Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.09.2006, Page 20

Víkurfréttir - 07.09.2006, Page 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR ný tækifæri – nýr lífsstíll www.nesvellir.is sími 414 6400 Almennur kynningarfundur í safnaðarheimilinu Kirkjulundi við Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 7. september kl. 19:30. Allir velkomnir – Kaffi og léttar veitingar Ný hugsun og spennandi íbúðakostur í hverfi fyrir eldri íbúa í hjarta Reykjanesbæjar Fyrstu íbúðir verða afhentar í júlí 2007 Víkurfréttir 122x200 mm Um 200 gestir voru við-staddir opnun nýrrar Blue Lagoon verslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í versluninni er hægt að festa kaup á Blue Lagoon húðvörum og þá er þetta fyrsta spa þjón- ustan sem er í boði í flugstöð- inni en spa svæði er að finna í mörgum helstu flugstöðvum heims. Orkumeðferðir fyrir hendur og fætur eru í boði á spa svæði versl- unarinnar. Meðferðirnar byggja á hreinum Blue Lagoon jarðsjó og Blue Lagoon húðvörum. Þær hreinsa og næra húðina og veita vellíðan og slökun. Anna G. Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri Bláa Lónsins hf., segir opnun verslunarinnar vera ánægjulegt skref fyrir Bláa Lónið hf. „Í starfsemi okkar leggjum við áherslu á nýsköpun og þróun. Verslunin og spa með- ferðir í flugstöðinni er þjónusta sem okkur þykir sérstaklega ánægjulegt að geta veitt bæði ís- lenskum og erlendum farþegum sem eiga leið um flugstöðina.“ Hönnun verslunarinnar er í höndum ítalska hönnunarfyrir- tækisins Design Group Italia. Í veggjum verslunarinnar rennur vatn sem er táknrænt fyrir Bláa lónið. Á laugardaginn stendur Rauði kross Ís lands f y r ir lands s öfn un undir kjörorðunum ,,Göngum til góðs“. Þúsundir sjálfboða- liða munu ganga í öll hús á landinu og safna framlögum. Söfnunin er tileinkuð börnum í sunnanverðri Afríku sem eiga um sárt að binda vegna al- næmis. Söfnunarfé verður nýtt óskert til að bæta líf þeirra. Hvert skref sem tekið er til að leggja þessu málefni lið skiptir máli, og viljum við því biðja Suðurnesjamenn að ganga með okkur til góðs á söfnun- ardaginn. Skráning er hafin á sudredcross@sudredcross.is eða í síma 420-4700 og 865- 1346. Rauði kross Íslands Suðurnesjadeild Landssöfnun RKÍ 9. september 2006 Nú er tækifærið fyrir söngfugla: Nýstofnaður Gospelkór Suð ur nesja hef ur aftur starfsemi sína af fullum krafti næstkomandi miðvikudag þann 13. ágúst og æfir sem fyrr í Akurskóla kl. 20:00 á miðvikudagskvöldum. Kórinn hefur fest sig í sessi á þeim fáu mánuðum sem hann hefur starfað og hefur komið víða fram í Reykja nes bæ, jafnt í kirkjum, hátíðarsam- komum og einkasamkvæmum. Framundan eru spennandi verk- efni, tónleikar og fleira. Kórinn getur bætt við sig einhverjum röddum en vantar aðallega fleiri karlaraddir. Stofnandi og stjórn- andi kórsins Elín Halldórsdóttir er nýkomin frá Þýskalandi þar sem hún raddþjálfaði 6 þekkta gospelkóra meðal annars verð- launa kór inn Gospel ster ne, sem var kosinn besti gospelkór Þýskalands á Gospel-Awards há- tíðinni 2006 og er undir stjórn Eric Bond. Elín kom einnig fram sem einsöngvari á Regens- burger-Gospelfestival-hátíðinni í Dreieinigskeitkirkjunni þar sem 1000 manns hlýddu á söng hennar og var hún hyllt í lokaat- höfninni fyrir aðkomu sína að hátíðinni. Stjórnandinn er því fullur af ferskum Gospel-anda frá Þýskalandi! Það er öflug félagsstarfsemi í kringum kór- meðlimi og ríkir andi gleðinnar og kærleikans í starfsemi hans! Þeir sem hafa áhuga á að syngja með eða vilja kynna sér starf- semi kórsins frekar geta haft samband við Elínu í síma 663 7563 eða bara mætt á æfingu næsta miðvikudag kl. 20:00 í Akurskóla. Nýir meðlimir eru hjartanlega velkomnir. Gospelkórinn hefur vetrarstarf sitt Opna verslun og Spa svæði í Leifsstöð Anna Sverrisdóttir framkvæmdastjóri Bláa Lónsins t.h., Grímur Sæ- mundsen forstjóri Bláa Lónsin f.m. og Emma Hanna Einarsdóttir versl- unarstjóri t.v. við opnun Blue Lagoon verslunarinnar í Leifsstöð. Bláa lónið:

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.