Víkurfréttir - 26.05.2005, Síða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Verður í Reykjanesbæ fimmtudaginn
2. júní 2005 kl. 19.00
Hlaupið verður frá Sundmiðstöðinni við Sunnubraut.
Vegalengdir 3,5 km. og 7,0 km.
Upphitun á vegum Perlunnar kl. 18.45
á plani við Holtaskóla.
Skráning er í Perlunni frá 23. maí og
við Sundmiðstöðina 2. júní frá kl. 17.00.
Þátttökugjald er 500 krónur fyrir 14 ára og yngri en 1000
krónur fyrir 15 ára og eldri. Bolur er innifalinn í verði.
Allir sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarpening og frítt í
sund á eftir í Sundmiðstöðinni. Verðlaun og happdrætti.
Þökkum Íslandsbanka fyrir stuðninginn.
A
ð
st
o
ð
-
ljó
sr
itu
n
K E F L A V Í K
Í S L A N D S B A N K I
Lundinn flýgur um með síli í litríkum gogginum. Feitur og fallegur lax fettir
sig og brettir. Skarfurinn situr
á steini og teygir langan og fag-
urskapaðan hálsinn. Lifandi en
líflaus. Nú er veiðitímabilið að
hefjast og eflaust margir sem
hafa hug á að láta stoppa upp
fyrir sig bráðina.
Sveinbjörn Sigurðsson hefur feng-
ist við uppstoppun villtra dýra
í nokkur ár en hann lærði hand-
verkið í Bandaríkjunum hjá marg-
földum heimsmeistara í greininni,
Dan Rainehard. Hann ætlar að
opna gallerí að Starmóa 5, í Njarð-
vík, í haust. Víkurfréttir hittu
hann að máli og fræddust um list-
ina á bakvið uppstoppunina.
Stoppar upp verðlauna-
fiskinn
„Ég sérhæfi mig eingöngu í
fuglum og fiskum en ég hef einnig
stoppað upp refi, hreindýrshausa
og fleira. Langmesta vinnan fer í
að stoppa upp fiskana því roðið
er mjög viðkvæmt og málunin
og allur frágangur flókinn, en
þetta er hins vegar mjög gaman
og skemmtilegt starf,“ segir Svein-
björn. Mörg spennandi verkefni
eru framundan t.d. stærsti fiskur-
inn sem veiddur verður hjá Stang-
veiðifélagi Keflavíkur í sumar fær
fría uppstoppun í verðlaun.
Gömul dýr fá nýtt líf
Sveinbjörn leggur mikið upp úr
að hafa dýrin í náttúrulegu um-
hverfi og það er gaman að litast
um á verkstæðinu hans í Star-
móa 5 í Njarðvík. „Ég mála dýrin
með airbrush-tækni (málningu
sprautað á með lofti). Því sjást
engin penslaför og áferðin verður
mjög eðlileg. Ég hef líka feng-
ist talsvert við að gefa gömlum
dýrum nýtt líf. Þá þríf ég þau og
mála upp á nýtt með airbrush-
tækni. Svo set ég sérstakt efni í
augun á dýrunum þannig að þau
virðast blaut og meira lifandi.
Í dag eru efnin sem við notum
mjög góð.“
Meðhöndlun á bráðinni
þarf að vera rétt
„Það er orðið talsvert mikið um
að fólk komi á vinnustofuna og
biðji mig um að útvega dýr og
stoppa þau upp. Eftirspurnin er
alltaf að aukast. Ég hef í hyggju
að opna gallerí hér í haust en þá
getur fólk komið og keypt af mér
tilbúin uppstoppuð dýr, eða lagt
inn pantanir,“ segir Sveinbjörn og
bendir jafnframt á að ef fólk ætlar
að láta stoppa upp fyrir sig dýr
sem það veiðir sjálft, þá borgar
sig að hafa samband við hann á
undan til að fá upplýsingar um
hvernig á að ganga frá dýrinu.
„Frágangurinn skiptir miklu máli
ef útkoman á að verða góð.“
Þess má geta að Sveinbjörn mun
hefja framleiðslu á fluguhnýting-
arefni í haust, fyrir innlendan
og erlendan markað, en hingað
til hefur allt efni komið erlendis
frá. Fólki er velkomið að hafa
samband við Sveinbjörn í síma
693 2277 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið uppstopp-
un@internet.is
Náttúran í stofunni
Annað verk Sveinbjarnar: Toppandarmóðir ver
unga sinn frá ágangi smyrilsins.
Sveinbjörn
heldur hér á
mjög sjaldgæfum
fugli, Albinóa-
straumönd.
Ferðamálasamtök Suð-urnesja hafa fengið úthlutað úr Pokasjóði
3 milljónum króna til merk-
ingar gönguleiða og áhuga-
verðra staða á Reykjanesinu.
Kristján Pálsson formaður
Ferðamálasamtakanna sagði
þetta mikla viðurkenningu á
verkefninu og því starfi sem
gönguhópar og ferðaþjón-
ustuaðilar á Suðurnesjum
hafa verið að vinna á undan-
förnum árum. „Við metum
þennan styrk mikils og það
er greinilega litið á þetta sem
raunhæft verkefni þar sem
þetta er með hærri styrkjum,“
sagði Kristján.
Hann sagði ljóst að þessi
rausnar legi styrkur flýtti
verkefninu verulega en heild-
arkostnaður við það er áætl-
aður um 8 milljónir króna.
Gönguleiðanefnd FSS undir-
býr og sér um framkvæmd
verkefnis ins en nefndina
skipa fulltrúar frá öllum sveit-
arfélögunum á Suðurnesjum
auk sérfræðinga. Vonast er til
að verkinu í heild ljúki árið
2006.
Fá 3 milljónir úr
Pokasjóði
- Sveinbjörn Sigurðsson uppstoppari hyggst
opna gallerý í Reykjanesbæ.