Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.01.2005, Side 8

Víkurfréttir - 27.01.2005, Side 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Útgefandi: Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamenn: Auglýsingadeild: Útlit, umbrot og prentvistun: Hönnunardeild Víkurfrétta: Prentvinnsla: Dagleg stafræn útgáfa: Skrifstofa Víkurfrétta: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Jóhannes Kr. Kristjánsson (fréttir), sími 421 0004, johannes@vf.is Þorgils Jónsson (fréttir og íþróttir), sími 421 0003, sport@vf.is Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is Jón Björn Ólafsson, sími 421 0014, jbo@vf.is Víkurfréttir ehf. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0011, steini@vf.is Prentsmiðjan Oddi hf. www.vf.is og vikurfrettir.is Stefanía Jónsdóttir, sími 421 0012, stebba@vf.is Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is 8 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15 Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222 ©RITSTJÓRNAR BRÉF Þorgils JónssonB L A Ð A M A Ð U R S K R I F A R Körfuknattleikslið Keflavíkur lauk þátttöku sinni í Bikarkeppni Evrópu á dögunum, en þessir vösku piltar höfðu vakið verð- skuldaða athygli fyrir árangur sinn. Sæti í 8-liða úrslitum keppninnar var í boði, en andstæðing- arnir mættu tilbúnir til leiks og unnu verðskuld- aðan sigur. Ef litið er til íbúafjölda, eins og orðið er þjóðaríþrótt hér á landi, verður þessi árangur enn merkilegri, en hann einskorðast alls ekki við Keflavík eða körfuknattleik. Á Suðurnesjum er íþróttalíf ið í miklum blóma og hafa lið héðan staðið í fremstu röð á flestum sviðum allt frá 7. áratug síð- ustu aldar þegar Gullaldarliðið lék listir sínar á sparkvöllum hér heima og erlendis. Það sem ein- kenndi liðið í þá tíð er það sama og má sjá í hverju íþróttafélagi suður með sjó í dag. Dugnaður, metn- aður og góður liðsandi. Árangurinn lætur ekki á sér standa og enda ótal titlar og viðurkenningar á Suðurnesjum ár hvert. Sérstaka athygli verður þó að vekja á fram-gangi unga fólksins en það er næstum sama hvar drepið er niður. Alls staðar má finna að minnsta kosti eitt af Suðurnesjaliðunum í fremstu röð. Hvort sem er í knattspyrnu, körfuknattleik, júdó, sundi, hestaíþróttum og öllu þar á milli. Fé- lögin hafa unnið mikið og gott starf sem skilar sér í því að óvíða er iðkendafjöldinn meiri og lætur árangurinn því ekki á sér standa. Sá sem þetta skrifar er hvorki fæddur né upp-alinn á svæðinu en hefur fylgst grannt með íþróttum á svæðinu undanfarið og hrifist af allri umgjörð um þær. Íþróttafólkið vinnur í samstarfi við foreldra, styrktaraðila, bæjarfélög og fleiri, enda er allra hagur í því að stunda íþróttir. Sérstaklega að því leyti að löngu er sannað að íþróttir eru besta forvörnin gegn vímuefnum og áfengismisnotkun. Þá er enn ógetið framlags stuðningsmanna liðanna sem mæta á leiki og styðja sitt lið með ráðum og dáð í blíðu og stríðu. Öll eiga liðin sinn fasta kjarna stuðningsmanna, en ekki er á neinn hallað þegar trommusveit Kefla- víkur er skipað þar fremst í flokk. Jafnt í körfu sem fótbolta mæta þessir kappar á völlinn með trommur og lúðra og halda uppi stemmningunni á pöllunum og hafa vakið verðskuldaða athygli á landsvísu. Ættu allir að taka sér þá til fyrirmyndar og mæta á völlinn. Aðstaða er víðast með betra móti á Suður-nesjum og