Víkurfréttir - 15.12.2005, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Jolakort VF.ai 12/7/05 10:28:06 AM
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og www.vikurfrettir.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband
við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222
RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA
Vals
fimmtud
ags
Fyrir tveimur áratugum síðan hljómuðu auglýs-ingar í fjölmiðlum lands-
ins, þar sem almenningur var
hvattur til þess að kaupa ríkis-
skuldabréf. Tilgangurinn með
auglýsingunum var að vekja
almenning til umhugsunar
um aukinn lífeyrissparnað,
umfram lögboðin iðgjöld og
mótframlag atvinnurekanda.
Notað var dæmi um par,
sem hétu að mig minnir Þór
og Björg, sem keyptu ríkis-
skuldabréf fyrir fimm þúsund
krónur á mánuði og síðan var
reiknað út hversu mikið þau
ættu, þegar ellikerling legðist
yfir parið og almennar lífeyr-
isgreiðslur tækju við. ,,Eftir
fjörtíu ár eiga þau tuttugu
milljónir aukalega til ráðstöf-
unar!’’ Ég, eins og eflaust fleiri,
gleypti við þessari hugmynd
og keypti nokkur bréf. Þegar
síðan börnin urðu fleiri en upp-
hafleg áætlun gerði ráð fyrir,
varð ég að selja þessi bréf og
eyða sparnaðinum í bleiur og
aðrar nauðsynjavörur.
Ég geng hins vegar glaður til móts við ellina, svo lengi sem líf mitt og
heilsulán verður mér hliðhollt.
Nú er ég blessunarlega hálfn-
aður með verkefnið, ef mið
er tekið af áætluðum lífaldri
Íslendinga í síðustu manneld-
isrannsókn. Og meira að segja
farinn að spara aftur enda
búinn að venja púkana mína af
bleiunum. Í þetta skiptið ákvað
ég að leggja í séreignasjóð og
mótframlagið hef ég greitt með
góðri samvisku og án nokk-
urra málalenginga undanfarin
misseri. Atvinnurekandinn
hefur lagt fram sömu upphæð
eða heil tvö prósent af heildar-
tekjum en það kýs ég að kalla
,,meðlagið.’’ Saman leggjum
við síðan aurana inn á spari-
reikning hjá lífeyrissjóðnum,
sem ber fulla ábyrgð á því að
ávöxtunin verði í samræmi við
það sem eðlilegt getur talist.
Stundum í mínus en oftast í
plús. Og millurnar vaxa!
Þetta kallast víst í aug-lýsingum gærdagsins ,,að koma þér í sam-
band við mótframlagið þitt.’’
Skattmann ætlar að vísu að
skattleggja okkur þegar við
tökum aurana út eftir sextugt,
en mig grunar þó að Þorgerður
Katrín, forsætisráðherra fram-
tíðarinnar, verður eflaust búin
að fella þetta ákvæði niður um
það leyti sem ég næ ellismell-
inum. Enda dóttir Gunnars
Eyjólfssonar, bæjarlistamanns
í Keflavík, ættuðum af Klappar-
stígnum. Ég finn það á mér að
lífeyrisaldurinn verður einnig
kominn niður undir sextugt og
því verður það leikur einn að
stimpla sig út úr flugstöðinni
með alla þessa aura á bakinu.
Ég hlakka mikið til.
Nú er bara að ákveða sig hvar maður eyðir efri árunum á hnatt-
kúlunni. Ég er búinn að ákveða
að vera hálft árið í útlöndum
og hálft árið hérna heima. Nú
bíður mín að ákveða hvort
ég dvelji hjá ástkærum og
elskulegum bandaríkjaforseta
á Florida skaganum, með
appelsínur í annarri hendi
og pútter í hinni, eða dvelji í
Evrópu, annað hvort á Spáni
eða það sem heillar mig mest,
í fjallaþorpi á Ítalíu innan um
magamiklar ,,mömmu míur’’
og gargandi guðfeður. Nýjasta
nýtt er hins vegar að kaupa sér
fasteign í Tyrklandi eða Dubai
og því er úr vöndu að ráða. Ég
ætla að liggja á meltunni fram
yfir hátíðarnar og ákveða síðan
framtíðina, um leið og ég fæ yf-
irlitið frá lífeyrissjóðnum.
Mótframlagið þitt
Valur Ketilsson skrifar: