Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.02.2005, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 03.02.2005, Blaðsíða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Nem enda fé lag Fjöl-brauta skóla Suð ur-nesja setur upp söng- leikinn „Er tilgangur?” en það var Júlíus Guðmundsson sonur Rúnars Júlíussonar sem skrif- aði handritið að verkinu. Söng- leikurinn var settur upp í Fé- lagsbíói fyrir um 10 árum við góðar undirtektir en Júlli var í hljómsveitinni Pandóru sem var á þeim tíma á barmi heims- frægðar og tónlistin í verkinu var frumsamin. Um 40 nemendur taka þátt í sýningunni og leikstjóri er Jón Marinó Jónsson en hann var að- stoðarleikstjóri söngleiksins um Hljóma sem nemendafélagið setti upp í fyrra. Leikhópurinn hefur komið upp æfinga- og leikaðstöðu í vöru- skemmu 88 hússins þar sem komin er risavaxin leikmynd. Þar hefur einnig verið komið fyrir áhorfendapöllum sem taka meira en 100 manns í sæti. Söng- leikurinn verður frumsýndur 11. febrúar og verður miðasala auglýst síðar. Söngleikur FS í 88 húsinu Undanfarna daga hefur verið gestkvæmt við Fjölbrautaskóla Suðurnesja en Þor-gerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta- málaráðherra, heimsótti skólann nýverið. Í fylgd Þorgerðar voru þau Karl Kristjánsson, deildarstjóri skóla- og símenntunardeildar ráðu- neytisins, Þorbjörg Helga Valdimarsdóttir, ráð- gjafi ráðherra í skólamálum og Oddný Hafberg, verkefnisstjóri. Tilgangur heimsóknarinnar var meðal annars að kynna skýrsluna „Breytt námsskipan til stúdents- prófs-aukin samfella í skólastarfi.” Ráðherra ræddi við stjórnendur, kennara og stjórn nemendafélags- ins. Auk þess skoðuðu gestirnir nýbygginguna og þá sérstaklega raungreinaaðstöðu skólans og fór ráðherra fögrum orðum um skólann og þann anda sem henni fannst í honum ríkja. Einnig komu Framsóknarþingmennirnir Hjálmar Árnason, Dagný Jónsdóttir og Birkir J. Jónsson í heimsókn á dögunum ásamt Suðurnesjamann- inum Eysteini Jónssyni en hann er aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra. Þau kynntu sér aðstöðu skólans og ræddu meðal annars við talsmenn nem- endafélagsins. Gestkvæmt í FS að undanförnu VF -m yn d/ A xe l S ig ur bj ör ns so n • Fj öl br au ta sk ól i S uð ur ne sj a 8 Fjölbrautaskóli Suðurnesja: 8 Kallinn á kassanum BORGARAFUNDUR um mál- efni Reykjanesbrautar verður haldinn næsta mánudag, þann 7. febrúar í Stapanum. Kallinn telur það gríðarlega mikilvægt fyrir íbúa á Suður- nesjum að mæta á fundinn og sýna sömu samstöðu og var á borgarafundinum árið 2000. Samstaða íbúanna skiptir öllu máli - Kallinn ætlar að mæta og hvetur aðra til þess. KRAFA SUÐURNESJA- MANNA er að aftur verði hafist handa við tvöföldun Reykjanes- brautar á þessu ári. Það er nátt- úrulega bara grátlegt að brautin verði hálfkláruð í fleiri mánuði. Það hefur komið fram í máli þingmanna að þeir telji að fjár- magnið sé til staðar - vandinn sé bara að ná því. Kallinn kemur þeim skilaboðum áleiðis til Hjálmars og Jóns G. að halda því áfram og berjast saman sem bræður - þá tekst ætlunarverkið. Á VEFSÍÐU vf.is er hægt að skrá þátttöku á fundinum og hvetur Kallinn alla til að gera slíkt. Það skiptir máli. KALLINN vottar Karen Hilm- arsdóttur og Einari Hafsteini Árnasyni samúð sína vegna andláts dóttur þeirra, Birgittu Hrannar. Viðtalið við foreld- rana á Stöð 2 er eitt það eftir- minnilegasta og erfiðasta sem Kallinn og fjölskylda hans hafa horft á. Myndirnar af Birgittu Hrönn voru fallegar og yfir þeim einhverskonar innri ró og friður. Kallinn styður foreldrana svo sannarlega í þeirra baráttu. OG NÚ FER Kallinn að panta vorið. Febrúar er runninn upp og stutt í að sólin láti finna fyrir sér. Kallinn hlakkar mikið til sumarsins og með vorinu má vel vera að Kallinn skrifi garðyrkju- og veiðipistla í Víkurfréttir þar sem hann er mikill áhugamaður um bæði. MUNIÐ EFTIR BORG- ARAFUNDINU! Kveðja, kallinn@vf.is Samstaða skiptir öllu máli Glerbrot á Hafnargötunni Kona hringdi: Mér finnst til skammar að sjá glerbrot víða um Hafnargöt- una og nágrenni sl. sunnudags- morgun. Þetta er beinlínis hættu- legt og ég hitti unga foreldra með börn á göngu og það er ekki sæmandi að þurfa að þola svona ástand á nýrri Hafnrgöt- unni. Vonandi tekur bærinn þetta til athugunar og reynir að huga að þessu að hreinsa á sunnudagsmorgun þegar margt fólk fer í göngu. Það væri hægt að sleppa því í staðinn á mánu- dagsmorgni. Íb ú a r í H ö f n u m h a f a kvartað til lögreglunnar í Keflavík vegna hraðaksturs vörubifreiða í gegnum Hafn- irnar. Mikil umferð vörubíla er í gegnum Hafnirnar og út að Reykjanesvirkjun vegna virkj- unarframkvæmda. Hámarkshraði á Hafnavegi í gegnum Hafnir er 30 km klukku- stund. Einn vörubifreiðastjóri var kærður fyrir of hraðan akst- urs en hann var mældur á 50 km klukkustund. Tveir vöru- bifreiðastjórar voru áminntir fyrir að aka of hratt. Lögregla mun fylgjast áfram með akstri í gegnum Hafnirnar. LÖGREGLA FYLGIST MEÐ HRAÐAKSTRI Í GEGNUM HAFNIR Ragnheiður Ólafsdóttir miðill og áruteiknari starfar hjá Sálarrannsóknafélagi Suðurnesja þriðjudaginn 8. febrúar. Skúli Lorentsson miðill verður hjá félaginu 9. febrúar. Tímapantanir í símum 421 3348 og 866 0621

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.