Víkurfréttir - 26.05.2005, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Metfjöldi útskrifast frá FS
-95 nemendur ljúka námi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja Með skipulagningu og mikilli áhuga-semi er hægt að ná
frábærum árangri,“ sagði
Jóna Marín Ólafsdóttur, tví-
tug Suðurnesjamær, sem sóp-
aði að sér verðlaunum við út-
skrift vorannar í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Hún var
efst á stúdentsprófinu með
meðaleinkunnina 9,6.
Víkurfréttir tóku hana að tali
rétt fyrir útskriftarferðina hjá
henni en hún ásamt öðrum
nem end um fóru í gær til
Mexíkó.
Jóna Marín útskrifaðist ásamt
95 öðrum nemendum en þetta
var stærsta útskrift skólans frá
upphafi. Hún fékk verðlaun
fyrir framúrskarandi námsár-
angur í íslensku, þýsku, efna-
fræði, eðl is fræði, líf fræði,
jarðfræði og ensku. Ásamt
því fékk hún verð laun frá
Sparisjóðnum í Keflavík fyrir
frábæran árangur í íslensku,
tungumálum, raungreinum
og stærðfræði.
Blaðamaður Víkurfrétta vildi
fyrst og fremst vita hvernig
hún fór að þessu: „Skipulagn-
ing er stór hluti af þessu og
líka það að hafa metnað fyrir
því sem maður er að gera,“
sagði Jóna Marín. „Ég hef átt
mottó sem ég hef fylgt og það
er að setja mér markmið og
halda stefnunni þar til ég næ
þeim. Síðan þarf maður nátt-
úrulega að hafa áhuga fyrir
þessu og vilja að standa sig
vel,“ sagði Jóna Marín.
Hún tekur það fram að hún
sé ekki þessi týpa sem hangir
bara heima og læri því hún
stundar félagslíf á fullu og var
t.a.m. varaformaður Nemenda-
félagsins eftir áramót ásamt
því að hafa verið í útskriftarfé-
lagi skólans.
En hvað ætlar Jóna Marín
að gera í framhaldinu? „Ég
ætla að taka mér frí í eitt ár
og reyna að átta mig aðeins
á hlutunum, hver veit nema
ég fari erlendis. Hvað varðar
námið þá hef ég mest pælt í
læknisfræði, verkfræði eða
lyfjafræði,“ sagði Jóna Marín.
Sópaði að sér verðlaunum
Skóla slit haust ann ar og brautskráning Fjöl-brautaskóla Suðurnesja
fór fram laugardaginn 21. maí.
Að þessu sinni útskrifuðust
95 nemendur; 43 stúdentar,
5 meistarar, 12 iðnnemar, 9
sjúkraliðar og 5 af starfsbraut.
Þá útskrifuðust 9 af starfsnáms-
brautum, 17 af flugþjónustu-
braut og tveir skiptinemar.
Nokkr ir nem end ur braut-
skráðust af tveimur eða fleiri
námsbrautum. Konur voru 60
en karlar 35. Alls komu 68 úr
Reykjanesbæ, 8 úr Grindavík, 5
komu úr Sandgerði, 4 úr Garði
og og þrír úr Vogum. Nem-
endur úr sveitarfélögum utan
Suðurnesja voru sjö.
Við athöfnina voru veittar við-
urkenningar fyrir góðan náms-
árangur. Jóna Marín Ólafsdóttir
fékk gjöf frá Bókabúð Kefla-
víkur fyrir góðan árangur í raun-
greinum, frá Eddu-útgáfu fyrir
góðan árangur í íslensku og
frá Verkfræðistofu Suðurnesja
fyrir góðan árangur í stærð-
fræði. Jóna Marín fékk einnig
viðurkenningar frá skólanum
fyrir árangur sinn í líffræði og
jarðfræði, eðlis- og efnafræði,
ensku og þýsku. Gústav Adolf
Bergmann Sigurbjörnsson fékk
viðurkenningar fyrir góðan ár-
angur í raungreinum og mynd-
list.
