Víkurfréttir - 02.12.2004, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 2. DESEMBER 2004 I 15
stuttar
F R É T T I R
VF
-L
JÓ
SM
YN
D
IR
: Þ
O
RS
TE
IN
N
G
U
N
N
AR
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
Fimm fiskikörum fullum af allskyns rusli var hent á urðunarstað fyrir líf-
rænan úrgang við Fitjabakka
í Njarðvík á dögunum. Urðun-
arstaðurinn er einungis fyrir
jarðveg og hefur verið töluvert
notaður fyrir mold. Á skilti við
urðunarstaðinn er skýrt tekið
fram að ekki megi henda öðru
en lífrænum úrgangi á svæðið.
Að sögn Hólmars Magn ús-
sonar starfsmanns í þjónustu-
deild Reykjanesbæjar er þetta
litið alvarlegum augum.
„Málið snýst um það að okkar
mati að sum fyrirtæki eru að
reyna að komast hjá því að
greiða fyrir úrgang til Kölku
með því að henda rusl inu á
þetta svæði,” segir Hólmar. Að-
spurður segir hann það ekki
hafa oft komið fyrir að rusli
hafi verið hent á svæðið. „Það
kemur einstaka sinnum fyrir.
Um daginn gómuðum við einn
og skikkuðum hann til að taka
ruslið aftur.”
Hólmar segir að reynt hafi verið
að finna sökudólginn með því
að skoða ruslið, en engin um-
merki hafi fundist um hver hafi
verið að verki. „Þetta svæði er
eingöngu fyrir jarðveg, en ekk-
ert sorp. Við þurfum að hreinsa
svæðið og koma rusl inu til
Kölku,” sagði Hólmar í samtali
við Víkurfréttir.
Rusli hent á urðunarstað
fyrir lífrænan úrgang
Fimm fiskikörum fullum af rusli hefur verið hent á svæðinu.
Greinargóðar merkingar eru um að ekki megi henda öðru en lífrænum úrgangi.
8 Óprúttnir aðilar henda fullum fiskikörum af rusli í Njarðvík:
- Sum fyrirtæki eru að reyna að komast hjá því að greiða fyrir úrgang til Kölku
Félagar í Ættfræðifélag-inu ætla að hittast á Bókasafni Reykjanes-
bæjar þriðjudagskvöldið 7.
desember n.k. kl. 20. Allir
áhugamenn um ættfræði vel-
komnir. Nánari upplýsingar
gefur Einar Ingimundarson
í síma 421 1407.
Ættfræðifélagið
með fund
Fréttavaktin í síma
898 2222
allan sólarhringinn
Efni til fréttadeildar
berist á tölvupósti á
netfangið:
hilmar@vf.is