Víkurfréttir - 29.12.2005, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 52. TÖLUBLAÐ • ÁRAMÓTABLAÐ I FIMMTUDAGURINN 29. DESEMBER 2005 I 21
Ungur Grindvíkingur, Páll Guð munds son að nafni, náði þeim
frábæra árangri að útskrifast
úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja
með 9,2 í lokaeinkunn. Hann
var með hæstu meðaleinkunn
allra sem útskrifuðust úr FS
á haustönn sem leið og hlaut
fjölda verðlauna fyrir árangur
sinn í hinum ýmsu greinum.
Þess má auk þess geta að Páll
lauk námi sínu á þremur og
hálfu ári í stað fjögurra eins
og vant er.
Víkurfréttir tóku þennan unga
og efnilega mann tali, en hann
segir að þrátt fyrir góðan ár-
angur hafi námið ekki heltekið
hann. „Maður verður að leggja
eitthvað á sig til að ná góðum
árangri, en ég æfi fótbolta með
Grindavík og þar eru æfingar
fimm sinnum í viku á veturna
og það tók mikinn tíma frá skól-
anum.”
Páll segir aðspurður að hans
besta fag sé stærðfræði og hann
stefnir að því að hefja nám í
verkfræði næsta haust. Fram
að því ætlar hann hins vegar að
taka sér frí frá skólagöngunni og
mun starfa við byggingarvinnu.
Árangurinn og allar viðurkenn-
ingarnar sem féllu honum í
skaut á útskriftinni eru ekki á
færi hvers sem er, en Páll sagðist
ekki hafa stefnt sérstaklega að
því að dúxa. „Nei, það var ekki
fyrr en í síðustu prófunum sem
það fór að hvarfla að mér að
það gæti gerst, en það kom mér
engu að síður á óvart hversu
mörg verðlaun ég fékk. Fólk
sem þekkir mig getur staðfest
að ég er ekki þessi dæmigerði
dúx og ég er ekkert að stressa
mig á titlinum. Það er gaman að
þessu, en þetta er miklu meira
gaman fyrir foreldana og afa og
ömmur.”
DÚXINN MEÐ 9,2
Í LOKAEINKUNN
PÁLL GUÐMUNDSSON
útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Lj
ós
m
yn
d:
O
dd
ge
ir
Ka
rls
so
n Senn fer í hönd sá tími ársins þar sem margir setja sér ný markmið í formi ára-mótaheita. Eflaust kannast margir við það
að ætla að hætta að reykja en síðan líður enn
eitt árið án árangurs.
Í janúar mun Heilbrigðisstofnun Suðurnesja bjóða
upp á námskeið til að aðstoða fólk til að hætta að
reykja. Fyrirmynd námskeiðsins er sótt til Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur. Rannsóknir sýna að
stuðningur í formi námskeiðs eykur líkurnar á að
settu markmiði sé náð þ.e. að hætta að reykja.
Markviss meðferð í reykbindindi er hagkvæm
fyrir reykingamanninn sem og fjárhagslega hag-
kvæm fyrir samfélagið í heild sinni. Þess vegna
viljum við hvetja atvinnurekendur til að styðja
við sina starfsmenn sem vilja hætta að reykja.
Stuðningurinn gæti verið í formi beinnar greiðslu
fyrir kostnaði námskeiðs og/eða fríi úr vinnu til
að sækja það.
Námskeiðið stendur yfir í 5 vikur þar sem hópur-
inn hittist alls sex sinnum, í eina klukkustund í
senn.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Sigurður
Árnason læknir, Sigurður Þór Sigurðarson læknir,
Rósa Víkingsdóttir hjúkrunarfræðingur og Þór-
unn Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 422-
0533 eða með því að koma á dagdeild HSS alla
virka daga frá kl.8-16. Nýtt líf - án tóbaks!
Styðjum fólk til reykleysis - Til mikils er að vinna!