Víkurfréttir - 18.08.2005, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
KALLINN ER ORÐINN END-
URNÆRÐUR eftir langt og gott
frí á fjarlægum slóðum. Kallinn
tók sig upp ásamt frúnni og lagð-
ist í víking og fór í austurveg.
Asíulönd voru skoðuð í óhefð-
bundnu ferðalagi á eigin vegum.
Eitthvað sem yngra fólk gerir
mikið af en á alveg eins við fyrir
fólk eins og Kallinn sem er kom-
inn yfir miðjan aldur. Kallinn
hætti sér þó ekki langt út fyrir
hefðbundnar ferðamannaslóðir,
enda kominn af léttasta skeiði
og ekki maður til að lenda í ófyr-
irséðum ævintýrum. Traust gist-
ing og öruggur ferðamáti var
efst á blaði hjá Kallinum. Ferða-
lagið var allt skipulagt á Netinu,
þar sem Kallinn bókaði flug
og pantaði nær alla gistingu.
Kallinn mælir með svona ferða-
lögum, þar sem fólk fer á vit æv-
intýra með því að bóka ferðir og
gistingu á Netinu. Þannig má ná
kostnaði niður og spara miklar
upphæðir í stað þess að fara í
gegnum ferðaskrifstofur.
ÞAÐ ER ÁSTÆÐA TIL AÐ
ÓSKA Víkurfréttum til ham-
ingju með 25 ára afmælið en
um þessar mundir er aldar-
fjórðungur frá því blaðið hóf
göngu sína. Kallinn hefur fylgst
vel með blaðinu öll árin 25 og
reyndar lengur því Víkurfréttir
áttu sér forvera, Suðurnesjatíð-
indi. Kallinn er ánægður með
þá þróun sem orðið hefur á
blaðinu þennan aldarfjórðung.
Umhverfi blaðsins hefur einnig
breyst talsvert á þessum árum.
KALLINUM ER LJÓST það
hlutverk sem svæðisbundnir fjöl-
miðlar hafa. Þessir miðlar rita
söguna þegar hún gerist. Í hraða
þjóðfélagsins eins og það er nú
þá hlýtur hlutverk héraðsblað-
anna að breytast. Netið er að
taka við daglegum fréttaflutn-
ingi en vikublöðin munu örugg-
lega þróast út í það að verða
meiri afþreyingarblöð með við-
tölum og kannski stærri fréttum
svæðisins.
KALLINN ER SVO NÝKOM-
INN heim frá austurlöndum að
hann náði ekki að fara á Sand-
gerðisdaga, né Vogadaga. Hann
kíkti hins vegar á sólseturshátíð
á Garðskaga og fannst gaman að
koma þangað. Þarna eru sveitar-
félögin að þjappa saman sínu
fólki og lífga upp á mannlífið.
Það er í raun broslegt að fylgj-
ast með því hvað sveitarstjórn-
irnar sýna bæjarbúum sínum
óvenjumikinn áhuga nú síðustu
vikurnar og mánuði. Sandgerð-
ing ar í stóru mark aðsátaki
með bæinn sinn og samgöngur
milli Garðs og Reykjanesbæjar
í blóma, enda stutt til samein-
ingarkosninga. Hvað finnst les-
endum Kallsins um sameining-
armálin?
SEGJUM ÞETTA GOTT í bili og
heyrumst aftur að viku liðinni.
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is
Margrét Engilberts, sími 421 0004, margret@vf.is
Atli Már Gylfason, sími 421 0014, atli@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og www.vikurfrettir.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Ljósalagið með breyttu sniði:
Forkeppnin um Ljósalagið 2005 verð ur hald in á Stöð 2 í næstu viku. Búið
er að útsetja og taka upp þau
lög sem taka þátt í forkeppni
Ljósalagsins 2005. Alls er um
að ræða 5 lög sem valin voru
úr þeim 40 lögum sem bárust í
keppnina. Í forkeppninni verða
3 lög valin með símakosningu
til áframhaldandi þátttöku
og fer úrslitakeppnin fram á
Ljósanótt laugardaginn 3. sept-
ember.
„Þetta er ein besta keppnin
hing að til, með mjög fjöl-
brey tt um lög um, a l l t f rá
reggítónlist til popptónlistar.
Með forkeppninni á Stöð 2
getur fólk greitt sínu uppáhalds
lagi atkvæði sitt,” sagði Guð-
brandur Einarsson formaður
Ljósalagsnefndar 2005.
Hægt er að hlusta á sýnishorn af
lögunum á tonlist.is undir Nýtt
efni eða hlaða þeim niður gegn
greiðslu. Þeir sem eiga lög í for-
keppninni eru Elvar Gottskálks-
son, Kalli Bjarni, Halldór Guð-
jónsson og Sverrir Stormsker.
Forkeppni á Stöð 2
Hlutverk svæðismiðla breytist
- sjá vef Víkurfrétta, www.vf.is
Kallinn á kassanum
����������������������������
������������������������������������������
�������������������������������������������
�������
���������