Víkurfréttir - 30.01.2003, Síða 21
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 I 21
Berglind Óskarsdóttir, feg-urðardrottning Suður-nesja, fór til Líbanon í
desember þar sem hún tók þátt
í keppninni Ungfrú Evrópa.
Berglind var þar yfir jólin en
sagðist ekki mikið hafa fundið
fyrir því að það væru jól enda
var hún á stífum æfingum
mest allan tímann. „Ég var þó
svolítið afbrýðisöm á aðfanga-
dagskvöld þegar ég vissi að all-
ir heima voru að borða
jólamatinn. Það eina erfiða við
ferðina var þegar ég fékk mat-
areitrun og varð mjög veik. Þá
kom heimþrá yfir mig en ég
fékk meðöl og góða hvíld og
var fljóta að ná mér aftur“,
segir Berglind.
Berglind segir að það hafi verið
mjög gaman að taka þátt í þessari
keppni og einstök lífsreynsla.
Stúlkurnar gerðu margt saman.
Þær skoðuðu t.d. marga fallega
staði í Líbanon enda landið mjög
fallegt. „Það sem kannski stendur
upp úr af því sem við gerðum var
þegar við heimsóttum munaðar-
leysingjaheimili. Við gáfum
börnunum þar jólagjafir en þau
voru búin að bíða eftir okkur í
marga daga. Það tók svolítið á
taugarnar að sjá öll þessi börn
sem áttu engan að nema hvort
annað og starfsfólkið“.
Berglind segir að gæslan á stúlk-
unum hafi verið mjög ströng og
máttu þær ekkert fara nema í
fylgd með öryggisvörðum. „Þeg-
ar við ferðuðumst í rútu voru þrír
löggubílar og sjúkrabíll í för með
okkur. Þetta var gert til að koma í
veg fyrir að eitthvað kæmi fyrir.
Mér fannst þetta bara mjög já-
kvætt, okkur leið alveg eins og
prinsessum“, segir hún og hlær.
Aðspurð að því hvort hún hafi
kynnst stúlkunum eitthvað segist
Berglind hafa eignast góðar vin-
konur í ferðinni sem hún mun
halda sambandi við áfram. „Ég
kynntist æðislegum stelpum eins
og ungfrú Noregi, Möltu og
Austurríki. Það voru þó sumar
þarna einfaldlega til að vinna og
ekki mikið að sýna vinskap“.
Hún segir að keppnin hafi verið
nokkuð ólík því sem hún kynntist
hér heima. „Það sem mér fannst
ólíkt með keppnum hérna heima
og keppninni úti er að það var
ekkert dómaraviðtal. Ég veit
ekki hvernig þetta er í öðrum
keppnum erlendis. Í kynningu á
lokakvöldi var sagt að dómararn-
ir hefðu kynnst okkur en þegar
ég horfði á spóluna hafði ég
aldrei séð margt af þessu fólki.
Dómararnir vissu sumir ekkert
hvaðan sumar stelpurnar voru og
hvað í þeim býr. T.d. tveimur
dögum eftir keppnina þurfti ég
að mæta til veislu og þar var einn
dómaranna, líbönsk kona sem
spurði mig hver ég væri“.
Berglind sagðist þó hafa komið
heim með heilmargt í farteskinu
eftir þessa ferð. „Ég er svo sann-
arlega reynslunni ríkari og hefði
ekki viljað sleppa þessu. Þetta
var alveg einstakt tækifæri til að
breikka sjóndeildarhringinn og
öðlast lífsreynslu sem fáir fá að
upplifa. Ég neita því ekki að það
hefði samt verið gaman að kom-
ast eitthvað áfram í keppninni en
ég veit að ég stóð mig vel og er
sátt við mína fammistöðu“, sagði
Berglind að lokum.
Fe
gu
rð
ar
sa
m
ke
pp
ni
S
uð
ur
ne
sja
2
00
3
EINSTÖK LÍFSREYNSLA
BERGLINDAR Í LÍBANON
Í næsta blaði:
Hópmynd af þátttakendum í
Fegurðarsamkeppninni 2003
Berglind Óskarsdóttir
ásamt ungfrú Finnland í
þjóðbúningum landa
sinna en þær voru her-
bergisfélagar.
Á aðfangadagskvöld á leið
í veislu forstjóra New TV.
Berglind er með súkkulaði
skó sem þær fengu í
glaðning.
Berglind ásamt hermanni líbanska hernum en
gæslan í kringum stúlkurnar var mjög mikil.
Berglind
ásamt ungfrú
Noregi og
Austurríki á
munaðar-
leysing-
jarhæli í
Líbanon sem
stúlkurnar
heimsóttu.
Stúlkurnar ferðuðust talsvert um landið og hér eru þær í
einni af fjölmörgum skoðunarferð sínum í bænum Byblos.
5. tbl. 2003 - bls. 20-24 29.1.2003 17:22 Page 21