Víkurfréttir - 26.05.2005, Side 5
VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 26. MAÍ 2005 I 5
�������������������������� ���
��������� ���������������������
Myndir/Oddgeir Karlsson
Björgunarsveitin Sigur-von kom hollenska skip-inu Daphne til bjargar
er það varð vél ar vana rétt
utan við Garðskaga á sjötta
tímanum á laugardagskvöld.
Skipið var á leið frá Vestmanna-
eyjum norður fyrir Reykjanes
þegar drapst á vélunum og er
talið að loft hafi komið inn á
eldsneytisdæluna.
Áhöfnin, sem telur fimm menn,
var ekki í góðum málum þegar
björgin loks barst, en þá voru
innan við 2 mílur í land og
strekkingsvindur af norðri.
Slæmt var í sjóinn og rak bát-
inn, sem er á milli 100-150 tonn
að stærð, fyrir Garðsskaga og
var hann svo dreginn í land í
Sandgerðishöfn. Björgunarbát-
urinn Siggi Guðjóns kom taug
á skipið en Sæmundur GK tók
svo við og dró Daphne á leiðar-
enda. Hannes Þ. Hafstein, björg-
unarskip Sigurvonar, var nýkom-
inn úr slipp og ekki hæfur til
fararinnar.
Varðskipið Óðinn var kallað á
staðinn en þegar að kom reynd-
ist ekki þörf fyrir aðstoð, en Sæ-
mundur réði fyllilega við verk-
efnið.
Þrátt fyrir öldugang gekk bæri-
lega að komast til lands og
lögðu skipin að höfn í Sand-
gerði rétt fyrir kl 21.
Eftir að lögregla og Tollgæsla
höfðu lokið störf um sínum
náðu Víkurfréttir tali af skip-
stjóranum Toen Van Riel. Sagði
hann að þeir væru á hringferð
í kringum heiminn og hefðu
lagt upp frá belgísku borginni
Brugge ekki alls fyrir löngu.
Eft ir við komu á Skotlandi,
Orkneyjum og Færeyjum héldu
þeir til Íslands og komu við í
Vestmannaeyjum. Þaðan hugð-
ust þeir sigla fyrir Reykjanes
og koma við í Keflavík áður en
haldið yrði til Reykjavíkur.
Augljóslega setur þessi uppá-
koma strik í reikninginn, en Van
Riel sagði leiðina liggja til Græn-
lands um leið og viðgerðum
lyki.
Heimshornaflakkarar vélarvana við Garðskaga
Verkalýðs og sjómanna-félag Keflavíkur og ná-grennis og Ráðgjafar-
stofa um fjármál heimilanna
undirrituðu í gær 17. maí þjón-
ustusamning.
Samkvæmt samningnum munu
ráðgjafar frá Ráðgjafarstof-
unni fara árið 2005 á fyrirfram
ákveðnum dögum til Keflavíkur
og veita ráðgjöf. Þjónustan er
ókeypis og mun VSFK sjá um
að taka niður tímapantanir fyrir
ráðgjafa sem mun verða til við-
tals í Reykjanesbæ á fyrirfram
ákveðnum dögum og veita ráð-
gjöf á skrifstofu VSFK í Kefla-
vík.
Í tilkynningu frá VSFK segir
að Suðurnesjamenn geti nálg-
ast umsóknir og upplýsingar
um stofuna á skrifstofu félags-
ins að Hafnargötu 80 Keflavík.
Bókanir eru hafnar í síma 421-
5777 í fyrsta viðtalstíma hjá ráð-
gjafa sem verður miðvikudag-
inn 8. júní n.k. Einnig munu
starfsmenn Ráðgjafarstofu veita
fræðslu til starfsmanna VSFK og
annarra eftir nánara samkomu-
lagi. Meginmarkmið samn-
ingsins er að veita Suðurnesja-
mönnum sem eiga í verulegum
greiðsluerfiðleikum aukna end-
urgjaldslausa þjónustu.
Hlutverk Ráðgjafarstofu er eft-
irfarandi:
• Að veita einstaklingum og fjöl-
skyldum í verulegum greiðslu-
erfiðleikum og eru komin í þrot
með fjármál sín aðstoð við að
öðlast heildarsýn yfir fjármál sín
og leita leiða til lausnar.
• Að greina ástæður greiðslu-
vanda einstaklinga og gera til-
lögur til úrbóta.
• Að stuðla að samstarfi þeirra
sem vinna að málefnum þeirra
sem eiga í greiðsluerfiðleikum.
• Að veita umsækjendum hjálp
til sjálfshjálpar.
• Að vinna að fræðslustarfi fyrir
almenning um fjármál heimil-
anna í því augnamiði að draga
úr hættu á greiðsluerfiðleikum.
Er um að ræða upphaf samstarfs
til að auka þjónustu við þá sem
eiga lögheimili á Suðurnesjum
og eiga í greiðsluerfiðleikum.
Standa vonir til að þetta verði
Suðurnesjamönnum til heilla.
VSFK í samstarf við Ráðgjafastofu