Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.10.2003, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 30.10.2003, Qupperneq 17
VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 30. OKTÓBER 2003 I 17 „Maður finnur að þetta er bara fyrsta skóflustungan í þessu ferli og það er í sjálfu sér ágætt að fara í fyrsta holli,” segir Páll Árnason fyrrverandi starfsmaður Varnarliðsins, en hann er einn 90 starfsmanna sem fengu uppsagn- arbréf. Páll býr ásamt eiginkonu sinni Hörpu Jóhannsdóttur í Reykjanesbæ en þau eiga þrjú börn, auk þess sem barnabarn þeirra er á heimilinu. „Ég er eina fyrirvinna heimilisins því konan mín er öryrki. Maður er ennþá að reyna að kyngja því að manni hafi verið sagt upp og þetta er ekkert smá sjokk fyrir fjölskyld- una. Ég tala nú ekki um hve mik- il áhrif þetta hefur á þær skuld- bindingar sem maður hefur gert.” Páll hefur unnið hjá Varnarliðinu síðustu 6 ár, fyrst á véladeild og síðustu 2 árin hefur hann starfað á lagerdeild Varnarliðsins. Á fimmtudaginn í síðustu viku ræddi verkstjóri Páls við hann og sagði að hann væri hræddur um að hann yrði fyrstur til að fara, en verkstjórinn var þá nýkominn af fundi þar sem uppsagnirnar voru kynntar. „Ég neitaði að trúa því, enda með lengsta starfsaldurinn í deildinni minni.” Páll segir að andrúmsloftið hafi verið mjög þvingað innan Varn- arliðsins í gær, eftir að frétta- flutningur af málinu hófst. „Það vissi í raun engin neitt og allir gátu búist við því að fá uppsagn- arbréf. Það er svo sannarlega þungt í mönnum hljóðið og það veit í raun enginn hvert fram- haldið verður.” Páll er mjög ósáttur við uppsögn- ina og vill helst ekki þurfa að mæta til vinnu á morgun. Hann á inni 2 vikna sumarfrí sem hann ætlar að taka út frá og með morg- undeginum. „Ég ætla að fara að sækja um vinnu og ætli ég byrji ekki á að sækja um vinnu við Kárahnjúka. Ég hef enga trú á því að ég fái vinnu hér á Suður- nesjum.” Páll gagnrýnir mjög hvernig staðið var að uppsögnunum. „Það er náttúrulega fáránlegt að fólk frétti það í fjölmiðlum að það sé að missa vinnuna. Ég tala nú ekki um þegar maður les það einnig í fjölmiðlum að stjórnvöld hafi vitað af þessum uppsögnum í byrjun síðustu viku og ákveðið að gera ekki neitt. Það finnst mér vera skuggalegt og til skammar.” „Þungt í mönnum hljóðið og enginn veit hvert fram- haldið verður” Páll með barnabarni sínu, Kolbrúnu Hörpu 15 mánaða á heimili þeirra. -segir Páll Árnason sem sagt var upp störfum hjá Varnarliðinu á þriðjudaginn. VF -lj ós m yn d/ Jó ha nn es K r. K ris tjá ns so n Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson - johannes@vf.is RAUÐUR SÍMI - TALHÓLF VÍKURFRÉTTA 888 2222 VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 13:31 Page 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.