Víkurfréttir - 30.10.2003, Qupperneq 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
F immtudaginn 23. október s.l. varhaldið námskeið fyrir bekkjar-fulltrúa í grunnskólum í Reykja-
nesbæ. Námskeiðið var á vegum FFGÍR
og var haldið í Holtaskóla. Um eitt
hundrað bekkjarfulltrúar sóttu nám-
skeiðið. Helga Margrét Guðmunds-
dóttir starfsmaður hjá FFGÍR sá um að
skipuleggja námskeiðið og sagði hún að
bekkjarfulltrúar hefðu almennt verið
ánægðir að loknu námskeiðinu en ljóst
er að mikil vinna er framundan í að
móta hlutverk bekkjarfulltrúa og
FFGÍR mun halda áfram að virkja
foreldra til samvinnu bæði sín á milli og
til samstarfs við skólanna.
„Það hefur staðið til í langan tíma að halda
svona námskeið” sagði Helga Margrét til
að skerpa á hlutverki bekkjarfulltrúa og til
að virkja fleiri foreldra. Stjórnir foreldra-
félaganna og foreldraráða hittast einu sinni
í mánuði en ekki hafa bekkjarfulltrúar hist
fyrr á slíkum vettvangi. þarna voru
samankomnir bekkjarfulltrúar úr öllum
skólunum, báru saman bækur sínar og
lögðu fram sínar hugmyndir.”
Hvert á hlutverk bekkjarfulltrúa að
vera?
Fulltrúi frá Landssamtökunum Heimili og
skóla hélt fræðsluerindi þar sem farið var
yfir hlutverk bekkjarfulltrúa og talaði um
foreldrasamninga og foreldrasamstarf
almennt og hversu þýðingarmikið það er.
Á námskeiðinu var skipt upp í hópa þar
sem rætt var um fyrirfram ákveðnar
spurningar eins og: Hvað getum við gert
til að efla samstarf heimila og skóla?
Hvernig geta bekkjarfulltrúar eflt starf sitt
og orðið virkari? Hvað þarf ég að bæta í
mínum skóla varðandi bekkjarfulltrúa?
Hvert ætti hlutverk bekkjarfulltrúa að
vera?
Stjórnir foreldrafélaganna munu vinna úr
niðurstöðum hópavinnunar og síðan mun
hver stjórn funda með sínum bekkjarfull-
trúum og setja sér markmið varðandi störf
bekkjarfulltrúa.
Foreldrar eru hvattir til að skoða heima-
síður skólanna. Þar eru krækjur fyrir for-
eldrafélögin og handbækur um starfsemi
foreldrafélaganna. Þar er einnig hægt að
sjá markmið hvers foreldrafélags, hverjir
sitja í stjórn foreldrafélagsins og foreldra-
ráða. Einnig er hægt að nálgast handbæk-
urnar hjá skólariturum.
Virk upplýsingamiðlun er grundvallar-
atriði í foreldrasamvinnu og samvinnu
heimila og skóla og mun FFGÍR ásamt
stjórnum foreldrafélaganna leitast við að
fylgja eftir þeim hugmyndum sem fram
komu á fundinum.
Öflugt foreldrastarf getur bætt námsárangur.
Bekkjarfulltrúar gegna lykilhlutverki í
skólastarfinu og eru m.a. tengiliðir for-
eldrafélaganna við umsjónarkennarann og
skólasamfélagið. Einnig eru þeir tengiliðir
umsjónarkennarans við aðra foreldra í
bekknum og fulltrúar foreldra í bekknum
gagnvart umsjónarkennara. Eitt af því sem
fram kom á fundinum er að gott væri að
foreldrar kæmu meira inn í skólana og
þekktu betur aðstæður og aðbúnað barn-
anna þar sem þau dvelja lungann úr
deginum. Mikilvægt er að foreldrar þekki
foreldra annarra barna í bekknum og að
foreldrasamvinna hefjist strax í yngri
bekkjunum. Rætt var um meiri samvinnu
bekkjarfulltrúa á hverju stigi fyrir sig og að
jafnvel bekkjarfulltrúar hvers árgangs
starfi meira saman. Talað var um að koma
upp hugmyndabanka til að fá fleiri hug-
myndir um bætt samstarf heimila og skóla
og hvernig kveikja megi áhuga foreldra á
foreldrastarfi. Hvernig kjósa á bekkjarfull-
trúa var einnig til umræðu og einn hópur
lagði áherslu á að allir foreldrar sem áhuga
hefðu á að gerast bekkjarfulltrúar ættu að
hafa tækifæri á að vera í kjöri. Ekki þótti
gott að velja bekkjarfulltrúa af handahófi
og best væri að foreldrar í hverri bekkj-
ardeild kæmu saman og myndu kjósa sína
fulltrúa annað hvort að vori eða strax í
upphafi skólaársins.
