Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.12.2004, Síða 23

Víkurfréttir - 02.12.2004, Síða 23
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 2. DESEMBER 2004 I 23 eftir Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is Síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til landa utan Evrópu er föstudagurinn á jólapökkum til Evrópu er mánudagurinn á jólapökkum innanlands er þriðjudagurinn 3.12. 13.12. 21.12. www.postur.isFinndu pósthúsið næst þér á Komdu tímanlega ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - IS P 25 98 4 1 2/ 20 04 með jólapakkana var undir samninga um Stál- pípuverksmiðju í Helguvík og var Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra meðal viðstaddra. Samkvæmt áætlunum sem uppi á borðinu voru á þessum tíma var gert ráð fyrir verksmiðja IPT yrði gangsett í byrjun árs 2005. Miðað við nýjustu áætl- anir fyrirtækisins er í fyrsta lagi gert ráð fyrir að verksmiðjan taki til starfa eftir tvö ár. Forstjórinn segir undir- búningstímann langan Frá því skrifað var undir samn- ingana á veitingahúsinu Ránni fyrir tveimur og hálfu ári hafa verið gerðar miklar væntingar til stálpípuverksmiðjunnar. Fyrir Suðurnesin skiptir tilkoma slíkrar verksmiðju miklu máli enda er gert ráð fyrir að þar starfi á milli 200 og 240 manns. Í áætlunum fyrirtækisins er gert ráð fyrir að verksmiðjan verði um 18 þúsund fermetrar að stærð og að þar verði árlega framleidd um 175 þúsund tonn af stálpípum. Heildarkostnaður verkefnisins er um 85 milljónir dala eða um 5,5 milljarðar ís- lenskra króna. Ljóst er að margir hafa misst trúna á verkefninu. Barry Bern- stein forstjóri IPT segir hins- vegar að þegar fyrirtækið reisti stálpípuverksmiðju í Eistlandi fyrir nokkrum árum hafi það verkefni tekið lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. Í stað tveggja ára undirbúnings- tíma tók undirbúningur þess verkefnis fjögur ár. Þreytu farið að gæta Heimildir Víkurfrétta herma að innan Reykjanesbæjar sé farið gæta ákveðinnar þreytu gagn- vart verkefninu og að menn séu farnir að slá ákveðna varnagla. Áfram er unnið að markaðssetn- ingu Helguvíkursvæðisins og standa yfir viðræður við nokkra aðila sem áhuga hafa á að koma þar upp iðnaði. Helguvíkur- svæðið er mjög stórt og eru bundnar miklar vonir við það, enda eitt besta iðnaðarsvæði á landinu þegar tekið er tillit til hafnaraðstöðu og nálægðar við alþjóðaflugvöll. Á næstu mán- uðum mun það skýrast hvort International Pipe and Tube mun takast að reisa í Helguvík stálpípuverksmiðju. Barry Bern- stein forstjóri fyrirtækisins er bjartsýnn á að svo verði. Enn óvissa með stálpípuverksmiðjuna Á næstu mánuðum mun það skýrast hvort International Pipe and Tube mun takast að reisa í Helguvík stálpípu- verksmiðju. Barry Bernstein forstjóri fyrirtækisins er bjart- sýnn á að svo verði. Fulltrúar ITP, Reykjanesbæjar og Íslenskra aðalverktaka á fyrirhugaðri lóð stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík í desember fyrir réttu ári.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.