Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2005, Síða 26

Víkurfréttir - 15.12.2005, Síða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum. Gersema þarf að gæta og á það einnig við um lifandi gersemar. Áróðurinn um útivistartímann á erindi til okkar nú sem aldrei fyrr. Veruleikinn sem börnin okkar búa við er ekki bara góður, því miður eru margar dökkar hliðar á honum líka. Mesta hættan sem að börnum okkar stafar eru vímuefni af öllum gerðum sem fljóta um allt, ekki bara í Reykjanesbæ, heldur allstaðar. Óprútnir sölumenn „dauðans” leyn- ast víða, þeir eru þar sem unga fólkið heldur sig og þá sérstaklega seint á kvöldin. Ungt efnilegt fólk sem á alla framtíðina fyrir sér fellur í hendur þessa sölumanna, það afvegaleiðist og á kannski ekki svo bjarta framtíð á eftir. Afleiðingar fíkniefnaneyslu geta verið skelfilegar, þeim fylgir oft mikil sjálfseyðingarhvöt og ofbeldi. Ljótustu of- beldisverk eru oftast framin undir áhrifum fíkniefna og það er ekki bara fullorðið fólk sem fremur slíkt ofbeldi, það er líka unga fólkið okkar sem hefur afvegaleiðst. Foreldrar í Reykjanesbæ, ég vil hvetja okkur öll til að sofna ekki á verðinum. Við verðum að vera í góðum tengslum við börnin okkar, vita hverjir eru vinir þeirra og umfram allt ekki veita þeim frelsi sem þau ráða ekki við. Frjáls útivist unglinga er þeim oft um megn og það er í skjóli nætur sem myrkraverkin eru oftast framin. Verndum gersemarnar okkar með ást, umhyggju og öruggum agaramma. Útivistarreglurnar: 1. september til 1. maí 12 ára börn og yngri mega vera úti til kl. 20 13 - 16 ára börn mega vera úti til kl. 22 1. maí til 1. september 12 ára börn og yngri mega vera úti til kl. 22 13 - 16 ára börn mega vera úti til kl. 24 Hjördís Árnadóttir foreldri og félagsmálastjóri í Reykjanesbæ Foreldrar, sofnum ekki á verðinum Ágætu foreldrar í Reykjanesbæ. VVVVVVV VVVVVVVVVVVVV VVVVVVVVVVVVVVV VVVVVVVVVVVVVVVVV

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.