Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.07.2005, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 07.07.2005, Qupperneq 13
VÍKURFRÉTTIR I 27. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 7. JÚLÍ 2005 I 13 ���������������������������� ���������������� safnsstjóri, hóf að safna gömlum munum, sem flestir tengdust sjó- sókn. Í kjölfar sýningar í Gerða- skóla í tilefni 120 ára afmælis skólans árið 1992 komst hreyf- ing á safnamálin og framhaldið þekkja flestir Garðmenn. Fengin voru útihús við Garðskagavita og þar var safninu komið fyrir. Það hefur síðan hlaðið utan á sig og í dag er safnið í glæsilegu sýningarhúsi. Það var Björn G. Björnsson, sýningahönnuður sem skipulagði sýninguna. Sjó- minjar, bátar og vélarnar eru í nýja sýningarsalnum, áhöld til landbúnaðar eru í gömlu hlöð- unni og ýmsar sérsýningar eru á efri hæð hlöðunnar. Þar er einnig fyrirhugað að koma upp mynda- og skjalasafni. Í gamla fjósinu er sýnt gamalt heimili; búr, eldhús og stofa. Eins og fyrr segir er byggða- safnið opið alla daga kl. 13- 17. Kaffiterían á Garðskaga, Útsýnis- og veitingastaðurinn Flösin, er hins vegar opin frá kl. 13-24 alla daga. Þar er hægt að fá keyptar léttar veitingar og njóta útsýnis yfir Faxaflóann. Síðustu daga hafa hvalavöður verið uppi í landsteinum og alla daga er fólk að sjá sjaldséða fugla á vappi í fjörunni. Hægt er að setjast niður inni á veit- ingastaðnum eða fara út á rúm- góðar svalir og njóta veitinga þar á fallegum degi. Næsta verk er að koma upp útsýnisskífu á svölunum og að bjóða fólki að- gang að sjónaukum. Þá hefur það einnig verið nefnt að setja upp ratsjá á Garðskaga og bjóða fólki þannig að fylgjast með skipaumferð. Á jarð hæð und ir veit inga- staðnum er síðan sýningarað- staða þar sem listafólki stendur til boða að setja upp listsýn- ingar. Sýningum verður skipt ört út, þannig að sem flestir lista- menn fái tækifæri til að sýna og selja list sína á Garðskaga. Þá gera menn sér vonir um að hægt sé að nýta aðstöðuna á Garðskaga fyrir minni fundi og veislur utan hins hefðbundna ferðamannatíma. Aðalverktakar að byggingu Byggðasafnsins á Garðskaga voru þeir Bragi Guðmundsson byggingaverktaki og Tryggvi Einarsson jarðvinnuverktaki. Kostnaður við byggingu safns- ins og frágangs á umhverfi á Garðskaga er um 100 milljónir króna. Garðmenn opna nýtt safnahús Guðni Ingimundarson klippir á borða við opnun safnsins og nýtur aðstoðar Ásgeirs Hjálmarssonar og Sigurðar Jónssonar. Guðni Ingimundarson var ánægður með nýja safnið á Garðskaga og gleðin skein úr andliti hans og tengdasonar hans, Ásgeirs Hjálmarssonar, safnsstjóra. Að neðan er Guðni með Tómasi Knútssyni, sem er að feta í fótspor Guðna og ekur um svæðið á GMC trukk með bómu í anda Guðna. Sigurður Guðjónsson úr Sandgerði skoðar sexæring með Engeyjarlagi á safninu á Garðskaga. Sexæringur með Engeyjarlagi sem prýðir safnið í Garði. Talið er að báturinn hafi verið byggður árið 1879. Þorvaldur Halldórsson, Valdi í Vörum, og Ellert Eiríksson fyrrum bæjarstjóri í Reykjanesbæ og sveitarstjóri í Garði við líkan af Gunnari Hámundarsyni GK sem gerður hefur verið út frá Garði í 51 ár. Útgerð Gunnars Hámundarsonar er sú elsta á Íslandi.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.