Víkurfréttir - 16.06.2005, Side 29
VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 16. JÚNÍ 2005 I 29
Háskólasetur fær afhent húsnæði í Sandgerði:
Sandgerðisbær afhenti Háskóla-setri Suðurnesja húsnæði til notk-unar nú í vikunni. Húsið, sem
Sandgerðisbær gerði upp og innrétt-
aði, er hluti af Garðvegi 1 en það hýsir
einnig Rannsóknastöðina í Sandgerði,
Náttúrustofu Reykjaness og Fræða-
setrið. Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, afhenti
Páli Skúlasyni, rektor Háskóla Íslands,
lykilinn að nýja húsnæðinu en samstarf
á milli Háskólaseturs Suðurnesja og Há-
skóla Íslands hófst árið 1992.
Háskólasetrið, sem stofnað var í fyrra, er
vettvangur kennslu og rannsókna á Suð-
urnesjum en á vegum Háskólans hafa
einkum farið fram rannsóknir á áhrifum
mengandi efna á sjávarlífverur og verk-
efni tengd fisksjúkdómum.
„Við höfum stefnt að þessu Háskólasetri
lengi og lögðum mikið til svo þetta gæti
orðið að veruleika,” sagði Sigurður Valur.
Fyrr um daginn var haldin ársfundur
og málþing Stofnunnar fræðasetra Há-
skóla Íslands en þar var fjallað um svæð-
isbundnar áherslur í rannsóknum og
þróunarstarfi. Valgerður Sverrirsdóttir,
iðnaðarráðherra, ávarpaði fundinn en á
honum voru kynntar niðurstöður vinnu-
hópa um rannsóknartækifæri á Íslandi.
Brúðkaup:
atli@vf.is
Elsku Anna María og Ronnie.
Innilegar hamingjuóskir með
brúðkaupsdaginn 14. maí.
Ástarkveðjur, fjölskyldan.
Háskólasetur opnar í Sandgerði
Margt góðra gesta var í Sandgerði á þriðjudag, s.s. háskólarektor
og einnig Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, sem ávarpaði
samkomuna.