Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 19. FEBRÚAR 2004 I 17
Hvernig líturðu á Helguvíkur-
svæðið í heild sinni?
Ég lít á það sem okkar björtustu
framtíð í atvinnumálum.
Nú hefur starfsemi Varnarliðs-
ins verið töluvert í fréttum
undanfarið. Hverja telurðu
framtíð Varnarliðsins vera?
Ég hef nú enga trú á því að varn-
arliðið sé að fara. En það er al-
veg ljóst að það hefur verið sam-
dráttur. Það verða hugsanlega
einhverjar breytingar á eðli og
starfsemi stöðvarinnar, en það
verður tíminn að leiða í ljós.
Reykjanesbæjarskiltið er um-
deilt. Hvernig lítur þú á hlut-
verk skiltisins og tímasetningu
uppsetningarinnar?
Það má alltaf deila um tímasetn-
inguna. En „bæjarhlið“ var eitt af
stefnumálum Sjálfstæðisflokks-
ins við síðustu kosningar. Ég
verða að segja það að ég er mjög
ánægð með hvernig til hefur tek-
ist með hönnunina á hliði
Reykjanesbæjar og finnst það
smekklegt. Ég verð ekki vör við
annað en að fólk sé almennt
ánægt með þessa umhverfisbót.
Hvernig hefur samstarfið við
minnihlutann gengið?
Ég get ekki kvartað undan því.
Auðvitað koma upp mál þar sem
minnihlutinn veitir viðnám og
það er náttúrulega þeirra hlut-
verk. En minnihlutinn spilar líka
með ef þeim líst vel á málin, það
eru ekki svo mörg mál sem eru
ágreiningsmál.
En nær minnihlutinn einhverj-
um málum í gegn?
Já það hefur komið fyrir.
Hvernig líður þér með að vera
orðin fimmtug?
Bara mjög vel verð ég að segja.
Oft er talað um að einstakling-
ar sem fagna tímamótaafmæl-
um líti yfir farin veg. Gerðir þú
það?
Já það er svo skrýtið. Þetta eru
náttúrulega ákveðin tímamót í
lífi manns og ég verð að segja að
ég leit yfir farin veg. Það er allt í
lagi að staldra við og sjá hvað
maður hefur verið að gera - það
hafa allir gott af því tel ég.
ðtali:
Björk Guðjónsdóttir ásamt eiginmanni sínum,
Ottó Jörgensen, og dóttur sinni, Júlíu.
Í bæjarstjórninni á
þriðjudaginn.
Texti og myndir:
Jónannes Kr.
Kristjánsson
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 15:34 Page 17