Víkurfréttir - 19.02.2004, Síða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ígrein sem Pétur BreiðfjörðReynisson ritar og sendir tilVíkurfrétta um snjómokst-
ur í Grindavík er farið hörðum
orðum um framkvæmdina og
ófærð á vegum bæjarins.
Á síðasta kjörtímabili var allur
búnaður Grindavíkurbæjar seldur
af þáverandi meirihluta og
ákveðið að leita til verktaka í
bænum um snjóhreinsun þegar
það ætti við. Svo er gert og sjá
verktakar alfarið um þessa vinnu.
Varðandi snjómokstur síðastlið-
inn föstudag þá hófst hann um
kl. 05.00 um morguninn og stóð
fram eftir degi. Þegar mest var
voru fjögur tæki notuð við
hreinsun gatna. Var það mat
starfmanna bæjarins að ekki
þyrfti fleiri tæki til hreinsunar.
Fyrir kl.08.00 voru allar helstu
leiðir bæjarins ruddar en ekki
tókst fyrr en seinna um daginn
að hreinsa aðrar götur. Varðandi
hreinsun gangstétta þá skal tekið
undir að hreinsun þeirra er ábóta-
vant vegna tækjaskorts til að ann-
ast þau verk. Sé ábending Péturs
hins vegar í þá átt að verktakar
bæjarins séu ekki að sinna þess-
um verkum sem þeim eru falin
sem skyldi væri rétt að það kæmi
fram og munu bæjaryfirvöld
bregðast við slíkri kvörtun.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu barst enginn kvörtun frá
íbúum Grindavíkur föstudaginn
6. febrúar s.l. Ekki er heldur vit-
að til þess að vegfarendur hafi
ekki komist leiðar sinnar þrátt
fyrir að allar götur væru ekki
greiðfærar.
Varðandi misskilning Péturs um
mismunandi laun bæjarfulltrúa
þá er honum hér með boðið að
kynna sér þau mál á skrifstofu
bæjarins þannig að rétt verði með
farið í framtíðinni en svo er að
allir bæjarfulltrúar hafa sömu
þóknanir fyrir störf í þágu bæjar-
félagsins.
Kveðja.
Ólafur Örn Ólafsson
Bæjarstjóri.
E ins og margir bæjarbúarer ég fokillur út í bæjar-yfirvöld út af því hvern-
ig staðið er að snjómokstri í
Grindavík. Föstudaginn 6.
febrúar s.l. fór ég í vinnu eins
og margir bæjarbúar kl 08:00.
Má segja að þá hafi verið búið
að gera helstu umferðargötur
hálffærar fyrir þá sem kunna
að keyra í snjó en þeir sem ekki
eru jafnfærir um að keyra í
snjó urðu að ganga eða fá far
hjá öðrum.
Þeir sem búa í götum út frá aðal-
umferðargötunum voru öllu
óheppnari því þær götur var ekki
búið að ryðja og í kaupbæti var
búið að ryðja fyrir þær götur
þannig að annaðhvort urðu íbúar
að keyra í gegn um ruðningana
eða fara að moka sig inn á aðal-
götuna. Á aðalgötu bæjarins,
Víkurbrautinni var snjó rutt inn á
gangstéttir og ekkert hugsað um
að moka gangstéttirnar. Börn
sem voru á leið í skóla eða frá
skóla upp í íþróttahús þurftu að
ganga á götunni. Nú svo þegar að
loksins fór að rigna mynduðust
mikil klakabúnt um allar götur
og gangstéttar sökum þess að
ekki hafi verið mokað nógu vel,
en sem betur í þetta sinn hafa
ekki orðið nein slys svo að ég viti
til.
Allir sem ég hef hitt frá því á
föstudag hafa minnst á þessar
hörmungarþjónustu hjá bænum
og kvartað yfir því hvernig er að
komast um götur bæjarins. Sá ég
mig knúinn til að láta í mér heyra
varðandi þetta mál því ef enginn
segir neitt þá gerist ekki neitt.
Íbúar Grindavíkur borga hæstu
mögulegu útsvarsprósentu á
landinu að auki fengu fasteigna-
eigendur ,,glaðning’’ í pósti um
daginn þegar að fasteignagjöldin
komu inn um lúgur fólks með til-
heyrandi hækkunum sem þeim
fylgdu. Á þessum tímum þegar
þessir háu herrar sem bænum
stjórna þiggja verulega góðar
launahækkanir á kjörtímabilinu
(að undanskyldum minnihlutan-
um) skera þeir niður og spara til
alla mögulega þjónustu sem bæj-
arbúar eiga að njóta og fá fyrir
gjöldin sem þeir greiða.
Sparnaður bæjarins til snjó-
mokstur er þannig háttað og hef-
ur verið það þessa fáu snjódaga
sem hafa komið:
1. Íbúar eiga að nota bíla sína til
að þjappa niður snjóinn svo að
ekki þurfi að moka.
2. Ef séð er fram á að bílar bæj-
arins nái ekki að þjappa niður
ófærðina skal kalla til 1 - 2 gröf-
ur og athuga hvort það dugi til.
3. Ef 1 - 2 gröfur duga ekki til að
halda götunum opnum þá kalla
út björgunarsveit til að hjálpa
fólki til að komast ferðar sinnar
þar til að gröfurnar hafa lokið
störfum sínum.
Áður fyrr voru snjómokstursmál-
in í mun betri höndum, góður
starfsmaður áhaldahússins stjórn-
aði mokstrinum og vann við
hann sjálfur. Hann kallaði til veg-
hefil sem staðsettur er í Grinda-
vík til að moka aðalumferðargöt-
una , á sama tíma voru flestar
gröfur bæjarins notaðar við að
fara ,,minni´´ göturnar og starfs-
maður áhaldahússins á þeim tíma
notaði dráttarvél bæjarins til að
hreinsa frá innkeyrslum húsa.
Ekki var hægt að kvarta yf ir
þessum vinnubrögðum og oftast
hægt að treysta á að maður
komist til vinnu án mikilla vand-
ræða.
Ég hvet bæjaryfirvöld til þess að
láta af endalausum sparnaði á
þjónustu við íbúa Grindavíkur og
fara að haga snjómokstri á þann
veg sem var svo að ekki hljótist
tjón eða slys að völdum slæmrar
færðar innanbæjar. Það er orðið
óþolandi að horfa uppá þetta
hvernig núverandi ástand er og
þá ekki bara í snjómokstursmál-
um !
Með von um batnandi þjónustu
við íbúa Grindavíkur
Pétur Breiðfjörð Reynisson
➤ Í B Ú I Í G R I N D A V Í K S K R I F A R
➤ S V A R B Æ J A R S T J Ó R A N S
Framkvæmd snjó-
moksturs í Grindavík
Er bærinn að stela úr buddu minni?
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 14:52 Page 18