Víkurfréttir - 30.01.2003, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ó lafur Þór Ólafsson bæj-arfulltrúi Sandgerðis-listans sagði í samtali
við Víkurfréttir að hann vildi
skoða sameiningu Sandgerðis
og Reykjanesbæjar með opn-
um huga. Víkurfréttir leituðu
til Árna Sigfússonar bæjar-
stjóra og spurðu um hans álit
á sameiningu sveitarfélag-
anna:
„Reykjanesbær varð til vegna
hugmynda um sameiningu
sveitarfélaganna á Suðurnesj-
um. Þrjú þeirra sögðu já, önnur
ekki á þeim tíma. Það er sjálf-
sagt að hafa opinn huga gagn-
vart því að fleiri sveitarfélög
komi með og mér finnst það
mjög skynsamlegt. Ég er t.d.
ekki í vafa um að Sandgerði
hefur margt að bjóða í slíkri
sameiningu og finnst Ólafur
vilja skoða þetta með opnum
huga, sem þarf að gera. Íbúarn-
ir verða þó sjálfir að sjá skyn-
semina á bak við þetta,“ sagði
Árni og bætti við:
„Hið sameinaða sveitarfélag,
Reykjanesbær, vinnur nú af
krafti við að skipuleggja sig til
framtíðar og því brýnt að sveit-
arfélögin skoði þetta fljótlega,
því auðvitað yrði þá tekið tillit
til breytts sveitarfélags í fram-
tíðarmyndinni sem við erum að
vinna fyrir Reykjanesbæ,“
sagði Árni í samtali við Víkur-
fréttir.
Sandgerðislistinn stóð fyrir opnum fundi um atvinnumál íSandgerði fimmtududaginn 23. janúar 2003. Fundað var áVeitingahúsinu Vitanum og var bekkurinn þétt setinn, en
um 80 manns mættu. Frummælendur voru Ketill Jósefsson for-
stöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja, Kristján Gunn-
arsson hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis
og Gunnar Bragi Guðmundsson hjá Ný-fiski ehf. í Sandgerði.
Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum voru Árni Ragnar
Árnason, Hjálmar Árnason, Þorvaldur Már Árnason, Grétar
Mar Jónsson, Böðvar Jónsson, Þorsteinn Árnason, Guðjón
Bragason, Lúðvík Bergvinsson, Helga Sigrún Harðardóttir, Drífa
Hjartardóttir, Kristján Pálsson, Jón Gunnarsson, Sæmundur
Einarsson, Sigurgeir Jónsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Ólafur Þór Ólafsson oddviti Sandgerðislistans var fundarstjóri. Í
lok fundarins var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Opinn fundur Sandgerðislistans haldinn á Veitingahúsinu Vitanum í
Sandgerði 23. janúar 2003 hvetur Suðurnesjamenn til aukinnar sam-
vinnu til eflingar atvinnulífs á svæðinu. Þingmenn, sveitarstjórnir,
fyrirtæki og hagsmunasamtök þurfa að taka höndum saman til að
nýta þau sóknarfæri sem bjóðast Suðurnesjum. Sóknarfærin er m.a.
að finna í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og orkuiðnaði. Þá eru tækifær-
in sem fylgja nálægð við alþjóðlegan flugvöll og batnandi samgöng-
ur nær óteljandi. Þessi sóknarfæri þarf að nýta!“
Ertu ánægður með borgara-
fundinn sem haldinn var í
Sandgerði í síðustu viku?
Já, ég get ekki annað en verið
ánægður með fundinn. Mæting
var framar vonum og umræður
málefnalegar þó stundum hafi
hitnað aðeins í kolunum. En það
er bara eðlilegt á opnum fundi
þar sem menn eru að ræða um
jafn mikilvæg og viðkvæm mál
sem atvinnumál. Við hjá Sand-
gerðislistanum viljum skapa já-
kvæðar og uppbyggilegar um-
ræður um málefni bæjarfélagsins
og ég tel að við höfum náð því á
fundinum.
Hver var niðurstaða fundar-
ins?