mun enn batna næsta haust þegar Íþróttaakademían í Reykjanesbæ verður að veruleika. Mun hún einungis auka á sóknarfæri þar sem nýtt fólk með ferskar hug- myndir kemur til bæjarins til kennslu og þjálfunar ásamt því að hið góða fólk sem þegar starfar að félögunum mun eiga hægara um vik að sækja sér enn meiri menntun. Framtíðin er afar björt í íþróttalífi Suður-nesja þar sem leiðin virðist einungis liggja upp á við. Skiptir þó öllu máli að almenn- ingur láti sig þessi mál varða og styðji við íþrótta- félögin hvort sem er með beinni þátttöku í starfi eða fjárhagslegum stuðningi. Framtíðin er björt í íþróttalífi Suðurnesja Ágætu Keflvíkingar. Íþróttir eru viðurkennd forvörn og er því mikilvægt að halda börnum og unglingum sem lengst í iðk un þeirra. Ég sem þetta skrifa er í 2. flokks ráði Knat t spy r nu- deild ar Kefla- víkur drengja en það eru drengir á aldrinum 16-19 ára en á þeim árum er mikið brottfall úr íþróttum. Það er ætlun ráðsins að halda vel utan um þennan hóp og reyna að stuðla að því að þessir drengir verði sem lengst í íþróttum og auðvitað er það ekki síður mark- mið að þessir drengir fari alla leið upp í meistaraflokk. Eitt af því sem ákveðið hefur verið er að fara með þá til út- landa þar sem ætlunin er að keppa og æfa. Þetta verkefni kostar mikla peninga og þeim verður að safna. Það er ætlun okkar að ganga í hús í Kefla- vík og selja klósettpappír og verður farið í hvert hús í Kefla- vík og vonandi verður tekið vel á móti drengjunum. Áætlað er að drengirnir fari næstu 3- 4 fimmtu daga (við byrj um fimmtudaginn 03.feb) til að selja og verður Keflavík skipt upp í hverfi. Það er ætlunin að kynna í Víkurfréttum hvaða hverfi verð ur far ið í hvern fimmtudag til að fólk viti hvar við verðum í það og það skiptið. Ekki verð ur það þannig að drengirnir séu með pakkning- arnar með sér heldur getur fólk skráð sig fyrir pakkningum t.d 1 strax og 1 um miðjan mars þar sem áætlunin hljóðar upp á tvær söluferðir fyrir vorið. Það er ætlun okkar að skrifa um hvernig gengur að safna til að fólk geti séð fyrsta keppni flokks- ins gengur því auðvitað er þetta keppi þó hún sé ekki háð á vell- inum. Við verðum með ýmislegt fleira á okkar könnu varðandi þessa ferð þó svo að það verði ekki eins umfangsmikið og þessi söluherferð en all verður það kynnt í Víkurfréttum sem fyrst fyrirtækja styrkir flokkinn. Ekki verður sagt skilið við íbúa Keflavíkur eftir að við höfum safnað fyrir ferðinni. Það munu koma fréttir í Víkurfréttum um gengi flokksins því auðvitað vill fólk fá að fylgjast með þeim flokk sem það styrkti. Ágætu Keflvíkingar, það er von mín að þið takið vel á móti drengjunum og látið þá finna að þeir eigi ykkar stuðning. Einar H Aðalbjörnsson Átak til að sporna gegn brottfalli úr íþróttum - safnað fyrir 2. flokk Keflavíkur Leikskólabörnin í leik-skólanum Holti upp-lifðu skemmti leg an atburð nú á dögunum þegar sex litlir hænuungar brutust út úr eggjum sem leikskólinn fékk frá kjúklingabúi fyrir nokkru. Börn in voru að von um spennt, en þau hafa fylgst með allt frá upphafi og gátu ekki leynt hrifningu sinni þegar ungarnir litu út og sáu um- hverfið í fyrsta sinn. Nú eru ungarnir allir sprækir, borða vel og tísta hátt, en þegar þeir stækka munu þeir eignast gott heimili í sveitinni. Hænuungar í leik- skólanum Holti

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.