Víkurfréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Í síðustu viku kom í ljós að Milan StefánJankovic, þjálfari knattspyrnuliðs Keflavík-ur, hafnaði tilboði frá Grindavík um að taka
við þjálfun þar. Jankovic, sem var í fjölmörg ár á
mála hjá Grindavík bæði sem þjálfari og leik-
maður, er samningsbundinn Keflavík í ár til við-
bótar en á næstunni setjast hann og stjórn
Keflavíkur niður og ræða framhald samstarfs-
ins. Ekki eru taldar miklar líkur á að hann fari
nokkuð, enda er mikil ánægja með störf hans
hjá Keflavík og stýrði hann þeim til sigurs í 1.
deildinni í sumar og tryggði þannig sæti í úrvals-
deild að ári.
Þegar blaðamaður Víkurfrétta spurði Jankovic út í
málið svaraði hann að sér liði vel í starfi og hann
væri búinn að lofa Keflvíkingum að vera áfram.
„Það er bara engin ástæða fyrir mig að fara” sagði
hann, „þetta síðasta ár er eitt það besta sem ég hef
átt á Íslandi og ég er að vinna með góðu fólki, bæði
leikmönnum og stjórnarmönnum.”
Víst er að stuðningsmenn Keflavíkur fagna þessari
ákvörðun enda hefur Milan Jankovic gert góða hluti
með liðið og hefði verið missir af starfskröftum
hans.
Aftur á móti eru Grindvíkingar enn að leita að þjálf-
ara til að fylla í skarð Bjarna Jóhannssonar sem
hætti með liðið eftir síðustu leiktíð og er nú tekinn
við liði Breiðabliks.
Keflavík tekur þátt í FIBA
Europe Cup í vetur og er í riðli
með tveimur liðum frá Portúgal,
Ovaranse Aerosoles og CAB
Madeira, og franska liðinu
Hyeres Toulon Var.
Ekki er mikið vitað um portúgöl-
sku liðin en þó er víst að landslið
Portúgala er ekki mikið betra en
það íslenska. Franska liðið er án
efa sterkasta liðið í riðlinum enda
franska deildin með þeim
sterkari í Evrópu.
Fyrsti leikur Keflavíkur í kepp-
ninni verður miðvikudaginn 5.
nóvember klukkan 19.15 á móti
Ovarense Aerosoles. Eins og
áður hefur komið fram er lítið
vitað um liðin en þó er ljóst að
liðið þeirra er mjög hávaxið þar
sem þeir eru með fimm leik-
menn sem eru yfir tvo metra, þar
af einn amerískan risa upp á 2.09
metra. Liðið hefur lengi verið í
fremstu röð í Portúgal og hefur
spilað í Evrópukeppnum í mörg
ár án mikils árangurs þó. Guðjón
Skúlason vonast til þess að vinna
heimaleikina gegn portúgölsku
liðunum og ef þeir fagna sigri í
öðrum útileiknum í Portúgal er
góður möguleiki á því að komast
upp úr riðlinum.
Þátttaka í keppni sem þessari er
dýrmæt reynsla fyrir íslenska
leikmenn og leggur
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
áherslu á að sem flestir áhorf-
endur mæti á leikina og styðji við
bakið á sínum mönnum. Til að
tryggja sem besta mætingu ætlar
körfuknattleiksdeildin að standa
fyrir alls konar uppákomum á
leikjunum og hyggjast þeir fá
sérstaka gesti til að halda uppi
fjöri í hálfleik!
Fyrri umferð 8-liða úrslita Hópbílabikarsins fer fram 2. og 3. nóv-
ember nk. Suðurnesjaliðin eru að sjálfsögðu öll ennþá í keppninni
en lenda í sýnu erfiðari andstæðingum að þessu sinni.
Keflavík, sem á titil að verja í þessari keppni, sækir Hamar heim á
sunnudaginn 2. nóv. Guðjón Skúlason segir að hans menn mæti til
leiks til að vinna eins og alltaf en óttast þó að Evrópuleikir sem liðið er
að fara að spila í vikunni eftir gætu þvælst fyrir.
