Víkurfréttir - 30.10.2003, Qupperneq 25
VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 30. OKTÓBER 2003 I 25
Vichy ráðgjafi verður í
Lyf og heilsu Keflavík
föstudaginn 31. október
frá klukkan 13 - 17
Vichy húðvörur eru öruggar og
ofnæmisprófaðar vörur sem byggja
á rannsóknum í rúmlega 70 ár.
Sérstaða Vichy varanna er
steinefnaríkt uppsprettuvatn
sem þær innihalda.
Vichy húðvörur fást eingöngu í
apótekum þar sem þú getur fengið
ráðgjöf um hvað hentar þinni húð.
Vantar þig gott krem en veist
ekki hvers húð þín þarfnast?
www.vichy.com
VICHY. HEILSULIND HÚÐARINNAR
Með LiftActiv og Novadiol hrukku-
kremunum fylgir snyrtitaska ásamt
lúxusprufu af næturkremi og prufur
af Nutrilogie kremum fyrir þurra húð
FRAMKVÆMDATILBOÐ - 2 FYRIR 1
Þú kaupir og sækir pizzu og hvítlauksbrauð.
Þú færð aðra pizzu sömu stærðar frítt með.
Þú greiðir fyrir dýrari pizzuna.
Síminn er 421 4067 • Hafnargötu 30 Keflavík
➤ H J Á L M A R Á R N A S O N S K R I FA R
Enn hefur þrengt að í atvinnulífi
okkar Suðurnesjamanna. Boð-
aðar uppsagnir Varnarliðsins
kunna að kosta allt að 90 manns
störf sín - þar af um 70 Suður-
nesjamenn. Þetta er grafalvarlegt
og við því verður að bregðast.
Fyrst ber að nefna að aðgerðirnar
eiga í raun ekki að koma á óvart.
Vitað er að embættismenn Varn-
armálaráðuneytisins bandaríska
hugðust nánast skera stöðina nið-
ur við trog. Með pólitískum
þrýstingi var því afstýrt. Banda-
ríkjaher ákveður síðan að skera
útgjöld sín til ALLRA herstöðva
niður í sparnaðarskyni. Gildi
það jafnt um stöðvar erlendis
sem í Bandaríkjunum. Alls stað-
ar kemur slíkur niðurskurður illa
við fólk sem haft hefur atvinnu
af störfum í þágu Varnarliðs. Ég
viðurkenni að það kemur mér á
óvart að aðgerðirnar bresti á
núna - taldi einfaldlega að málið
yrði “fryst” meðan heildarendur-
skoðun færi fram. Svo virðist
sem Varnarliðið hafi ákveðið
þetta nokkuð snögglega. Utan-
ríkisráðuneyti fær að vita um
málið nærri síðustu helgi og strax
eftir helgina er verkalýðsforystan
látin vita.
Stóra spuringin er núna þessi:
Hvað er til ráða? Í mínum huga
eigum við öll á Suðurnesjum að
taka höndum saman og í sam-
starfi við ríkisvaldið um aðgerðir
annars vegar strax og hins vegar
til lengri tíma. Atvinnuleysi er
eitt versta böl sem til er.
Tækifærin eru til staðar
- vinnum saman.
S.l. vetur kallaði ég, sem fyrrver-
andi skólameistari, á hóp núver-
andi og fyrrverandi Suðurnesja-
manna. Fólk úr öllum flokkum
og stéttum. Markmiðið var að
leita eftir hugmyndum til að byg-
gja upp atvinnulíf á Suðurnesjum
til framtíðar. Ekki er annað hægt
en dást að þeim hugmyndum
sem fólkið dró fram. Hugmynd-
um þeirra var skilað í tillögu-
formi undir heitinu: Suðurnes
um ókomna tíð. Þar er einmitt
leitast við að kynna hugmyndir
og leiðir að nýsköpun og eflingu
atvinnulífs okkar. Ég skora á
sveitarstjórnir, fjármálastofnanir,
lífeyrissjóði, fyrirtæki og einstak-
linga um að taka höndum saman
við að hrinda í framkvæmd hug-
myndum sem gætu skilað okkur
á tiltölulega skömmum tíma
hundruðum nýrra og jafnvel ör-
uggra starfa á Suðurnesjum.
Við erum felmtri slegin. Við
erum áhyggjufull. Látum núna
samstöðu fleyta okkur út úr
vandanum en fyrir alla muni
forðumst sundurlyndið og fjand-
skap. Aðeins þannig náum við
að vinna okkur út úr vandanum
sem vissulega er mikill. Tökum
höndum saman og byggjum upp
sterkt samfélag á Suðurnesjum.
Tækifærin eru til staðar. Nýtum
þau.
Hjálmar Árnason,
alþingismaður.
BREYTUM
VÖRN Í SÓKN
VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 14:39 Page 25