Víkurfréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 18
Lestur og góð lestrarkunn-átta er mikilvæg undir-staða alls náms. Til þess
að leggja áherslu á það mikil-
vægi hefur verið hleypt af
stokkunum þriggja ára þróun-
arverkefni í Reykjanesbæ
.Verkefnið hefur verið nefnt
“Lestrarmenning í Reykjanes-
bæ”
Verkefnið leggur megin áherslu á
að efla lestrarfærni og málskiln-
ing barna í bæjarfélaginu (2003-
2006). Markmið verkefnisins er
að fá, einstaklinga, stofnanir og
samtök og bæjarbúa alla til,
þess að taka höndum saman um
að efla mál-og lestrarþroska
barna, allt frá fæðingu til fullorð-
insára. Formlega var verkefninu
hleypt af stokkunum í vor. Þá var
öllum börnum á leikskólum bæj-
arins færð bók að gjöf og kynn-
ingabæklingurinn “ Viltu lesa
fyrir mig” gefinn út og sendur til
foreldra allra barna á leikskóla-
aldri.
Læsi til framtíðar.
Sem lið í þessu átaki ákváðu
stjórnendur grunnskólanna og
skólayfirvöld bæjarins að leggja
áherslu á lestur og lesskilning
sem sérstakt forgangsverkefni
skólaárið 2003-2004. Nágranna-
sveitarfélögin Sandgerði, Garður
og Stóru- Vogar óskuðu eftir þátt-
töku. Valdar voru ákveðnar
kennsluaðferðir sem bera sam-
heitið Læsi til framtíðar og skipt-
ist verkefnið í tvo hluta Gagn-
virkan lestur og Hugtakakort. Í
ágústmánuði var efnt til nám-
skeiðs um Gagnvirkan lestur fyr-
ir kennara í grunnskólum bæjar-
ins.
Gagnvirkur lestur” ( reciprocal
teching) er kenndur í tíu vikur
fyrir áramót en aðferðin sem
kölluð er “Hugtakakort” ( con-
cept mapping) verður kennd eft-
ir áramót í aðrar tíu vikur.
Kennarar munu fara á námskeið
um þá aðferð í janúar.
Gagnvirkur lestur.
Markmiðið með því að kenna
aðferðir til þess að efla lesskiln-
ing er fyrst og fremst að fá nem-
endum verkfæri í hendur til þess
að skilja og muna það sem þeir
lesa . Að þeir tileinki sér tilteknar
aðferðir í námi sínu og öðlist við
það betri innsýn og skilning á
námsefninu hverju sinni og geti
smám saman tekið ábyrgð á sínu
eigin námi.
Gagnvirkur lestur er skipulögð
kennsluaðferð til þess ætluð að
auka lesskilning nemenda og vit-
und þeirra um eigið nám Aðferð-
in hefur skilað góðum árangri.
þar sem hún hefur verið reynd.
Upphafsmenn hennar eru banda-
rísku kennslufræðingarnir Anne
L.Brown og Annemarie S. Pal-
incsar. Þær völdu og samþættu
fjóra þætti til þess að kenna nem-
endum að auka lesskilning sinn.
Valið byggðu þær, eftir skipu-
lagðar rannsóknir og kennslu, á
aðferðum sem reyndir og góðir
lesarar beita en slakir lesarar hafa
sjaldan á valdi sínu. Aðferðin
leitast að mæta nemendunum þar
sem þeir eru staddir og byggir á
samvinnui nemenda, þar sem all-
ir reyna að ná sameiginlegri nið-
urstöðu varðandi skilning og
mikilvægi textans.Tiltölulega
einfalt er að aðlaga aðferðina
kennslu allra námsgreina í al-
mennum bekkjum.
Gagnvirkur lestur felur í sér
kennslu þessarra fjögurra þátta
sem oftast fer fram í hópkennslu.
Kennslan fer þannig fram að hún
stuðlar að gagkvæmum sam-
skiptum milli kennara og nem-
enda og nemenda innbyrðis. Hún
er gagnvirk.
