Víkurfréttir - 02.12.2004, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Skartgripasýning félags íslenskra gullsmiða:
Að al fund ur FFHS var haldinn fimmtudaginn 25. nóvember síðast-
liðinn á sal Heiðarskóla. Góð
mæting var frá foreldrum og
stjórnendum skólans. Auk hefð-
bundinna aðalfundarstarfa
flutti Jóhannes Kristbjörnsson
lögreglumaður sem starfar að
forvörnum hjá Lögreglunni í
Reykjanesbæ fyrirlestur. Sagði
hann m.a. frá athyglisverðu
verkefni innan lögreglunnar
sem felst í því að úthluta hverri
vakt lög regl unn ar ákveð ið
skólasvæði til eftirlits í samráði
við foreldra. Munu foreldrar á
skólasvæðinu vera í nánu sam-
starfi við sína vakt og taka þátt
í eftirliti og veita upplýsingar
um allt það sem kann að nýtast
lögreglunni í baráttunni við af-
brot og fíkniefni.
Ný stjórn og formaður voru
kjörinn á fundinum. Viktor
B. Kjartansson var kjörinn for-
maður og aðrir í stjórn Gísli V.
Harðarson, Ingibjörg Frederik-
sen, Helena Guðjónsdóttir og
Kristján F. Geirsson. Í varastjórn
voru kjörnir Júlíus Steinþórsson
og Smári Helgason.
Ný stjórn Foreldra-
félags Heiðarskóla
Ók upp á hringtorg og hafnaði á ljósastaur
Skömmu fyrir hádegi á laugardag var lögreglunni í Keflavík tilkynnt
að bifreið hefði verið ekið á ljósastaur við gatnamót Hafnargötu og
Faxabrautar í Reykjanesbæ. Bifreiðin hafnaði uppi á hringtorgi og
endaði ferð sína á ljósastaurnum. Ökumaðurinn, sem var vankaður
eftir atburðinn, var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja til læknisskoðunar. Reyndist hann ómeiddur en bifreiðin
var flutt af vettvangi með kranabifreið. Skömmu síðar var tilkynnt
um árekstur milli bifreiða á gatnamótum Hafnargötu og Tjarnargötu í
Reykjanesbæ. Slys urðu ekki á fólki.
Um þessar mundir er Félag ís-lenskra gullsmiða 80 ára og er félagið meðal elstu starfandi fé-
laga á Íslandi í dag. Í tilefni afmælisins
er haldin skartgripasýning í Gerðasafni í
Kópavogi þar sem um 30 gullsmiðir sýna
skartgripi sína.
Fjóla Þorkellsdóttir gullsmiður í Reykja-
nesbæ sýnir skartgripi á sýningunni, en
verk eftir hana prýðir boðskort sem sent
var út í tilefni sýningarinnar. „Ég fékk
þann heiður að skartgripur frá mér prýddi
boðskortið og það var náttúrulega mjög
gaman. Á sýningunni eru nokkrir gripir
eftir mig og ég vil bara hvetja alla sem
áhuga hafa á skartgripum að skoða sýning-
una,” sagði Fjóla gullsmiður í samtali við
Víkurfréttir.
Sýningin stendur yfir til 19. desember.
VERK EFTIR FJÓLU
Á BOÐSKORTINU