Foreldrar hvattir til að vera jákvæðir.
Flestir hóparnir bentu á nauðsyn þess að
foreldrar væru jákvæðir í garð skólans og
að foreldrasamvinna þyrfti að vera jákvæð
og uppbyggileg. Mikilvægt er í foreldra-
samstarfi að hafa foreldrafundi í föstum
skorðum og halda auglýsta tímasetningu
og jafnvel halda fundi reglulega. Upp
komu hugmynd um að foreldrar hittust í
heimahúsum til að kynnast betur og jafnv-
el skemmtu sér meira saman eða hefðu
pönnukökufundi. Nokkrar um-ræður urðu
um samstarf bekkjarfulltrúa við umsjón-
arkennara og að kynna þyrfti umsjónar-
kennurum með hvaða hætti þeir geta nýtt
sér bekkjarfulltrúana t.d. til að bæta bekk-
jarandann eða skólastarfið. Í framhaldi af
hópavinnunni kom fram að gott væri að
setja fram markmið fyrir bekkjarfulltrúa
og Jóhann Magnússon einn hópstjóranna
talaði um að á nám-skeiðinu væri
samankomin hundrað manna her sem
tilbúin væri til starfa að breiða út boðskap-
inn og hann þyrfti að virkja til að efla
foreldrasamstarfið. Þannig urðu miklar
umræður um hvernig foreldrar geta star-
fað saman og lagt sitt af mörkum til að
bæta skólastarfið. Líðan barna í skólum
kemur öllum við og með auknu forel-
drasamstarfi og bættri líðan barnanna má
bæta námsárangur. Það er allra hagur að
foreldrar hittist meira á þessum vettvangi
hafi gaman saman og styrki og hvetji
hverjir aðra.
➤ B E K K J A R F U L L T R Ú A R Í R E Y K J A N E S B Æ Á N Á M S K E I Ð I
Mikil vinna framundan í að móta hlutverk bekkjarfulltrúa
Aðalfundur UJ-Suðurnes
Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum minna á aðalfund sem verður
haldinn í dag, fimmtudaginn 30. október, kl. 20:00 á sal Verslunar-
mannfélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ. Fundurinn
var auglýstur á vef Ungra jafnaðarmanna, www.politik.is. Á dagskrá
verða hefðbundin aðalfundarstörf. Lög liggja frammi til kynningar á
www.politik.is. Ungir jafnaðarmenn hvetja alla sem hafa færi á að
mæta og taka þátt. Farið verður á Paddy’s eftir fundinn og haldið upp á
árs afmæli UJ-Suðurnesjum.
Ungir Jafnaðarmenn á Suðurnesjum
Þakkir frá körfuboltanum
Strákarnir í körfuboltanum gengu í hús í Keflavík um sl. helgi, tilgang-
urinn var að safna flöskum og dósum til að fjárafla Evrópukeppnina
sem þeir eru að fara í.
Viðtökur bæjarbúa fóru fram úr okkar björtustu vonum og viljum við
koma hér á framfæri innilegu þakklæti til bæjarbúa fyrir stuðninginn.
Meistaraflokkur karla í Keflavík.
➤ F É L A G S S TA R F
Fylgist með daglegum íþróttum
á vef Víkurfrétta, www.vf.is
VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 14:16 Page 22