Víkurfréttir - 19.02.2004, Qupperneq 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þegar ég skrifaði í Víkur-fréttir 22.jan. sl. greininaDebet og Kredit sem var
um fjármál Reykjanesbæjar,
kom m.a. fram í henni eftirfar-
andi: „Síðan væri það alveg
eftir öðru að hækka fasteigna-
gjöldin til að kóróna þessa fjöl-
skyldustefnu eins og það er
kallað hjá bæjaryfirvöldum.“
Því miður reyndust þetta orð
að sönnu.
Mánudagurinn svarti, 9. febrúar
rann upp en þá barst fasteigna-
gjaldaseðillinn með pósti til bæj-
arbúa sem innihélt staðfestingu á
að fasteignagjöldin í heild hefðu
stórhækkað þ.e.a.s. um rúm 27%
á milli ára. Inn í þessum fast-
eignagjöldum er fasteignaskatt-
urinn sem hækkaði en náði ekki
fullum 15% vegna breytinga á
byggingarkostnaði og afskriftum.
Það er kaldhæðni örlaganna að
einn af borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins Kjartan Magn-
ússon lét eftir sér hafa í Morgun-
blaðinu 9. febr. sl. að R-listinn
ætlaði hvergi að slaka á klónni í
skattheimtu sinni eins og Reyk-
víkingar gætu séð ef þeir bæru
saman álagningarseðla á milli
ára.
Hvað segir meirihluti Sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar um þetta hjá samflokks-
manni sínum í Reykjavík en þar
voru hækkanir á fasteignagjöld-
um töluvert minni en hér í bæ?
Nú væri ráð að minnihlutinn í
bæjarstjórn léti í sér heyra þar
sem þessar hækkanir hafa aukist
gífurlega umfram almennar
launa- og verðlagshækkanir. Í
fyrra hækkaði vísitala neyslu-
verðs um 2.7% og byggingarvísi-
tala um 3.3%.
Þessi 27% hækkun á fasteigna-
gjöldum bætir ekki ástandið hér
almennt né er hvetjandi til að efla
menn til dáða.
Baldvin Nielsen
Reykjanesbæ
Húsfyllir var í Stapa sl. fimmtudagskvöldþegar þar voru haldnir tónleikar tilstyrktar og heiðurs Ómari Jóhannssyni,
revíuhöfundi og sagnamanni. Ómar hefur átt í
harðri baráttu við krabbamein síðustu mánuði.
Nokkrir vinir Ómars vildu sýna honum samhug
í verki og úr varð að haldnir voru tónleikar í
Stapa í kvöld. Fluttur var söngur úr revíum eftir
Ómar, auk þess sem listamenn komu fram með
frumsamið efni eða eftir aðra. Hápunktur
kvöldsins var þó þegar Ómar kom sjálfur á svið
og flutti nýtt efni í anda revía hans.Annars vegar
var það bragur um golfara og hins vegar þann
aðila sem hingað til hefur sloppið við að vera
skotspónn Ómars í revíum, Hjálmar Árnason al-
þingismann. Bragurinn er svona:
ÞINGMAÐURINN
Það var einu sinni þingmaður
sem fékk á heilann bíl,
heilann bíl, bíl, bíl, heilann vetnisknúinn bíl.
Og kennslukonan, konan hans
hún sagði honum að semja um bílinn stíl,
semja stíl, stíl, stíl um vetnisknúinn bíl.
Svo fóru þau í bíltúr,
út á Snæfellsnes,
Snæfellsnes, nes, nes, og um ég þetta les.
Og hittu gamlan félaga,
sem er nú alveg spes,
alveg spes, spes, spes, er nú alveg spes.
Sá maður var að mylja
og meitla niður grjót
niður grjót, grjót, grjót og rörabútadót.
Svo verður þetta sýnt
við næsta ættarmót,
ættarmót, mót, mót, næsta Johnsen ættarmót.
En Örlygsson úr Njarðvík
Vildi sýna með,
sýna með, með, með, það hefði aldrei skeð.
Því að raða legokubbum
er ansi illa séð,
illa séð, séð, séð, við listamannatréð.
Ómari var fagnað vel og lengi. Talið er að um 400
manns hafi verið í Stapanum í kvöld og stóð fólkið
allt upp og fagnaði Ómari með lófaklappi. Að end-
ingu kastaði Ómar persónulegri kveðju á alla með
handabandi eða kossi.
Ómar sagðist eftir skemmtunina hafa skemmt sér
konunglega. Hann var ánægður að sjá hversu marg-
ir hafi mætt í Stapann. Það féllu gleðitár en Ómar er
sannfærður um að sá hlýhugur sem honum var
sýndur hafi gefið sér aukinn styrk í baráttunni.
Kóróna fjölskyldustefnunnar
Heiðruðu Ómar Jóhanns
með húsfylli í Stapa
➤ S U Ð U R N E S J A M E N N S Ý N D U S A M H U G Í V E R K I
Fjölmargir heilsuðu uppá Ómar að
tónleikunum loknum og meðal þeirra var
Þorsteinn Joð, en eins og frægt er orðið var
Ómar fyrsti einstaklingurinn sem vann milljón
í þáttunum „Viltu vinna milljón?“ sem
Þorsteinn Joð stýrði.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 13. febrúar
síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 20. febrúar kl. 16.00.
Sigurður Friðriksson,
Sigurveig Sigurðardóttir, Gunnar Þór Þorkelsson,
Þóra Guðný Sigurðardóttir, Gunnar Marel Eggertsson,
tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Ragnheiður Þórisdóttir,
Ránarvöllum 3,
Keflavík,
✝
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 15:20 Page 20