Víkurfréttir - 26.05.2005, Síða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Grindvíska
fréttasíðan
�������
�������������������������
�������������������������
�������������������������������������������
��������������������������������������
�����������������������������
���������������
������������������������������������������������
��������������������������������������������������
�������������������������� ����������������������������
���������������������������������������
��������������������������� ��
���������������������������������������
Framkvæmda-
hugur í Grind-
víkingum
Gríðarmiklar fram-kvæmdir standa nú yfir í Grinda vík á
flestum sviðum. Það er nán-
ast sama hvert litið er, það er
annað hvort verið að grafa
skurði, reisa hús eða breyta
götum. Einnig eru miklar
framkvæmdir við Grinda-
víkurhöfn núna og dugar
ekkert minna en 2 dýpkunar-
fyrirtæki til að keyra verkin
áfram.
Dýpkunarfyrirtækið Sæþór
er nú að grafa innan hafnar
þar sem fyrirhugað er að setja
niður stálþil fyrir framan
Vísir hf. Pétur mikli sér um
að flytja allt efnið sem grafið
er upp út fyrir höfnina og
má hann hafa sig allan við
til að hafa undan. Rétt við
hliðina er svo Hagtak hf. að
sprengja og grafa fyrir stálþili
sem mun verða rekið niður
innan skamms og verður þá
hægt að hefjast handa við að
rífa gömlu bryggjuna. Mun
þá Fiskimjöl og lýsi fá nýja
bryggju undir sína starfsemi
fyrir landanir og útskipun.
Einnig verður meira dýpi
við viðlegukantinn þannig
að flest skip geta nú landað í
Grindavík.
Ós k a l ö g s j ó m a n n a , skemmtun og fjölda-söngur, verður á veit-
inga staðn um Salt hús inu í
Grindavík, kl. 21.00 þann 2.
júní eða fimmtudaginn fyrir
sjómannadaginn en að venju
verður nóg um að vera um sjó-
mannadagshelgina í bænum.
Grindvíkingurinn Rósa Signý
Baldursdóttir hefur séð um und-
irbúning Óskalaga sjómanna en
í byrjun var þetta hugarfóstur
hennar í skammdeginu. Auk
hennar er það tónlistarfólk í
Grindavík og næsta nágrenni
sem sér um flutninginn og þá
mun Árni Johnsen sjá um fjölda-
söng í lokin.
,,Ég hef lengi haft áhuga
á ýmsu sem tengist sjónum
eins og til dæmis hjátrú í sjó-
mennsku og svo datt mér þetta
í hug. Ég orðaði þetta við eig-
endur veitingastaðarins Salthúss-
ins og þeim leist strax vel á hug-
myndina svo ég ákvað að kýla á
þetta og vera ekkert að bíða eftir
að aðrir gerðu hlutina,” sagði
Rósa í samtali við Víkurfréttir.
Hún segir að á dagskánni séu
gömul og sígild sjómannalög
eins og Landleguvalsinn, Allt á
floti, Á sjó, Ship ohoj, Vertu sæl
mey og fleiri.
,,Dagskrá okkar byggist á
músikinni sem geymir rómantík-
ina svo vel og færir okkur aftur í
tímann, m.a. til töfra síldarár-
anna. Við flytjum líka vísur sem
líklega heyrast ekki svo oft eins
og Í verum eftir lífskúnstnerinn
Ása í Bæ. Vísur sem þessar eru
heimild um liðna tíð og lifnað-
arhætti og þær varðveita svo
mörg gömul íslensk orð.
Þegar okkar dagskrá er uppurin,
tekur alþýðusöngvarinn Árni
Johnsen með meiru að sér að
stjórna fjöldasöng með gestum
okk ar og vilj um við hvetja
fólk til að syngja sig inn í eina
skemmtilegustu helgi sumarsins
í Grindavík,” segir Rósa.
Eins og yfirskrift dagskrár-
inn ar, Óska lög sjó manna,
ber með sér, er hún tileinkuð
ís lenska sjó mann in um þar
sem sjó manna dag ur inn er
framundan. Rósa hvetur alla
til þess að mæta í Salthúsið sem
vilja taka þátt í að rifja upp róm-
antíkina og gleðina í gömlu
lögunum, sjómanninum og fjöl-
skyldum þeirra til heiðurs.
Auk Rósu eru það Grindvík-
ingarnir Dagbjartur Willards-
son, Inga Björk Runólfsdóttir
og Inga Þórðardóttir sem sjá
um söng og bakraddir. Hljóð-
færaleikararnir búa á höfuð-
borgarsvæðinu; Fróði Oddsson
gítarleikari, Björn Erlingsson
bassaleikari, Erlingur Einarsson
trommuleikari og Einar Friðgeir
Björnsson harmoníkuleikari.
En verða Óskalög sjómanna ár-
legur viðburður í tengslum við
sjómannadagshelgina?
,,Já, ég reikna fastlega með því
að við getum ekki hætt! Það
er búið að vera svo gaman hjá
okkur, góður andi um borð og
góður mannskapur eins og það
gerist best á sjónum,” sagði for-
maðurinn Rósa Signý Baldurs-
dóttir.
Tónlist sem geymir
rómantíkina svo vel
- segir Rósa Signý Baldursdóttir um Óskalög sjómanna,
skemmtun sem verður á veitingastaðnum Salthúsinu í
Grindavík fimmtudaginn fyrir sjómannadag.