Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.05.2005, Side 15

Víkurfréttir - 12.05.2005, Side 15
VÍKURFRÉTTIR I 19. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 12. MAÍ 2005 I 15 Landsbankadeildir karla og kvenna Boltasumarið 2005 -Blaðauki Víkurfrétta Á mánudag rennur upp langþráður dagur fyrir mikinn fjölda Íslendinga þar sem keppni hest að nýju í efstu deildum knattspyrnunnar. Suðurnesjaliðin hafa sinn sess á meðal þeirra bestu sem endranær, en þetta árið tefla Keflavíkurstúlkur fram liði í efstu deild í fyrsta skiptið í mörg ár. Þær tefla fram ungum og efnilegum stúlkum í bland við eldri og reyndari leikmenn og er þeim spáð að enda um miðja deild. Stemmningin er mikil og góð í kringum liðið og er stuðningsfólk þessa dagana að búa sig undir skemmtileg fótboltasumar. Karlaliðin hafa gengist undir miklar mannabreytingar þar sem Keflavík missti flesta sína bestu menn í atvinnumennsku eða í önnur lið og Grindavík missti framherja sína þá Grétar Hjartarson, sem fór til KR og Orra Frey Hjaltalín, sem meiddist illa og verður ekki með í sumar. Þeim er spáð misjöfnu gengi, Grindavík er talið líklegt til að falla, en þeir láta slíkt sem vind um eyru þjóta þar sem þeir hafa áður komið á óvart. Keflvíkingar eru nú með nýjan mann í brúnni, Guðjón nokkurn Þórðarson sem hefur náð góðum árangri með öllum þeim liðum sem hann hefur þjálfað. Sama hvernig fer verður deildin eflaust spennandi fram á síðustu stundu. Skemmtilegt fótboltasumar framundan

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.