Víkurfréttir - 30.01.2003, Page 16
H jónin Marta Eiríksdóttirog Friðrik Þór Friðriks-son festu kaup á gamla
Kaupfélagshúsinu í Sandgerði í
lok júlí árið 2002, en húsið er
tæpir 400 fermetrar að stærð.
Gamla Kaupfélagshúsið hafði
staðið autt í eitt ár þegar þau
keyptu húsnæðið og síðustu 6
mánuði hafa Marta og Friðrik
staðið í endurgerð húsnæðisins.
Þau búa í Sandgerði og segja
að með því að koma Púlsinum
af stað séu þau að láta gamlan
draum rætast og um leið að
láta eitthvað gott af sér leiða
fyrir samfélagið í Sandgerði. Á
laugardaginn verður Púlsinnn
formlega opnaður og er opið
hús fyrir alla frá klukkan 14 -
17.
Hvað fær fólk til að fara út í
svona framkvæmdir?
Við höfum bæði unnið mikið
með börnum og unglingum í
gegnum tíðina og áttum með
okkur leyndan draum um svona
stað, þar sem fólk á öllum aldri
gæti komið og fengið öðruvísi
útrás fyrir kraftinn innra með sér.
Okkur fannst vanta svona stað
hér á Suðurnesin. Þetta er stórt
íbúasvæði með fullt af öflugu
fólki og margir fá allt of sjaldan
almennilega útrás. Okkur langar
til að krydda tilveruna hjá full-
orðnu fólki meðal annars með
Tangó dansi og okkur langar til
að gefa ungu fólki tækifæri til að
láta ljós sitt skína í leiklist, dansi,
söng eða tónlist. Við veljum að
kenna margt í Púlsinum sem er
óhefðbundið og fæst ekki annars
staðar.
Hvernig hefur fólk tekið hug-
myndinni að Púlsinum?
Við höfum fengið frábærar við-
tökur og okkur finnst fólki langa
til að taka þátt í þessu ævintýri.
Hvað verður nákvæmlega í
boði þarna?
Þarna verður leiklist, söngur, afró
trommu námskeið, afró dans,
jógaleikfimi, leikfimi, kraft-
ganga, dansspuni, orkudans,
tangó, kórskóli m.a. og svo eru
ýmis spennandi helgarnámskeið
framundan. Þar má fyrst nefna
dagsnámskeið með Þorbjörgu
Hafsteinsdóttur, næringar-
þerapista um nýjar leiðir í heilsu-
eflingu og nefnist það Megrun er
úrelt! Ole Vildman danskur nám-
skeiðshaldari kemur með spenn-
andi námskeið sem nefnast Villt
hjörtu og Ástareldur, Lone Rud
kemur með námskeið fyrir börn
og unglinga og svo tónlistarkenn-
ara eða aðra sem hafa gaman af
tilraunamennsku í tónlist, sem
nefnist Stomp og steinar. Sviss-
nesk hjón verða með all nýstár-
legt námskeið sem nefnist Pulsor
en þar er unnið með jöfnun raf-
segulsviðs líkamans, nokkurs
konar nálastungulækningar án
nála. Þetta námskeið er eingöngu
fyrir fólk sem er að meðhöndla
annað fólk. Annars veitir heima-
síðan okkar öllum sem þangað
sækja mjög nákvæmar upplýs-
ingar um öll námskeiðin
www.pulsinn.is
Á vefsíðunni er talað um list-
ræna mannrækt, hvað er það?
Okkur finnst listræn mannrækt
felast í leiklistinni, dansinum,
söngnum og því að búa til tónlist
og auðvitað einnig að mála
myndir eða teikna og skrifa.
Hver manneskja býr yfir listræn-
um hæfileika sem hún þarf að fá
útrás fyrir. Það er síðan hennar
verkefni að finna út hvaða list-
grein hentar. Sumir segja að
maður verði aldrei fyllilega glað-
ur ef maður fær ekki útrás fyrir
hæfileika sína.
Hvenær verður fyrsta leiksýn-
ingin sett upp?
Það verða margar margar litlar
leiksýningar í hverri viku á hver-
ju námskeiði. Við erum með lítið
leiksvið sem hentar litlum sýn-
ingum. Annars er hugmyndin að
fá aðkeyptar sýningar einnig og
uppákomur margskonar. Allt í
ofninum!
Eruð þið bjartsýn á framtíð-
ina?
Já, við verðum að vera bjartsýn
og jákvæð til þess að fara út í
svona framkvæmdir.
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
KRAFTMIKIÐ HÚS Í SAND-
GERÐI OPNAR Á LAUGARDAG
ATVINNA
ALLT HREINT EHF.
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
23. janúar sl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 31. janúar klukkan 14.
✝
Torfi Stefánsson,
Faxabraut 24,
Keflavík.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir minn, afi og langafi
Stefán Torfason,
Auður Anna Torfadóttir,
Torfi Þór Torfason, Kolbrún Jóna Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 16:51 Page 16