Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.12.2005, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 29.12.2005, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 52. TÖLUBLAÐ • ÁRAMÓTABLAÐ I FIMMTUDAGURINN 29. DESEMBER 2005 I 19 Sendi viðskiptavinum bestu nýárskveðjur með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Köfunarþjónusta Sigurðar Sími 899 6345 FRÉTTASÍMINN SÓLARHRINGSVAKT 898 2222 Garð ar Magn ús s on hefur að undanförnu þróað framleiðslu á harðfiski og nýjasta afurð hans eru harðfisk-skífur, alvöru ís- lenskt „snakk“. Hann mætti fyrir jól á leikskólann Gimli í Njarðvík og gaf þar börnunum hollt og gott harðfisk-snakk. Það kom síðan í hlut jólasvein- anna að færa börnunum harð- fiskflögurnar sem var pakkað í litla snotra poka. En aðeins um harðfisk-snakkið: Hver skífa er um 2 grömm og mjög svipuð dæmigerðu nasli eða snakki. Garðar notar ein- göngu þorsk eða ýsu og hefur hann þróað framleiðsluferli sem gerir honum kleift að útbúa góðan harðfisk í snakkformi. Garðar er með hreinan fisk í þessari framleiðslu og það eina sem hann bætir við er Reykja- nes-salt sem er mjög hollt. „Þetta er mjög hollt snakk og gott, gerist ekki miklu betra“, sagði Garðar. Þunnar harðfiskskífur - hollt og gott njarð- vískt snakk Gaf leikskól- anum harðfisk

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.