Víkurfréttir - 15.12.2005, Page 71
VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ • JÓLABLAÐ I I FIMMTUDAGURINN 15. DESEMBER 2005 I 71
Dagana 12. til 19. desem-ber munu kennarar, einn eða fleiri saman,
halda jólatónleika með sínum
nemendum. Tónleikastaðir eru
Listasafn Reykjanesbæjar, Ytri-
Njarðvíkurkirkja og salir skól-
ans á Austurgötu og Þórustíg.
Lúðrasveitir skólans, A, B og
C sveit, halda jólatónleika sína
fimmtudaginn 15. desember
n.k. kl. 19.30 í Kirkju lundi.
Stjórnendur eru Berglind Stef-
ánsdóttir, Áki Ásgeirsson, Helga
Björg Arnardóttir, Ingi Garðar
Erlendsson og Karen J. Sturlaugs-
son. Að venju, kennir ýmissa
grasa á efnisskrá tónleikanna,
jólatónlist í bland við aðra gæða
lúðrasveitatónlist.
Léttsveit skólans, yngri, heldur
jólatónleika sína sunnudaginn
18. desember n.k. kl. 19.30 í
Frumleikhúsinu. Stjórnandi er
Ingi Garðar Erlendsson. Efnis-
skrá tónleikanna er mjög fjöl-
breytt og lífleg, m.a. flottar út-
setningar á jólalögum.
Strengjasveitir skólans, A og B
sveit, halda jólatónleika síná
mánudaginn 19. desember n.k.
kl. 19.30 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Stjórnendur eru Aleksandra Pi-
tak og Dagmar Kunákóva. Efn-
isskráin er fjölbreytt og hátíðar-
stemmningin ríkjandi.
Aðgangur á alla þessa tónleika
er ókeypis og allir eru hjartan-
lega velkomnir.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar:
Jólatónleikar
Næsta blað á miðvikudaginn!