
þó að hljóðfærið brotni;
og sálin –hún lifir
þótt líkaminn rotni.
Hér er staka úr annarri átt:
Ástarguðinn út í hött
alla saman bindur;
hann tengir saman tófu og kött
því, tetrið, hann er blindur.
Gömul vísa í lokin, sem ort var
þegar Þorkell Ólafsson gekk að
eiga Ingigerði dóttur Sveins lög-
manns Sölvasonar 1774:
Séra Þorkell sér við hlið
setur Ingigerði.
Hann á betra helduren við.
Honum gott af verði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Óráð, fiskeldi í sjó og
Breiðfirðinga goðinn
Grettir
Í klípu
„ÞESSAR ÆTTU AÐ HJÁLPA ÞÉR AÐ JAFNA
SVEIFLURNAR Á MILLI SIGURVÍMUNNAR
OG ANGISTARFULLA ÓSIGURSINS.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HANN ER EKKI MEÐ
REIKNING HJÁ OKKUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
... að nota vildar-
punktana þína til að
búa til sérstakan dag
fyrir hann.
JÖRÐIN OPNAÐIST OG VAR
NÆRRI BÚIN AÐ GLEYPA MIG
ÞAÐ HEFÐI VERIÐ
STÓRSLYS
ER ÞAÐ
EKKI, JÓN?
ÉG ÆTLAÐI AÐ
BJÓÐA ÞÉR SMEKK…
*MMMM*…SLURP…
KJAMS! ROP!
KJAMS!
EN ÉG ER FARIN AÐ
HALDA AÐ MÁLNINGAR-
TEPPI VÆRI NÆR LAGI! MMMPH!
Varla hefur farið framhjá nokkruíslensku mannsbarni, fæddu og
ófæddu, að hér opnaði fyrsta Costco
verslunin í maímánuði og kom sem
ljúfur vorboði inn í líf allflestra Ís-
lendinga. Svo mikil var gleðin að
ráðavilltir kaupmenn vissu ekki sitt
rjúkandi ráð og íbúar í nágrenni
stórveldisins áttu vart heimangengt
vegna ágangs forvitinna eyjaskeggja
sem árum saman hafði verið haldið í
heljargreipum einokunar okurversl-
anna. Þvílíkt og annað eins frelsi!
x x x
Víkverji þarf þó að viðurkenna eittsem hefur legið ansi þungt á sál-
inni alveg síðan undrið í Garðabæn-
um opnaði. Víkverji hefur aldrei stig-
ið fæti inn í ævintýralandið Costco.
Ekki svo að skilja að það hafi aldrei
hvarflað að Víkverja. Forvitnin um-
lykur hann rétt eins og aðrar líf-
verur. En í augum lítils Íslendings er
Costco líkt og grameðla sem ein-
hvern veginn náði að lifa útrýmingu
risaeðlanna af og yfir milljón ára
tímabil gerði hún lítið annað en bara
að stækka. Og aðeins þeir hugrökk-
ustu leggja til atlögu.
x x x
Víkverja hafa borist til eyrna söguraf nokkrum þessara huguðu vík-
inga. Þeir hafa mætt ótal hindrunum.
Kerrum hefur verið rænt af þeim,
einhver keypti gíraffann í raunstærð
sem víkingarnir höfðu fram að því
dáðst að, og sést hefur til fólks gera
heiðarlegar tilraunir til þess að koma
pakkningum í yfirstærð inn í alltof
litla bíla. Sálfræðingar hafa jafnvel
beðið víkingana að hafa í huga að
risaeðlan sé líkt og hið óbyggða land,
enginn staður fyrir ung börn. Þau
þrífast ekki í slíku umhverfi. Í hug-
um Víkverja eru þetta hinir sönnu ís-
lensku víkingar, því þrátt fyrir allt
snúa þeir alltaf aftur til að berjast
um næstu kerru, kaupa nokkur tonn
af jarðaberum og heyja enn eina bar-
áttuna við alltof stórar pakkningar í
alltof litlum bílum.
x x x
Víkverji er ekki víkingur. Víkverjimun fylgjast með úr fjarska og
vona að einn daginn verði risaeðlan
felld og óhætt verður að hætta sér
þangað. vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins.
Þann mun ekki hungra sem til mín
kemur og þann aldrei þyrsta sem á
mig trúir. (Jóh. 6:35)