Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.10.2005, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 06.10.2005, Qupperneq 1
�������������������������������� �������������������������� 40. tölublað • 26. árgangur Fimmtudaguri nn 6. október 2005 90,1% Suðurnesjamanna lesa Víkurfréttir vikulega AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222 Vikurfrettir_HEKLU_borði_fin2.FH11 Tue Apr 05 14:42:09 2005 Page 1 Composite C M Y CM MY CY CMY K Stofnfundur áhugafélags um flutning innanlandsflugs-ins til Keflavíkurflugvallar „með þjóðarsátt” verður haldinn á veitingahúsinu Ránni í Kefla- vík í kvöld. Fundurinn hefst kl. 20:00 og eru allir velkomnir. Áhugafélagið eru þverpólitísk samtök en í forsvari fyrir fé- lagið eru formenn þeirra flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Það eru þeir Ey- steinn Eyjólfsson, formaður Sam- fylkingarinnar í Reykjanesbæ, Eysteinn Jónsson, formaður full- trúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ og Viktor Borgar Kjartansson, formaður Full- trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ. Þá á Páll Ketils- son, ritstjóri Víkurfrétta, sæti í undirbúningsstjórn félagsins, en hann er fulltrúi óháðra. Því hefur verið lýst því yfir að mið- stöð innanlandsflugs verði að víkja fyrir annarri byggð í Vatnsmýr- inni í Reykjavík. Það blasir því við að nýr meirihluti í borginni og er þá nánast sama hverjir að honum standa, munu hafa það sem for- gangsverkefni sitt að hraða brott- flutningi miðstöðvar innanlands- flugs úr Vatnsmýrinni. Margar hugmyndir hafa komið fram um staðsetningu nýs flugvallar, en að mati áhugafélagsins og margra annarra er „Keflavíkurvalkostur- inn“ eina raunhæfa lausnin. Það er því afar mikilvægt að samgönguyf- irvöld móti sér sem fyrst raunhæfa stefnu í málinu sem snúi einkum að því að stytta ferðatíma frá Kefla- vík til Höfuðborgarsvæðisins. Það markmið samtakanna að skapa þjóðarsátt um „Keflavíkur- valkostinn“. Hann verður meðal annars umræðuefni á fundinum í kvöld, en aðstandendur hans lofa fróðlegum fundi og búast við fjöl- menni á Ránna í kvöld kl. 20. - sjá nánar í fylgiriti í miðopnu Víkurfrétta í dag! Áhugafélag um innanlandsflug til Keflavíkur stofnað í kvöld - stofnfundurinn á veitingahúsinu Ránni kl. 20 Innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar „með þjóðarsátt“

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.