Víkurfréttir - 30.01.2003, Blaðsíða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Heildarfjöldi útkallaslökkviliðs B.S. árið2002, að meðtöldum
sjúkraflutningum, var minni
en í meðal ári, eða samtals
1218 útköll á móti 1388 árið
2001, sem var meðal ár. Þetta
eru 3,4 útköll á dag en meðal-
tal síðustu 4 ára hafa verið
3,8 —eða tæplega 4 útköll á
dag að meðaltali. Alls var
kallað eftir aðstoð slökkvi-
liðsins, utan sjúkraflutninga,
í 169 tilfellum, eða einu færri
en árið 2001.
Á árinu 2002 var fjöldi útkalla
vegna staðfestra elda samtals
47 og er þetta 14 eldum færri
en árið 2001, sem er mjög at-
hyglisvert. „Við greinum út-
köllin vegna staðfesta elda í tvo
megin flokka, útköll vegna elda
í mannvirkjum og eldar utan
mannvirkja. Mesta fækkunin
var í útköllum vegna elda utan
mannvirkja, eða 16 eldum færri
en árið en 2001. Fækkun út-
kalla er mest í eldum utan
bygginga m.a. sinueldar, eldur í
bifreiðum og annað sem rekja
má til þess að kveikt hafi verið
í með ásetningi eða af gáleysi
s.s. í rusli og fikti með eld.
Fækkun útkalla má að miklu
leiti rekja til aukinnar áherslu í
forvörnum og má þar helst
nefna fræðslu og rýmingar í
skólum, hert byggingareftirlit
og aukin eftirfylgni eldvarnar-
eftirlits“, segir Sigmundur Ey-
þórsson slökkviliðsstjóri í sam-
tali við Víkurfréttir.
Mesta brunatjónið á árinu 2002
var þegar verslunin Gallerý
Förðun brann. Heildartjónið
var metið um 21 milljón og þar
af var tjón á húsnæðinu metið á
um 7 milljónir, annað tjón í
þessum bruna var m.a. á mikl-
um lager og búnaði innandyra
og mun það hafa verið metið á
um 14 milljónir. Verslunin var
staðsett í húsnæði á Hafnar-
götu, sambyggð öðrum versl-
unum og var brunahólfun á
milli þeirra veikari en reglu-
gerðir gera ráð fyrir þannig að
litlu mátti muna að ekki fór
verr.
Önnur brunatjón voru mun
minni, en þar má nefna einbýl-
ishús við Hæðargötu, Íþrótta-
vallarhúsið við Hringbraut og
Bakkavör.
Útköll vegna mengunaróhappa
voru samtals 11 á árinu og
tengdust þau flest umferðar-
óhöppum þ.e. olíuleki, geyma-
sýrur og önnur upphreinslun á
olíu vegna umferðaróhappa.
Þá sendi slökkviliðið aðstoð til
annarra slökkviliða og má þar
helst nefna tvö tilfelli, bruninn
í Fákafeni í Reykjavík og brun-
inn á Laugavegi í Reykjavík.
Árni Sigfússon bæjar-stjóri Reykjanesbæjartók í síðustu viku fyrstu
skóflustunguna að nýjum
höfuðstöðvum og verksmiðju
Kaffitárs sem staðsett verður
við Stapabraut í Njarðvík.
Aðalheiður Héðinsdóttir
framkvæmdastjóri Kaffitárs
sagði við þetta tilefni að lang-
þráður draumur væri að
rætast og gæti Kaffitár nú
enn aukið þjónustu sína við
viðskiptavini:
„Í þessari miðstöð kaffifram-
leiðslu á Íslandi verður tekið á
móti gestum, jafnt veitinga-
mönnum, verðandi fram-
reiðslumönnum sem og al-
menningi sem vill fræðast um
gott kaffi. Í tengslum við ferða-
þjónustu á Suðurnesjum er ætl-
unin að bjóða ferðamönnum að
kynnast starfseminni og tengja
heimsóknir í Kaffitár við aðra
þjónust við ferðamenn á svæð-
inu.“ Gert er ráð fyrir að bygg-
ing hússins taki um eitt ár og
sagði Aðalheiður að við opnun
hússins verði slegið upp dans-
leik.
