Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2005, Side 10

Víkurfréttir - 15.12.2005, Side 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Íbúum Voga fjölgar jafnt og þétt: Vatnsleysustrandarhreppur heiðraði á mánudag sinn þúsundasta íbúa, en það er hin mánaðargamla Alexandra Líf Ing- þórsdóttir. Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri, kom færandi hendi og afhenti foreldrum Alexöndru, þeim Rósu Sigurjónsdóttur og Ingþóri Guðmundssyni góðar gjafir, m.a. körfu með jólamat og drykk. Rósa og Ingþór fluttu til bæjarins úr Hafnarfirði í haust og segjast una sér afar vel í rólegheitunum í Vogum. Jóhanna sagði við þetta tækifæri að átakið Vogar færast í vöxt væri enn að skila fleiri og fleiri íbúum og nú væru hreppsyfirvöld búin að senda umsókn um bæjarréttindi. Þegar erindið fær afgreiðslu í félagsmálaráðuneyti mun bærinn hér eftir heita Sveitarfélagið Vogar. „Það væri óneitanlega góð jólagjöf ef ráðuneytið klárar okkar mál fyrir hátíðarnar,” sagði Jóhanna í samtali við Víkurfréttir. „Við búumst við að bæj- arbúum fjölgi enn frekar á næstu árum þannig að við munum halda áfram á sömu braut.” Jóhanna sveitarstjóri ásamt þeim Rósu og Ingþóri og börnum þeirra, Alexöndru Líf og Andra Má. 1000 Í VOGUM Verslunin Bling Bling hefur notið töluverða v in sælda hjá kven- mönn um hér á Suð ur nesj- unum, síðan hún opnaði fyrir ekki svo löngu. Verslunin selur skart, töskur og fleiri fylgihluti fyrir konur á öllum aldri og er staðsett á Brekkustíg í Njarð- vík, fyrir ofan Besta. ,,Fólk hefur tekið okkur rosa- lega vel og þetta hefur gengið vonum framar,” sagði Björk Þor- steinsdóttir, annar eigandi Bling Bling, en hún rekur búðina ásamt Eygló Jensdóttur. ,,Mér fannst vanta svona búð hérna á Suðurnesjunum, þar sem hægt er að fá flott og ódýrt skart. Allt skartið kemur frá Miami í Bandaríkjunum en töskurnar eru einnig þaðan og frá Flórída. Við reynum að hafa allt í mjög takmörkuðu magni, það eru í mesta lagi til tvær tegundir í hverjum lit af hverjum hlut. Svo er ég að fá nýjar vörur sendar, en þær verða líklega komnar á föstudaginn.” Björk segir konur á öllum aldri kíki í búðina, en einnig eitthvað af karlmönnum sem kaupa þá jólagjafir. ,,Það eina sem er slæmt er staðsetn- ingin, en búðin verður bara staðsett hér til áramóta, en þá ætlum við að reyna færa okkur á Hafnargötuna,” Á fimmtudaginn lengist opnun- artími Bling Bling, en þá verður opið til kl. 22, og einnig á föstu- dag og laugardag. Á sunnudag- inn verður svo opið til kl. 18. ,,Eina vandamálið er staðsetningin,“ segir Björk Þorsteinsdóttir meðeigandi. Bling Bling fær góðar viðtökur

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.