Víkurfréttir - 15.12.2005, Side 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum. Gersema þarf að gæta og á það einnig við um lifandi gersemar. Áróðurinn um útivistartímann á erindi til okkar nú sem
aldrei fyrr. Veruleikinn sem börnin
okkar búa við er ekki bara góður,
því miður eru margar dökkar hliðar
á honum líka. Mesta hættan sem að
börnum okkar stafar eru vímuefni af
öllum gerðum sem fljóta um allt, ekki
bara í Reykjanesbæ, heldur allstaðar.
Óprútnir sölumenn „dauðans” leyn-
ast víða, þeir eru þar sem unga fólkið
heldur sig og þá sérstaklega seint á
kvöldin. Ungt efnilegt fólk sem á alla
framtíðina fyrir sér fellur í hendur
þessa sölumanna, það afvegaleiðist og á kannski ekki svo bjarta
framtíð á eftir. Afleiðingar fíkniefnaneyslu geta verið skelfilegar,
þeim fylgir oft mikil sjálfseyðingarhvöt og ofbeldi. Ljótustu of-
beldisverk eru oftast framin undir áhrifum fíkniefna og það er
ekki bara fullorðið fólk sem fremur slíkt ofbeldi, það er líka unga
fólkið okkar sem hefur afvegaleiðst.
Foreldrar í Reykjanesbæ, ég vil hvetja okkur öll til að sofna ekki á
verðinum. Við verðum að vera í góðum tengslum við börnin okkar,
vita hverjir eru vinir þeirra og umfram allt ekki veita þeim frelsi sem
þau ráða ekki við. Frjáls útivist unglinga er þeim oft um megn og
það er í skjóli nætur sem myrkraverkin eru oftast framin. Verndum
gersemarnar okkar með ást, umhyggju og öruggum agaramma.
Útivistarreglurnar:
1. september til 1. maí
12 ára börn og yngri mega vera úti til kl. 20
13 - 16 ára börn mega vera úti til kl. 22
1. maí til 1. september
12 ára börn og yngri mega vera úti til kl. 22
13 - 16 ára börn mega vera úti til kl. 24
Hjördís Árnadóttir
foreldri og félagsmálastjóri í Reykjanesbæ
Foreldrar,
sofnum ekki
á verðinum
Ágætu foreldrar í Reykjanesbæ.
VVVVVVV
VVVVVVVVVVVVV
VVVVVVVVVVVVVVV
VVVVVVVVVVVVVVVVV