Víkurfréttir - 07.07.2005, Side 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
FRÉTTASÍMINN SÓLARHRINGSVAKT898 2222
Málefni hælisleitenda:
Það er allt svo frítt
þetta fimmtuga fólk.
MUNDI
Mundi
Tekið var á móti 56 einstaklingum í hælis-leit á árinu 2004, 38 körlum, 10 konum og 8 börnum. Kemur þetta fram í ár-
skýrslu fjölskyldu- og félagsþjónustunnar fyrir
síðasta ár.
Meðalaldur fullorðinna var um 27 ár. Börnin
voru á aldrinum 6 vikna til 8 ára. Eitt barn var
í grunnskóla í Reykjanesbæ, en dvalartími einstak-
linga og fjölskyldna var mjög misjafn eða frá sóla-
hring upp í níu mánuði.
Í febrúar 2004 skrifuðu Reykjanesbær og Útlend-
ingastofnun undir samning þess efnis að Fjöl-
skyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar skyldi
sjá um ummönnun við hælisleitendur á Íslandi á
meðan mál þeirra eru til afgreiðslu hjá íslenskum
stjórnvöldum.
Kemur það fram í skýrslunni að þessi málaflokkur
falli vel að störfum félagsþjónustunnar. Fjöl-
skyldu- og félagsþjónusta gerði sömuleiðis samn-
ing við gistiheimili í Reykjanesbæ um húsnæði og
fæði fyrir þá einstaklinga sem leita hælis á Íslandi.
Þeir sem leituðu hælis á árinu 2004 komu frá
ýmsum þjóðlöndum eins og: Angóla, Congó,
Eþíópíu, Mauritaníu, Nigeríu, Nýju-Guineu,
Sierra Leone, Súdan, Alsír, Búlgaríu, Armeníu,
Rússlandi, Hvíta Rússlandi, Rúmeníu, Moldavíu,
Albaníu, Tjetseníu, Afganistan, Irak, Íran, Ísrael,
Tadjikistan, Sri-Lanka og Víetnam.
Fæð ing ar deild Heil-brigðisstofnunar Suð-urnesja lokar ekki í
sumar. Deildin hefur alltaf
haft opið yfir sumartímann
að undanskildum tveimur
sumrum.
Þó mun deild in færa sig
nokkuð um set þetta árið og
fer yfir á D - deild frá og með
1. júlí til 15. ágúst. Er þessi
flutningur gerður til hægð-
arauka en fæðingardeildin
mun notast við sólskálann og
fjórar innstu stofurnar.
Þjónustan verður með sama
hætti og venjulega þrátt fyrir
þessa til færslu, jafnframt
helst símanúmer deildarinnar
óbreytt.
Þó mun þurfa að sækja ein-
hverja þjónustu til Reykja-
víkur þar sem skurðstofan
verður lokuð í sumar. Hægt
verður að koma til baka í
sængurlegu ef þess er óskað.
margret@vf.is
Aðgerðin fer fram í Sví-þjóð 1. ágúst næstkom-andi og mun hann fara
út nokkrum dögum fyrr, ásamt
foreldrum sínum og ömmu.
Undirbúningurinn fyrir kuð-
ungsígræðsluna er þegar haf-
inn og hef ur Óðinn farið í
margskonar rannsóknir hér á
landi sökum þessa.
Kuðungur verður græddur í
annað eyrað hans og er áætlað
að Óðinn Freyr og fjölskylda
verði úti í um viku. Ef allt
gengur að óskum mun hann
fara aftur til Svíþjóðar eftir sex
mánuði og þá yrði gerð sams-
konar aðgerð á hinu eyranu.
Leikskólinn Gefnarborg sem Óð-
inn Freyr er á, hélt meðal ann-
ars kökubasar og málverkasýn-
ingu fyrir nokkru, þar sem allur
ágóði rennur til styrktar honum
og fjölskyldu hans.
Fjáröflunin hefur gengið mjög
vel og þegar hafa safnast 350
þúsund krónur. En betur má ef
duga skal og reikningurinn er
því enn opinn, reikningsnúm-
erið er 1192- 05- 300522 og kt:
210103-2280.
Starfsfólk leikskólans vill koma
á framfæri þökkum til allra sem
lögðu söfnuninni lið og óskar
Óðni Frey góðs gengis í aðgerð-
inni.
margret@vf.is
Fæðingardeild
HSS opin í sumar
Reykjanesbær tók á móti 56
einstaklingum í hælisleit
ÓÐINN FREYR FER UTAN
Í AÐGERÐ EFTIR MÁNUÐ