Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
F immtudaginn 26. febrúar næstkomandiheldur Alexandra Chernyshova óperu-söngkona tónleika í Duus-húsum, en und-
irleikari verður Gróa Heimisdóttir.Alexandra er
gift Jóni R. Hilmarssyni og búa þau í Keflavík.
Alexandra sem er 24 ára gömul er fædd í Úkraínu
en hún fluttist til Íslands í október sl. Henni líkar vel
við Ísland og Íslendinga. „Þetta er frábært land og
náttúran hér er einstök. Það eru líka miklar and-
stæður hér, bæði í veðri og í náttúrunni. Til dæmis
eru eiginlega engin tré hér en fullt af flugum,“ sagði
Alexandra í samtali við Víkurfréttir. Fyrir stuttu sá
hún Norðurljósin í fyrsta sinn. „Það var einstakt að
sjá þessi ljós flögra um himinhvolfið,“ segir Alex-
andra en hún stundar nám í íslensku við Háskóla Ís-
lands. Hvernig finnst henni að læra Íslensku? „Það
er ekki svo erfitt en málið er mjög flókið, en mér
finnst mjög gaman að læra íslensku.“
Alexandra lauk píanónámi árið 1993 og í framhald-
inu fór hún í söngnám í tónlistaháskólanum Glier í
Kíev þaðan sem hún lauk námi árið 1998. Á árun-
um 1997 til 2000 hefur Alexöndru verið boðið
nokkrum sinnum á Master class námskeið til
Hanno Blashke í Munchen. Alexandra hefur tekið
þátt í fjölmörgum alþjóðlegum keppnum og hátíð-
um, m.a. í Moldavíu og Þýskalandi. Frá árinu 1998
til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku
sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev. Í apríl árið
2002 var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í
keppninni „Nýtt nafn“ í Úkraínu, en síðar það ár tók
hún þátt í alþjóðlegri keppni í Grikklandi.
Á árunum 1999 til 2003 stundaði Alexandra söng-
nám í söngakademíunni Nezdanova í borginni
Odessu í Úkraínu. Auk þess að ljúka söngnámi út-
skrifaðist hún einnig úr háskóla á sama tíma þar
sem hún lagði áherslu á ensku, spænsku og heims-
bókmenntir.
Tónleikar Alexöndru í Duus-húsum eru þeir fyrstu
þar sem hún kemur ein fram og henni hlakkar til.
„Ég hef stundað söngnám sl. átta ár og söngurinn er
það sem ég vil vinna við í framtíðinni,“ segir Alex-
andra og henni líkar vel við Reykjanesbæ. „Mér
finnst gott að sjá hafið og vera nálægt því. Mér
finnst líka fólkið hér vera gott og ég vona bara að
fólkið mæti á tónleikana,“ segir Alexandra með
bros á vör.
➤ M E N N I N G A R L Í F I Ð Í B Æ N U M
VF
-M
YN
D:
H
ÉÐ
IN
N
E
IR
ÍK
SS
O
N
Frá Úkraínu
til Reykjanesbæjar
Ópera í DUUS-húsum
Daglega á Netinu • vf.is
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 15:18 Page 6