Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.12.2005, Page 10

Víkurfréttir - 29.12.2005, Page 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Nýárskveðja Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sendir Suðurnesjamönnum bestu nýársóskir með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Stjórnendur og starfsfólk HSS Nýlega opnaði Tölvuspít-alinn nýja verslun að Hafnargötu 6 þar sem Verslunin Bára hefur rekið um árabil „Mini mart“. Benedikt Kristbjörnsson hefur um nokkurt skeið starfrækt Tölvuspítalann í heimahúsi sínu og selt tölvur og tengdan búnað og rekið þar tölvuverkstæði. Benedikt notaði tækifærið núna þegar losnaði pláss í Bárunni og opnaði þar verslun með tölvur og heimilistæki. „Við verðum með sama verð og er í Reykjavík svo að enginn þarf að fara í bæinn eftir tölv- unni. Einnig bjóðum við upp á ýmis raftæki fyrir heimilið og tölvuleiki á besta verði,“ sagði Benni í Tölvuspítalanum þegar Víkurfréttir litu í heimsókn. Er nú enn minni ástæða fyrir fólk að fara til Reykjavíkur að versla þegar vöruúrvalið eykst í heima- byggðinni. Á dögunum færði Lions-klúbburinn í Grinda-vík formanni sóknar- nefndar Grindavíkurkirkju styrk að upphæð 1600 þ. kr. vegna orgelkaupa sem ráðist hefur verið í. Fram kom í máli Lionsmanna að ákveðið hefði verið að gefa sem næmi einni rödd í orgel- inu og er það 1 milljón og 600 þúsund kr. Ekki verður öll upp- hæðin afhent í einu lagi þar sem Lionsklúbburinn er ekki aflögu- fær um svo háa upphæð heldur munu meðlimir klúbbsins halda áfram að safna fé eins og þeir hafa ætíð gert. Stærsta fjáröflun Lions er kútt- magakvöld og svo eru þeir með ýmsar aðrar fjáraflanir í gangi. Um jólin hafa þeir verið í sam- starfi við jólasveinana og boðið fólki upp á að fá jóla pakka senda heim á aðfangadag. Stefanía Ólafsdóttir, formaður sóknarnefndar tók við styrknum og þakkaði fyrir höfðinglega gjöf. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lionsmenn færa kirkjunni gjöf því þeir gáfu fyrir tveimur árum hátalarakerfi sem nýtist við allar athafnir. Lions styrkir orgelkaup í Grindavíkurkirkju Ný verslun opnar í Grindavík með tölvur og heimilistæki MUNDI Styrkjum okkar fólk með flugeldakaupum um áramótin.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.