Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.01.2003, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 30.01.2003, Qupperneq 17
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 I 17 Vegagerðin lækki hámarkshraða á Vatnsleysuströnd Hreppsnefnd Vatnsleysu-strandarhrepps hefurskorað á Vegagerðina að hún lækki hámarkshraða á Vatnleysustrandarvegi úr 90 km. Niður í 70 km. Vegagerðin hefur nýlega sett upp skilti með 90 km hámarks- hraða á þjóðvegi nr. 420 þ.e. Vatnsleysustrandavegi. Það er álit hreppsnefndar að vegurinn beri ekki 90 km hámarkshraða og skorar hún því á Vegagerð- ina að lækka hámarkshraðann í 70 km., segir í fundargerð hreppsnefndar á dögunum. Þriðjudaginn 4. febrúarkl. 17:15-20:30 verðurhaldið námskeið í Kjarna um gerð viðskiptaá- ætlana í tengslum við verk- efnið Nýsköpun 2003, en nú stendur yfir sérstak þjóðará- tak. Íslandsbanki er einn að þeim aðilum sem koma að verkefn- inu, ásamt Nýsköpunarsjóði Íslands, Morgunblaðinu, Byggðastofnun , KPMG og Háskólanum í Reykjavík. Una Steinsdóttir, útibússtjóri Ís- landsbanka í Keflavík segir Ís- landsbanka hafa sérstökum skyldum að gegna gagnvart litlum og meðalstórum fyrir- tækjum: „Bankinn leitast til við að uppfylla þarfir hvers og eins fyrirtækis fyrir fjármála- þjónustu en vill á sama tíma styðja við þau verkefni sem líkleg eru til að skapa framfarir og efla fyrirtækin. Með aðild að Nýköpun 2003 fær Íslands- banki kærkomið tækifæri til að taka þátt í að efla íslensk at- vinnulíf í náinni samvinnu við fyrirtækin í landinu,“ segir Una og bætir við að viðskipta- áætlun sé mikilvægt tæki fyrir fyrirtæki: „Það að fyrirtæki setjist niður og geri áætlun um ákveðna viðskiptahugmynd getur skipt verulegu máli fyrir fyrirtækin og afraksturinn kemur oft á óvart. Mörgum tekst með þessari vinnu að forma hugmyndir sínar sem lengi hafa blundað og tekst svo í framhaldinu að hrinda í fram- kvæmd. Vel ígrunduð við- skiptaáætlun gerir t.a.m. alla matsvinnu hjá fjármálastofnun auðveldari. Segja má að við- skiptaáætlun sé forsenda þess að bankinn geti tekið afstöðu til þess hvort hann sé reiðubú- inn til þess að veita lánsfjár- magni til verkefnisins, þó að áætlun geti ein og sér ekki tryggt aðgang að fjármagni.“ Nýsköpun 2003 námskeið í Kjarna Íslandsbanki og Nýsköpun Lögreglan lokaði Vatnsleysu- strandarvegi um helgina til að tryggja almannahagsmuni þegar byssumaður mundaði vopn sitt á Ströndinni. Torfi Stefánsson var fæddur 10. september 1925 í Keflavík. Foreldrar hans voru hjónin Þórdís Torfadóttir og Stefán Jóhannesson. Torfi bjó allan sinn aldur í Keflavík. Systur Torfa eru Ástríður Guðný Sig- urðardóttir og Guðný Nanna Stefánsdóttir. Eiginkona Torfa var María Auðunsdóttir en þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Stefán, Auður og Torfi Þór. Þau búa öll í Keflavik. Einnig áttu María og Torfi dótturina Önnu sem dó í frumbernsku. Torfi á 8 barnabörn og 2 barnabarnabörn. Útför Torfa fer fram frá Keflavíkurkirkju kl. 14 á morgun Ljúflingurinn hann bróðir minn er farinn. Minningarnar hrannast upp í huga mér, allt frá því að hann var lítill drengur, sem allt of snemma varð föðurlaus en pabbi okkar drukknaði árið 1930. Mamma stóð uppi ein með okk- ur þrjú og oft var þröngt í búi. Árin liðu við leik og störf, en störfin komu allt of fljótt. Strax eftir skóla var hann byrjaður að vinna og létta undir með heimil- inu. Torfi fór snemma til sjós og undi sjómennskunni vel. Síðustu árin vann hann við fiskverkun. Vinnuveitendur hans og vinnufé- lagar báru honum gott orð fyrir dugnað og ljúfmennsku. Okkur Torfa samdi vel, þótt ég fimm árum eldri hafi stundum þurft að tukta hann til þegar við vorum börn og unglingar. Með árunum myndaðist sannur kær- leikur milli okkar og skilningur á lífinu. Lífið hans varð ekki dans á rósum, en hann var alltaf sami góði drengurinn. Fyrir rúmum tveimur árum greindist hann með krabbamein sem vann svo endanlegan sigur eftir mjög erf- iða baráttu. Hann átti afar gott at- hvarf hjá Torfa syni sínum og Kolbrúnu konu hans í veikindum sínum en þau reyndust honum fádæma vel og fyrir það bera að þakka. Ósk mín er sú að þau hjón uppskeri eins og þau hafa sáð. Ég kveð kæran bróður með þess- um línum eftir Úlf Ragnarsson. Ríkir hryggð í huga mér? það held ég ekki. En ástæðan er einmitt sú að allt of vel ég þekkti þig til þess að hryggjast nú. Ætti það að þyngja mig að þú ert laus við hlekki. Ú.R. Guð geymi þig vinur. Ég þakka árin sem við áttum saman. Ástríður Sigurðardóttir. MINNING ✝ 5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 17:16 Page 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.