Húsið verður 1255 m2 að flat-
armáli, að mestu á einni hæð. Í
nýju húsnæði verður skrifstofu-
rými, verslunarrými og mót-
tökusalur ásamt sérútbúnu rými
fyrir kaffismökkun og tilraunir.
Í húsinu verður auk þess iðnað-
areldhús, tilheyrandi aðstaða
fyrir starfsfólk og verksmiðju-
rými.
Kaffitár ehf. var stofnað 1989
og hóf rekstur í september
1990, en fyrirtækið rekur kaffi-
brennslu í Njarðvík og tvö
kaffihús í Reykjavík. Í brennsl-
unni starfa alls 14 manns en 30
manns starfa í kaffihúsunum í
Reykjavík.
1218 útköll hjá Brunavörnum Suðurnesja í fyrra:
Fjögur útköll á dag!
Nýjar höfuðstöðvar og verksmiðja
Kaffitárs rísa í Reykjanesbæ
Birkiteigur 9, Keflavík.
120m2 einbýlishús á 2 hæð-
um með 4 svefnh. og 50m2
bílskúr. Heitur pottur. Eign í
góðu ástandi. 13.900.000.-
Hafnargata 70, Keflavík.
106m2 einbýli á tveimur
hæðum. Möguleiki að leigja
neðri hæð. Laust strax.
6.900.000.-
Hamragarður 6, Keflavík.
142m2 einbýli með 4 svefnh.
og 35m2 bílskúr. Eign á
góðum og vinsælum stað í
bænum. 16.800.000.-
Mávabraut 2, Keflavík.
Góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð
með 2 svefnh. Hagstæð lán
áhvílandi. 7.500.000.-
Vallargata 8, Sandgerði.
Rúmgóð 4ra herb. íbúð á efri
hæð með sérinngangi. Hag-
stæð lán áhvílandi.
7.800.000.-
Hlíðargata 22, Sandgerði.
3. herbergja neðri hæð í
tvíbýli með sérinngangi.
Hagstæð lán áhvílandi.
Laus fljótlega. 6.300.000.-
Eyjaholt 10, Garði.
Lítið parhús með 2 svefnher-
bergjum. Búið að innrétta ris.
Hagstæð lán áhvílandi.
Mikið endurnýjað að innan.
6.900.000.-
Norðurvellir 58, Keflavík.
Gott 118m2 raðhús með 3
svefnh. og 36m2 bílskúr.
Parket og flísar á gólfum.
Hagstæð lán áhvílandi.
Laust strax. Tilboð.
Hlíðargata 26, Sandgerði.
Gott 121m2 einbýli með 4
svefnh. og geymslurisi. Nýtt
skolp, þakjárn, gluggar og
miðstöðvarl. 10.500.000.-
Hlíðarvegur 9, Njarðvík.
Mjög gott 146m2 einbýli með
4 svefnh. Eign sem er mikið
endurnýjuð innan sem utan.
Skipti möguleg á minni eign.
14.500.000.-
Grænás 3b, Njarðvík.
108m2 íbúð á e.h., 2-3 svefnh.
Sólstofa og svalir. Allar lagnir
endurn. Opið hús á sunnudag
2/2.2003 kl. 15 til 18. Sími
861-5220. 9.700.000.-
Smáratún 34, Keflavík.
Góð 126m2 íbúð á efri hæð í
tvíbýli með sérinngangi. 3
svefnherbergi. Bílskúr 36m2.
Mikið endurnýjað að innan
og utan. 12.800.000.-
Mávabraut 11, Keflavík.
Endaíbúð á 2. hæð með 3
svefnh. 74m2 að stærð, nýir
gluggar. Laus strax. Hagstæð
lán áhvílandi. 7.300.000.-
5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 16:19 Page 8