Víkurfréttir - 02.12.2004, Page 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
M
EN
N
IN
G
Síðasta kennsludag er hin hefðbundna dimission á sal Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja þar sem útskriftarnem-
endur kveðja kennara sína og
skólann. Að þessu sinni birt-
ust á sviðinu sögupersónur úr
sögum, bókum, leikritum og
bíómyndum og mátti þar sjá
Karíus og Baktus, James Bond,
Galdrakonuna í Oz og fleiri.
Nemendurnir sýndu leikna
heimildarmynd um kennara
sína þar sem farið var yfir eft-
irminnilegustu atburði annar-
innar auk þess sem fjallað var
um harðvítuga valdabaráttu
innan kennarahópsins. Útskrifta-
nemar veittu síðan kennurum
viðurkenninngar; valinn var
svalasti kennarinn, mesti garp-
urinn, best klæddi kennarinn
o.s.frv. Að lokum var svo besti
kennarinn valinn og að þessu
sinni hlaut Gunnlaugur Sigurðs-
son, stærðfræðikennari og gítar-
eigandi þann titil.
8 Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Frægar sögupersónur á Dimission
„Hann heitir Prins Brynleifsson og er drengur," sagði Lilja Magnúsdóttir þar sem hún var með Chiahuahua
hundinn sinn í myndlykla afgreiðslu Víkurfrétta á dögunum. Prins var í sérstakri körfu og virtist láta
mjög vel að dvölinni þar. Hinsvegar þegar flassljós myndavélarinnar fór að blikka þá fór Prins að skjálfa
og stökk í fangið á Lilju. „Hann er afskaplega skemmtilegur og geltir sjaldan. Hann leikur sér mikið, er
duglegur og stórskemmtilegur persónuleiki,” segir Lilja og á meðan hjúfrar Prins sig upp að henni, en er
um leið forvitinn að fræðast aðeins meira um fólkið í kringum sig. „Hann er frá Dalsmynni,” segir Lilja en
Prins verður ársgamall á gamlársdag.
Chiahuahua-drengur fær sér Digital Ísland
Atlantsolía hyggst reisa sjálfsafgreiðslu-bensínstöð við Biðskýlið í Njarðvík að Hólagötu 22. Að sögn Geirs Sæmunds-
sonar framkvæmdastjóra Atlantsolíu hafa fram-
kvæmdir verið boðnar út og standa viðræður
við verktaka yfir. Gert er ráð fyrir að verktími
framkvæmdanna sé um þrír mánuðir.
Geir segir að fyrirtækið hlakki til að koma inn
á markaðinn í Reykjanesbæ. „Við erum komnir
með tank í Sandgerði fyrir báta og höfum sótt
um lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð í Sandgerði. Við
höfum verið að sækja um lóðir undir stöðvar
víða um land og okkur hefur verið tekið mjög
vel.”
Geir segir að stuðningur almennings við fyrir-
tækið sé mikill og að bensínsala hafi margfaldast
á stöðvum félagsins síðustu vikur. „Stuðningur
almennings er mikill enda byggist uppbygging
eins og við erum að fara útí á stuðningi almenn-
ings,” sagði Geir Sæmundsson framkvæmda-
stjóri Atlantsolíu í samtali við Víkurfréttir.
Atlantsolía við hlið Biðskýlisins í Njarðvík
Síðasta kennsludag er hin hefðbundna dimission á sal Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja þar sem útskriftarnemendur kveðja kennara sína
og skólann. Að þessu sinni birtust á sviðinu sögupersónur úr sögum,
bókum, leikritum og bíómyndum og mátti þar sjá Karíus og Baktus,
James Bond, Galdrakonuna í Oz og fleiri.