Fyrsta þrep hefst á lestri mis-
munandi texta. Hann getur ver-
ið fræðilegur eða sögulegur eftir
þörfum.
Nemendum er svo kennt :
að taka saman meginefni textans
og endursegja með eigin orðum
að spyrja spurninga um hug-
myndir og efni textans,
að leita skýringa þegar skilning
brestur eða eitthvað er óljóst,
að spá fyrir um framhald texta.
Til foreldra/aðstandenda.
Þeir sem vilja hjálpa nemendum
við heimanám geta tekið þátt í
þessari kennslu með því að hafa
þessa þætti sem leiðarljós.
Ferlið fer í stuttu máli þannig
fram: Textinn er lesinn, endur-
sagður með eigin orðum, spurt er
“kennaralegra” spurninga, út-
skýringa er leitað ef með þarf og
að lokum er spáð fyrir um í fram-
hald textans.
Mikilvægt er að foreldrar/að-
standendur hjálpi til hér eins og í
öðru námi barna sinna, Ekkert
örvar og hvetur barn meira en
áhugi og viðurkenning allra sem
að málinu koma. Með samstilltu
átaki allra aðila sem að námi og
uppeldi barnanna koma náum
við markmiðum um bættan ár-
angur í skólastarfinu.
Jónína Friðfinnsdóttir,
kennslufulltrúi á
Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar.
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ L E S T R A R M E N N I N G Í R E Y K J A N E S B Æ
Gagnvirkur lestur
Samtökin Betri bær semstofnuð voru á haust-dögum, hafa það m.a. að
markmiði sýnu að efla ver-
slun og þjónustu í
Reykjanesbæ. Nú er hægt að
kaupa gjafabréf sem gilda hjá
þeim verslunum sem eru aði-
lar að samtökunum og fást
þau hjá Sparisjóðnum í
Keflavík og Upplýsinga-
miðstöð Reykjanesbæjar í
Kjarna. Hægt er að velja um
þrjár upphæðir á bréfunum,
2.500, 5.000 eða 10.000
krónur.
Eftirtaldir aðilar eru félagar í
samtökum um Betri bæ og taka
við gjafakortum:
18 já, Hársnyrtistofa
Harðar,
Agentia, Studiola,
Art-húsið,
Álnabær,
Bílasprautun Suðurnesja,
Boutique Voila.
Bústoð,
Castro bar,
Draumland,
Eignamiðlun Suðurnesja,
Fasteignasalan Stuðlaberg,
Fjóla gullsmiður,
Georg V. Hannah,
Gleraugnaverslun Keflavíkur,
Harpa-Sjöfn,
Hárgreiðslustofan Elegans,
Hársnyrtistofan Carino,
Hjá Önnu,
Hljómval,
Hótel Keflavík,
Hringlist,
Húsanes,
Innrömmun Suðurnesja,
Íslenskir aðalverktakar,
Kaffi Duus,
Katrín Sigurðardóttir,
Kóda,
KPMG Endurskoðun hf.,
Lyf og heilsa,
Lykil ráðgjöf ehf.,
Lögfræðistofa Suðurnesja,
Merkjasaumur,
Moby Dick ehf.,
Nýja bakarí,
Nýja klippótek,
Óskar - Sportbúð,
Park,
Persóna,
Pizza 67,
Reykjanesbær, bókasafn,
Reykjanesbær,
upplýsingamiðstöð,
RI Ráðgjöf ehf.,
RV ráðgjöf - verktaka ehf.,
Saumastofan Liljur,
Skóbúðin,
Sparisjóðurinn í Keflavík,
Sprettur ehf.,
Stapinn,
Toyota umboðið, Hæco,
Unnur Gréta Grétarsdóttir,
Útisport,
Útivist og sport,
Víkurfréttir,
Vínheimar.
Betri bær með gjafabréf
VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 15:32 Page 18