Í stystu máli má segja að niður-
staða fundarins hafi verið að við
Suðurnesjamenn þurfum að tala
meira saman. Það kom fram á
fundinum að tækifærin eru ótal
mörg og að við höfum ekki verið
nógu dugleg að nýta þau. Við
höfum orku, við eigum land-
svæði, við eigum góðar hafnir,
það er stutt á miðin og það er al-
þjóðlegur flugvöllur í bakgarðin-
um hjá okkur. Við eigum það öll
sameiginlegt, sama hvað við ger-
um eða hvar við stöndum í póli-
tík, að vilja sjá hag Suðurnesj-
anna sem bestan. Við þurfum að
vinna enn betur saman að þessu
sameiginlega markmiði.
Telurðu vera meira fylgi við
hugmyndum um sameiningu
Sandgerðisbæjar og Reykja-
nesbæjar nú en áður?
Ég verð að viðurkenna að ég geri
mér ekki grein fyrir því hvort
sameiningarmál sveitarfélaga
brenni heitar á fólki nú en áður.
Ég verð a.m.k. ekki var við meiri
umræðu um þessi mál meðal
bæjarbúa.
Vill Sandgerðislistinn samein-
ingu?
Sandgerðislistinn hefur ekki tek-
ið afstöðu með eða á móti sam-
einingu Sandgerðisbæjar við
önnur bæjarfélög. Í málefna-
vinnu fyrir síðustu kosningar var
þetta rætt en án þess þó að listinn
tæki formlega afstöðu í málinu.
Sameiningarmál eru því ekki á
stefnuskrá listans eins og er.
Er það ekki eðlilegt skref að
sveitarfélög sameinist, sérstak-
lega þegar svona er ástatt fyrir
sveitarfélaginu?
Þó svo að staðan í atvinnumálum
í Sandgerði sé ekki til fyrirmynd-
ar er það þó ekki þannig að sveit-
arfélagið sé á heljarþröm. Mörg
sveitarfélög eru t.d. verr sett fjár-
hagslega en Sandgerðisbær. Þá
er sú þjónusta sem bæjarfélagið
veitir íbúum sínum að mörgu
leyti mjög góð. En það eru
vissulega blikur á lofti og við
verðum að vera vakandi fyrir því
að verja hag sveitarfélagsins. Í
því sambandi verðum við að
skoða alla möguleika og einn
gæti hugsanlega verið sameining
við annað sveitarfélag. Það eru
þó alltaf íbúar Sandgerðisbæjar
sem taka þá ákvörðun á endan-
um.
Munt þú beita þér fyrir því að
sameiningarviðræður við
Reykjanesbæ hefjist?
Nei, ég mun ekki beita mér fyrir
sameiningu eins og staðan er í
dag en er hins vegar til í að skoða
málin og ræða þau. Ákvörðun
með eða á móti sameiningu hlýt-
ur að grundvallast á því hvort
framtíðarhagur Sandgerðinga
batni við hana. Ég er aftur á
móti tilbúinn til að beita mér fyr-
ir öflugri samvinnu sveitarfélag-
anna, sérstaklega ef það getur
orðið til þess að bæta stöðuna í
atvinnumálum.
„Ákvörðun með eða á móti
sameiningu hlýtur að grundvallast
á því hvort framtíðarhagur
Sandgerðinga batni við hana“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ:
Sameiningarmál
þarf að skoða
Hvatt til aukinnar samvinnu
- segir Ólafur Þór Ólafsson oddviti Sandgerðislistans í viðtali við VF
Salur FjölbrautaskólaSuðurnesja var þéttset-inn í morgun þegar
nemendur skólans æfðu
hvatningarsöngva fyrir
Gettu betur, spurningar-
keppni framhaldsskóla á Ís-
landi. Lið FS er komið í 8-
liða úrslit keppninnar og
keppa þar við Menntaskól-
ann við Sund í Sjónvarpinu í
mars en það er orðið töluvert
langt síðan FS komst svo
langt í keppninni.
Bæði Morfís- og Gettu betur
liðin voru kynnt þeim nem-
endum skólans sem ekki
þekktu til þeirra og einnig var
kynnt nýtt nemendaráð skól-
ans sem tók til starfa í byrjun
annar.
Kristín Magnúsdóttir, fulltrúi FS í söngvakeppni
framhaldsskóla, tók lagið í lokin við mikla
hrifningu viðstaddra. VF-mynd: SævarS
Hvatningarsöngvar æfðir í FS
Ólafur Þór með
son sinn Júiíus
Viggó.
5. tbl. 2003 - bls. 20-24 29.1.2003 17:21 Page 20