Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið
NJARÐVÍK-HAUKAR
Í kvöld mun reyna á Njarðvík-
inga fyrir alvöru þegar þeir fá
Hauka í heimsókn. Haukarnir
hafa verið á mjög góðri siglingu
að undanförnu þar sem þeir hafa
unnið sex af síðustu sjö leikjum
sínum og eru nú komnir upp að
hlið Njarðvíkinga og geta velt
þeim úr fjórða sætinu með sigri.
Njarðvíkingar eiga eflaust eitt-
hvað í pokahorninu og eru ekki
auðunnir í ljónagryfjunni þótt á
ýmsu hafi gengið að undanförnu.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, segir leikinn vera
mjög mikilvægan fyrir bæði lið.
„Þetta verður hörkuleikur þar
sem Haukarnir eru búnir að vera
að spila mjög vel að undanförnu,
en við verðum bara að passa upp
á boltann í okkar sóknum og vera
einbeittari. Menn eru staðráðnir í
að bæta fyrir frammistöðuna í
síðasta leik, en við verðum að
komast á beinu brautina hvað úr
hverju þar sem nú fer hver að
verða síðastur.“
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK
Þessi leikur sem fer fram annað
kvöld skiptir miklu fyrir bæði lið
þar sem Grindvíkingar eru að
berjast um deildarmeistaratitilinn
við Snæfellinga og Keflvíkingar
vilja án efa tryggja sér þriðja sæt-
ið. Bæði liðin hafa hikstað nokk-
uð undanfarnar vikur og tapað
leikjum að óþörfu, en enginn
þarf að efast um að liðin eru tvö
af sterkustu liðum deildarinnar
og er óhætt að lofa hörkuleik þar
sem ekkert verður gefið eftir og
ef að líkum lætur munu stuðn-
ingsmenn liðanna ekki láta sig
vanta á leikinn.
Friðrik Ingi, þjálfari Grindavíkur,
sagðist hlakka til leiksins og
sagði alltaf skemmtilega
stemmningu myndast í kringum
leiki þessara liða. „Það er eitt-
hvað að ef menn ná ekki að gíra
sig upp fyrir þennan leik. Annars
þurfum við að einbeita okkur að
varnarleiknum og að hirða frá-
köstin ásamt því að reyna að
stjórna hraðanum í leiknum. Svo
er bara að leggja sig fram og
berjast!“
Falur hjá Keflavík leggur mikla
áherslu á að liðið vinni alla leiki
sem eftir eru til að styrkja stöðu
sína fyrir úrslitakeppnina. „Við
verðum að spila eins og við eig-
um að gera. Ekki eins og við
spiluðum á Sauðárkróki um dag-
inn. Við munum reyna að halda
hraðanum uppi og svo verður
Fannar vonandi orðinn leikfær og
við búumst frekar við því en
hinu.“
KEFLAVÍK-KFÍ
Þessum leik hefur verið frestað
tvisvar og er nú settur á laugar-
dag. Næsta auðvelt er að lofa ör-
uggum heimasigri þar sem ekk-
ert íslenskt lið hefur sótt stig til
Keflavíkur í rúmlega 30 leiki. Þá
eru Ísfirðingar ekki manna lík-
legastir til að breyta út af þeim
vana þar sem þeir hafa verið við
botn deildarinnar í allan vetur.
Falur Harðarson segir að sínir
menn muni ekki vanmeta Ísfirð-
ingana og mæta með sitt sterkas-
ta lið. „Við megum ekki við því
að missa stig og munum því ekki
senda neitt varalið á völlinn þó
að þetta verði annar leikur okkar
á tveimur dögum.“
GRINDAVÍK-ÍS
Grindavíkurstúlkur þurfa að vinna þennan leik
sem fer fram á laugardaginn þar sem þær eru að
berjast við Njarðvíkinga um laust sæti í undanúr-
slitunum, en Stúdínur eru engin lömb að leika sér
við. Grindvíkingar unnu síðustu viðureign lið-
anna, en síðan hefur bandarískur leikmaður geng-
ið til liðs við ÍS og gæti það skipt sköpum.