Bjarki Már Elíasson fékk gjöf
frá Efnafræðifélaginu fyrir ár-
angur sinn í efnafræði og Ingi-
björg Dröfn Halldórsdóttir fékk
viðurkenningu frá IGS Flug-
þjónustu fyrir góðan árangur
á flugþjónustubraut. Þá fékk
Brynja Hafsteinsdóttir gjöf frá
skólanum fyrir árangur á sjúkra-
liðabraut og Elín Kjartansdóttir
fyrir árangur á flugþjónustu-
braut. Hulda Oddsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir árangur
í bókfærslu, Sidi Zaki Ramad-
han fyrir ensku, Þórdís Garðars-
dóttir fyrir félagsfræði, Sigrún
Lilja Jóhannesdóttir fyrir góðan
árangur í tungumálum og Mar-
inó Gunnarsson og Ólafía Braga-
dóttir fyrir árangur í íþróttum.
Nemendur á starfsbraut fengu
viðurkenningar fyrir sinn ár-
angur; Ásmundur Þórhallsson
fyrir tölvugreinar, Árni Jakob
Óskarsson fyrir íþróttir, Berglind
Daníelsdóttir fyrir íslensku, Kon-
ráð Ragnarsson fyrir stærðfræði
og Þormar Helgi Ingimarsson
fyrir myndlist. Þau Arnar Fells
Gunnarsson, Atli Már Gylfason,
Gústav Adolf Bergmann Sigur-
björnsson, Hildur Gunnars-
dóttir, Jóna Marín Ólafsdóttir,
Runólfur Þór Sanders og Sigrún
Lilja Jóhannesdóttir fengu öll
viðurkenningu fyrir störf í þágu
nemenda skólans. Einnig fengu
skiptinemarnir Mariam Elisa-
beth Hill og Martino Larocchia
gjöf frá skólanum til minningar
um veru sína á Íslandi og í skól-
anum.
Að venju veitti Sparisjóðurinn í
Keflavík nemendum skólans við-
urkenningar fyrir góðan námsár-
angur og afhenti Geirmundur
Kristinsson sparisjóðsstjóri þær
fyrir hönd Sparisjóðsins. Að
þessu sinni hlaut Jóna Marín
Ólafsdóttir viðurkenningu fyrir
hæstu einkunn á stúdentsprófi
og hún hlaut einnig viðurkenn-
ingar fyrir árangur sinn í stærð-
fræði og raungreinum, íslensku
og tungumálum. Þórdís Garð-
arsdóttir hlaut viðurkenningu
fyrir góðan árangur í samfélags-
greinum.
Jóna fór heim klyfjuð af
verðlaunum
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Iðnsveinafélag Suðurnesja, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og ná-
grennis og Fjölbrautaskóli Suðurnesja eru að
hefja átak þar sem hvetja á ófaglærða starfsmenn
í iðnaði til að mennta sig í iðngrein.
Forsaga verkefnisins er sú að MSS sótti um styrk
árið 2004 til Starfsmenntaráðs til að fara af stað
með hvatningarverkefni til hvetja þá sem eru ófag-
lærðir og starfa í iðnaði til að hefja nám og sækja
sér tilskilin réttindi.
Lilja Samúelsdóttir, verkefnisstjóri hjá MSS, sagði
í samtali við Víkurfréttir að þessa dagana stæði
yfir kynning á verkefninu fyrir þá sem starfa í
iðnaði. Skráningar eru þegar farnar að berast, en
námið á að byrja í haust.
„Átakið mun taka 3 annir, þ.e.a.s. frá ágúst 2005 -
desember 2007. Þegar því tímabili er lokið er gert
ráð fyrir að nemandinn geti nýtt sér Fjölbrauta-
skólann til að ljúka náminu og öðlast réttindin,”
sagði Lilja og bætti því við að fyrstu 3 annirnar
verður einungis kennt eftir hefðbundin vinnu-
tíma, þ.e.a.s. eftir kl.18. „Þegar þeim er lokið mun
kennslutíminn hins vegar verða bundin því formi
sem einstaklingurinn kýs, hvort sem dagskóli eða
öldungadeild verður fyrir valinu.”
Þó námskeiðið sé að upplagi hugsað fyrir ófag-
lærða iðnaðarmenn getur hver sem er skráð sig
til þátttöku. „Hver sem er getur hafið iðnnám, en
þeir sem hafa og eru að starfa í iðnaði hafa reynsl-
una og er markmiðið að reyna að meta hana inn
sem raunhæfni á viðkomandi sviði,” segir Lilja að
lokum og bætir því við að öllum sé velkomið að
skrá sig og hefja nám nk. haust.
Þeir sem hafa áhuga á að fræðast meira um verk-
efnið eða skrá sig er bent á að hafa samband við
Miðstöð símenntunar í síma 421 7500.
Iðnnám til framtíðar í Miðstöð símenntunar
Myndir/Oddgeir Karlsson