Grindavík mætir ÍR í Seljaskóla á sunnudag og Friðrik Ingi Rúnarsson
er bjartsýnn fyrir hönd sinna manna. „ÍR hafa dottið svolítið niður eftir
góðan sigur á Keflavík, en nú kemur Eiríkur Önundarson aftur eftir
veikindi auk þess sem ÍR eru víst að fá Kanadamann til reynslu sem
gæti verið í hópnum.” Hann segir erfitt framundan hjá sínu liði og þeir
megi ekki missttíga sig.
Á mánudag tekur Njarðvík á móti KR og segir Friðrik Ragnarsson að
einhvern veginn virðist sem þessi lið lendi alltaf saman í öllum keppn-
um. Hann er þó hvergi banginn þar sem Njarðvík hefur haft ágætt tak
á KR síðustu misserin. „Við erum ekkert búnir að vinna í heilt ár
þannig að við erum orðnir langeygir eftir titlum og við viljum sannar-
lega vinna þennan eins og aðra.”
Njarðvík gerði góða ferð til
Reykjavíkur á laugardaginn
þegar þær lögðu KR-stúlkur
að velli í 1. deild kvenna í
körfuknattleik, 63-72, eftir
framlengdan leik. Andrea
Gaines átti stórleik og skoraði
30 stig, tók 9 fráköst og stal 12
boltum og Díana Jónsdóttir
átti líka góða innkomu og end-
aði leikinn með 13 stig.
Keflavík tapaði á heimavelli
fyrir liði ÍS með 75 stigum
gegn 81. Þetta var annað tap
Keflavíkur í röð, en í síðustu
umferð biðu þær lægri hlut
gegn KR. Samkvæmt Hirti
Hjartarsyni þjálfara var þeim
algerlega slátrað í fráköstun-
um og ÍS barðist miklu meira.
„Það er greinilegt að vatns-
gusan gegn KR var ekki nóg til
þess að vekja liðið. Það er
stundum eins og leikmenn
haldi að þær séu áskrifendur
að stigum bara vegna þess að
þær eru taldar með besta
mannskapinn.” sagði Hjörtur
og var hreint ekki ánægður
með frammistöðu liðsins. Erla
Þorsteinsdóttir var komin aft-
ur í liðið eftir meiðsli og skor-
aði 17 stig og Birna Valgarðs-
dóttir skoraði 15. Hjá gestun-
um var Stella Rún Kristjáns-
dóttir atkvæðamest með 26
stig og Svandís Sigurðardóttir
átti góðan leik undir körfunni
og tók 10 fráköst.
Grindavík tapaði fyrir ÍR á
útivelli 71-54. Eins og fyrir-
fram var búist við áttu
Grindavíkurstúlkur í miklum
erfiðleikum undir körfunni
þar sem ÍR hefur hávaxnara
liði á að skipa og tóku heima-
stúlkur mun fleiri fráköst.
Eplunus Brooks átti góðan leik
og skoraði 19 stig og tók að
auki 19 fráköst og Kristrún
Sigurjónsdóttir skoraði 15 og
tók 10 fráköst. Í liði Grinda-
víkur voru Ólöf Pálsdóttir og
Petrúnella Skúladóttir stiga-
hæstar með 12 stig og Jovana
Stefánsdóttir skoraði 11 stig.
■Karfan / Keflavík í FIBA Europe Cup
■Knattspyrnan / þjálfaramál á Suðurnesjum
■Karfan / 1.deild kv.■Karfan / Hópbílabikarinn
Jankovic hafnar þjálfarastöðu í Grindavík
SKORAÐI
30 STIG
Dýrmæt reynsla
✞
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
þriðjudaginn 28. október.
Marta Hauksdóttir, Aðalsteinn Hauksson,
Haukur Ingi Hauksson, Hrafn Hauksson,
Hildur Hauksdóttir, Þórður Helgi Þórðarson,
Guðrún Guðmundsdóttir.
Ástkær faðir okkar og vinur,
Haukur Ingason,
Hlíðarvegi 5,
Ytri-Njarðvík,
Erfiðari andstæðingar
Suðurnesjaliðanna
VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 14:25 Page 24