Víkurfréttir - 31.08.2006, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 31. ÁGÚST 2006 19STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
www.bluelagoon.is
Líf 2 fyrir 1 tilboðið gildir
dagana 31. ágúst til 15. september
gegn framvísun miðans.
2 fyrir 1
í Bláa lónið
Ly
ki
ll
nr
. 1
55
1
Tónleikahátíðin „Rockville“ er nú haldin í annað skipti
um Ljósanæturhelgina. Há-
tíðin fer fram frá fimmtudeg-
inum 31. ágúst til sunnudags-
ins 3. september. Í fyrra var
troðfullt á öllum kvöldum.
Ekki er búist við að það verði
annar háttur á núna enda dag-
skráin prýdd rjómanum af ís-
lenskum jaðar-rokkveitum.
Þar ber að nefna Reykjavík!,
Ælu, The Telepathetics og Koju
sem allar gáfu nýverið út plötu.
Einnig eru á listanum frábærar
rokkgrúbbur s.s Jan Mayen,
Benny´s Crespo Gang, Hellvar
og Tommygun. Listamennirnir
takmarkast þó ekki einungis
við rokk því á föstudaginn
kemur fram hip-hop sveit sem
nefnist Kafteinn Hafsteinn og
áhöfnin. Á laugardag, Ljósa-
nótt, mun dagskráin færast í
bakgarðinn á Paddy´s og kl.
18:00 koma þar fram sigur-
vegarar blúskeppni Rásar tvö;
Klassart og Fjallaskáldin en
einnig kemur fram blúsbandið
Síðasti Séns. Á meðan býður
vélhjólaklúbburinn Ernir upp
á súpu fyrir svanga gesti.
Óhætt er því að segja að Reykja-
nesbær breytist í Rokk-þorp
um Ljósanæturhelgina annað
árið í röð og rúsínan í pylsu-
endanum er frír aðgangur alla
dagana. Dagkráin er skipulögð
af Aftan-hópnum í samstarfi
við Paddy´s, Tuborg og XFM.
Dagskráin hljóðar þannig:
Fimmtudagur 31. ágúst
Kl. 21:00:
Benny´s Crespo Gang
The Telepathatics
Æla
Hraun
Föstudagur 1. september
Kl. 21:00
Kafteinn Hafsteinn og áhöfnin
Koja
Tommygun
Alkæti
Laugardagur 2. september
Ljósanótt
Kl. 18:00 í Paddy´s garðinum:
Vélhjólaklúbburinn Ernir
býður gestum upp á súpu.
Kl. 18:00 koma fram:
Síðasti Séns
Klassart
Fjallaskáldin
Kl. 00:00: Alkæti
Sunnudagur 3. september
Kl. 21:00
Hellvar
Lokbrá
Jan Mayen
Reykjavík
Rockville 2006 á Paddy´s
um Ljósanæturhelgina