Víkurfréttir - 31.08.2006, Blaðsíða 27
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 31. ÁGÚST 2006 27STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Ro g e r C r o f t s h e f u r k o m i ð t i l Ís l a n d s fimmt án sinn um og
er því sannkallaður Íslands-
vinur. Roger starfar á vett-
vangi alþjóðlegu náttúruvernd-
arsamtakanna (IUCN) og er
formaður sérfræðinefndnar
um friðun og verndarsvæði í
Evrópu. Í heimsókn sinni til Ís-
lands á dögunum kynnti Roger
sér hugmyndir Landverndar
um Reykjanesskagann sem eld-
fjallagarð og fólkvang. Roger
hefur áður komið að vernd-
unar málum á Íslandi þar sem
hann vann ásamt Landvernd
o.fl. að stofnun Vatnajökuls-
þjóðgarðs.
Í viðtali við Víkurfréttir sagði
Roger að í ljósi þess að skaginn
hefði jarðfræðilega sérstöðu á
heimsvísu væru hér gríðarleg
tækifæri fyrir hugmyndir af
þessu tagi. Á skaganum eru
margar gerðir eldfjalla og fjöld-
inn allur af áhugaverðum jarð-
myndunum, s.s. hellum, gíga-
röðum og hrauntröðum auk
móbergshryggjanna sem setja
svip sinn á svæðið. Roger sagði
að í eldfjallagarðinum þurfi að
vera svigrúm fyrir allar gerðir
ferðamanna, þ.e.a.s. þjónustu-
sinnaðra ferðamanna, sem sækj-
ast eftir stöðum eins og Bláa lón-
inu, sem og ferðamanna sem
kjósa að ferðast um í lítt snort-
inni náttúru og vilja upplifa eld-
fjöllin, hverina og jarðmyndan-
irnar í sinni náttúrulegu mynd.
Til þess að íbúar svæðisins og
ferðamenn sem um svæðið fara
geti notið jarðfræðinnar og eld-
fjallanna til hins ýtrasta sagði
Roger að í eldfjallagarðinum
þurfi að miðla upplýsingunum
með einföldum hætti á máli sem
allir geta skilið og sveipa þannig
hulunni af leyndardómum jarð-
fræðinnar á Reykjanesskaga.
Roger Crofts
skoðar eld-
fjallagarðinn
Roger Crofts ásamt Bergi Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Landverndar