Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 8
ER STARFSUMHVERFI
starfsmanna Varnarliðsins
að verða óbærilegt? Hvað
eru yfirmenn Varnarliðsins
að hugsa? Hvernig dettur
þeim í hug að þeir komist
upp með að greiða íslenska
starfsfólkinu ekki samn-
ingsbundnar launahækkanir
og annað sem þeim ber að
fá? Ótrúlegt mál og ennþá óskiljanlegra er að þetta
skuli viðgangast. Ef ekki væri fyrir Verkalýðs- og
Sjómannafélag Keflavíkur þá væri málið ekki á
dagskrá! Þessu þarf að breyta og koma til betri veg-
ar.
VÍKURFRÉTTIR fluttu fréttir af brotthvarfi
Orion vélanna fyrir all löngu síðan - sögðu frá því í
frétt samkvæmt heimildum starfsmanns innan vall-
arins að vélarnar, ásamt mönnum væru að fara. Allt
í einu eru íslensk stjórnvöld að átta sig á þessu -
ótrúlegur seinagangur!
KALLINN MÆTTI AÐ sjálfsögðu á styrktartón-
leikana sem haldnir voru til heiðurs Ómari Jóhanns-
syni revíuhöfundi. Þvílíka samkennd hefur Kallinn
aldrei upplifað og Kallinn varð verulega snortinn að
sjá hve margir mættu til að styðja Ómar og fjöl-
skyldu hans. Ómar sýndi það svo um munaði að
hann er einn helsti revíuhöfundurð íslensku þjóðar-
innar þegar hann lét Hjálmar Árnason „heyra“ það
á tónleikunum. Ómar er algjör snillingur! Takk fyrir
revíurnar Ómar og það sem þú hefur gert fyrir Suð-
urnesin!
SVO VIRÐIST SEM lesendur séu alveg hættir að
senda Kallinum póst. Kallinn vill fá upplýsingar um
stöðu mála hjá Varnarliðinu. Kallinn vill fá upplýs-
ingar um spillingu innan fyrirtækja, stofnana og fé-
lagasamtaka. Kallinn vill fá fallegar sögur af venju-
legu fólki. Já, Kallinn vill fá tölvupóst frá fólki sem
hefur frá einhverju að segja! Kallinn@vf.is
HVAÐA AUGUM líta Suðurnesjamenn á fegrunar-
aðgerðina hjá Ruth Reginalds? Gaman væri að
heyra frá fólki. Kallinn styður Ruth heilshugar í
þessu verkefni, enda geta þeir sem ekki vilja horfa á
þetta í sjónvarpinu einfaldlega slökkt á því.
KALLINN ÓSKAR Sandgerðingum til hamingju
með nýjan miðbæ! Gott mál og mun fegra bæinn og
staðurinn er góður. En hvað ætli Reynir Sveinsson
þurfi stóra/litla skrifstofu? Nei, Kallinn bara spyr!
DUGLEG AÐ SENDA PÓST Á KALLINN!
Kallinn@vf.is
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Kallinn á kassanum
MUNDI
➤ K A R L M E N N S K U TÁ K N S E M H I T T I R N A G L A N N Á H Ö F U Ð I Ð !
Ígegnum tíðina hafa karl-menn litið á hamar sem sittverkfæri og oftar en ekki er
hamarinn tákn um karl-
mennskuna. Að halda á hamri
í hönd segir þeim sem sjá að
viðkomandi sé karlmennskan
uppmáluð.Víkurfréttir ákváðu
að kanna málið og ná tali af
smiðum hjá Húsagerðinni sem
reisa fjölbýlishús við Heiðar-
enda í Keflavík.
Það var slagveðursrigning á
byggingasvæðinu og smiðirnir
voru allir klæddir í appelsínugula
sjóstakka og þeir voru rennandi
blautir. Upp á þaki voru þrír
smiðir að vinna og voru þeir allir
í smiðsvestum.