Pétur Guðmundsson, þjálfari Grindvíkinga, segir
stemmninguna í sínu liði góða fyrir leikinn og að
allir leikmenn séu heilir. „Þær eru komnar með
nýjan leikmann sem er góð þriggja stiga skytta og
við verðum að hafa góðar gætur á henni og Öldu
Leif. Við erum ekkert hrædd fyrir leikinn og ætl-
um okkur að halda 4. sætinu.“
KEFLAVÍK-KR
Keflavíkurstúlkur eru í algjörum sérflokki í deild-
inni. Þær hafa mannskap til að leggja hvaða lið
sem er að velli og má segja að hægt sé að bóka
sigur þeirra ef þær mæta reiðubúnar til leiks, enda
stenst þeim enginn snúning þegar þær komast á
beinu brautina í leikjum. KR-liðið er auðvitað
sterkt líka og hefur góða einstaklinga innan sinna
raða sem eru eflaust meira en tilbúnar til að hefna
fyrir ófarirnar gegn Keflvíkingum í bikarúrslitun-
um um daginn.
Anna María Sveinsdóttir, reyndasti leikmaður
Keflavíkurliðsins, segir ekkert anað en sigur
koma til greina því þær ætli sér að tryggja sér
toppsætið í deildinni. „Við ætlum okkur að spila
betur en síðast þegar liðin mættust og sýna okkar
rétta andlit. Við höfum yfirleitt ekki verið að spila
eins vel og við getum í vetur þannig að við eigum
enn mikið inni og við vonumst bara til þess að við
séum að fara að toppa á réttum tíma.“
ÍR-NJARÐVÍK
Njarðvíkurstúlkur þurfa aldeilis að fara að herða
róðurinn ef þær ætla að komast í úrslitakeppnina
en hvorki hefur rekið né gengið hjá þeim að und-
anförnu. ÍR er líka í ákveðinni krísu og eru næsta
öruggar um að falla niður um deild á ný, en
Njarðvíkingar verða að mæta til leiks tilbúnar að
klára dæmið og vonast eftir hagstæðum úrslitum í
öðrum leikjum.
Jón Júlíus Árnason, þjálfari Njarðvíkinga, er sig-
urviss fyrir leikinn, en segir þennan leik munu
markast af úrslitunum í leik Grindvíkinga og
Njarðvíkinga sem fór fram í gær, eftir að þetta
blað fór í prent. „Ef við töpum gegn Grindavík
mun þessi leikur í sjálfu sér ekki skipta máli þar
sem við munum ekki eiga séns á fjórða sætinu og
ÍR eru fallnar hvort sem er. En það er alveg pott-
þétt að við vinnum þennan leik.“
■ INTERSPORT-DEILDIN Í KÖRFUKNATTLEIK
■ 1. DEILD KVENNA Í KÖRFUKNATTLEIK
FANNAR GEGN
GRINDAVÍK?
Magnús Hauksson kenn-ir júdó í Vogum áVatnsleysuströnd og
eru tæplega 30 manns sem
æfa. Magnús er með svart belti
í júdó og hefur þjálfað frá ár-
inu 1996. Að sögn Magnúsar
leggur hann áherslu á að
kenna júdó sem keppnisíþrótt.
„Júdóið byggist á að læra
brögð, fléttur og lesa andstæð-
inginn. Ég hef aldrei lagt
áherslu á sjálfsvarnarhlutann,
en hann er að sjálfsögðu til
staðar,“ segir Haukur. Dóttir
Magnúsar, Katrín æfir hjá
honum en hún er tvöfaldur Ís-
landsmeistari unglinga í júdó.
Það var tilkomumikið að sjá
feðginin takast aðeins á í æf-
ingasalnum í Vogum og það er
greinilegt að iðkendurnir
kunna að detta því Magnús
skellti dóttur sinni í gólfið. Í
framhaldinu náði hún að skella
pabba sínum.
Hrafn Helgason er einn þeirra
sem æfir júdó hjá Magnúsi, en
hann hefur æft síðustu 7 ár. Í
samtali við blaðamann sagði
Magnús að hann ætlaði sér að
gera Hrafn að Íslandsmeistara í
júdó og var Hrafn ánægður með
það markmið. „Ég æfi með það í
huga,“ sagði Hrafn, en næsta
stórmót er í apríl næstkomandi.
Það er svo sannarlega tilefni til
að fylgjast með þessum vösku
júdóiðkendum í Vogunum.
Feðgin takast á
í Júdó í Vogum
VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 14:03 Page 22