Agnar eða Aggi eins og hann er
kallaður er 26 ára gamall. Hann
stundar nám í húsasmíði við Öld-
ungadeild Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og hann segist hafa stefnt
lengi að því að verða smiður. En
hvernig er að vinna upp á þaki í
rigningu og roki? „Það er mun
betra heldur en í slyddu,“ svarar
Aggi og kippir sér varla upp við
spurninguna, enda byggist ís-
lensk veðrátta að miklu leiti á
roki og rigningu. „Að vinna í
rigningunni er bara hluti af starf-
inu. Það er í lagi á meðan manni
verður ekki kalt á höndunum.“
Oft vinna smiðir í byggingum
sem teygja sig hátt frá jörðu og
þegar Agnar er spurður að því
hvort hann sé lofthræddur er
svarið stutt og laggott: „Nei, það
er ekki til lofthræðsla í mér.“
Með Agga á þakinu eru smiðirnir
Hafþór og Björgvin að vinna.
Þegar þeir eru spurðir út í
hamrana og karlmennskuna sem
þeim tengist segja þeir að hamr-
arnir skipti máli. „Þetta er svona
svipað og þegar karlar metast um
hver eigi flottari jeppa,“ segja
þeir brosandi. Upp úr kafinu
kemur að Aggi er með stærsta
hamarinn og er ekki laust við að
það votti fyrir öfund hjá Hafþóri
og Björgvini þegar þeir líta á
verkfærið hjá kollega sínum.
Strákarnir segja að það sé góður
mórall í hópnum þrátt fyrir met-
ing um það hver sé með stærsta
hamarinn. En að öllu gríni
slepptu þá eru hamrarnir jú nauð-
synlegasta verkfæri smiðsins og
hamarinn er valinn með þarfir
hvers og eins í huga - en stærðin
skiptir máli!
Stærðin skiptir máli!
Smiðirnir Hafþór, Björgvin og Agnar á þaki fjölbýlishússins við Heiðarenda sem Húsagerðin reisir.
Agnar er með stærsta hamarinn eins og sést á minni myndinni. Stærðin skiptir máli.
Afró í
Púlsinum
A frísk dans- og tónlist-armenning verðuráberandi næstu vik-
ur í Púlsinum.
Nýtt 6 vikna námskeið í Af-
ródansi hefst 24. febrúar.
Dansað verður einu sinni í
viku, þriðjudaga klukkan
18:30 til 20:00. Kennari er
Sólveig Hauksdóttir, lektor
við KHÍ, hjúkrunarfræðingur
og leikkona, en hún hefur
ma. kynnt sér afríska menn-
ingu í Afríku og dansað
þennan dans í tólf ár undir
stjórn Orville í Kramhúsinu.
Sjálf hefur hún kennt af-
ródans í nokkur ár. Dansað er
við afríska trommutakta.
Skemmtileg dansútrás fyrir
alla aldurshópa.
6 vikna námskeið í afró
trommum hefst föstudaginn
27. febrúar. Þátttakendur
þurfa ekki að útvega tromm-
ur sjálfir. Kennd verða undir-
stöðuatriði í trommuslætti og
einföld taktmikil lög frá Vest-
ur-Afríku, undir stjórn Saga-
tala sem vinnur með Orville í
Kramhúsinu. Sagatala er
jafnframt trommumeistari
Matam ballettsins í Guinea.
Tromman er skemmtilegt
hljóðfæri sem eykur einbeit-
ingu og tilfinningu fyrir rhyt-
ma. Námskeið fyrir alla ald-
urshópa. Skráning á þessi
námskeið er í síma 848-5366
eða á heimasíðunni puls-
inn.is.
VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
Óbærilegt starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli?
Algjörir naglar
þessir smiðir!
Verslunin
Mangó teng-
ist ekki fíkni-
efnamáli
Verslunin Mangó viðHafnargötu tengistekki stóru fíkniefna-
máli sem lögreglan í Kefla-
vík hefur síðustu vikur
unnið að rannsókn að, en
eigendur verslunarinnar
segjast hafa orðið fyrir
miklu ónæði og skaða
vegna þráláts orðróms um
aðild verslunarinnar að
málinu. Adam Ingason eig-
andi Mangó sagði í samtali
við Víkurfréttir að hann
hafi orðið fyrir miklu
ónæði vegna þessa þar sem
fólk væri að hringja og
spyrja hvenær verslunin
lokaði. „Það er greinilegt að
Gróa á leiti hefur svo sann-
arlega komist af stað í þessu
máli og að sjálfsögðu skað-
ar það okkur þegar verslun
okkar er sögð tengjast
fíkniefnaviðskiptum. Þessar
sögusagnir eiga sér enga
stoð í raunveruleikanum.“
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 13:46 Page 8