Víkurfréttir - 19.10.2006, Qupperneq 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 42. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla:
Dagleg stafræn útgáfa:
Skrifstofa Víkurfrétta:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 421 0004, jbo@vf.is
Ellert Grétarsson, sími 421 0014, elg@vf.is
Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is
Hanna Björg Konráðsdóttir, sími 421 0001, hannabjorg@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Magnús Geir Gíslason, s: 421 0005, magnus@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is
Þóra Kristín Sveinsdóttir, s: 421 0011, thora@vf.is
Ragnheiður Kristjánsdóttir, s: 421 0005, ragnheidur@vf.is
OPM
www.vf.is, www.vikurfrettir.is og kylfingur.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint
samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN ER Í SÍMA 898 2222.
Nýtt met hefur verið slegið í útgáfu bygg-ingaleyfa hjá Reykjanesbæ en alls hafa 133 leyfi fyrir nýjar íbúðir verið gefin
út í þessum mánuði sem er margfalt á við það
sem áður hefur þekkst hjá bæjarfélaginu. Þetta
kom fram á Skipulagsþingi Umhverfis- og skipu-
lagssviðs Reykjanesbæjar sem fram fór í síðustu
viku.
Í sama mánuði í fyrra voru útgefin byggingaleyfi
12 talsins. Þau voru flest 98 allan desembermánuð
á síðasta ári og sömu sögu er að segja í maí sama
ár þegar þau voru einnig 98 en það eru mestu
topparnir sem verið hafa í útgáfu byggingaleyfa
á milli mánaða. Þessi toppur núna, 133 leyfi á
hálfum mánuði, er því met eins og áður segir.
Það sem af er þessu ári eru útgefin byggingaleyfi
orðin 467 en voru 486 allt árið í fyrra þannig að
reikna má með að heildarfjöldinn verði jafnvel
meiri í ár.
Nýtt met í útgáfu byggingaleyfa
Frá Skipulagsþingi í Reykjanesbæ:
Skiltið var ekkert grín!
Í síð asta blaði sögð um við frá því að einhverjir glettnir gárungar hefðu
tek ið sig til og bætt tölu-
stafnum einum á skiltið sem
sést hér á myndinni, margir
kannast við og finna má í
Innri-Njarðvík.
Gátum við okkur þess til að
viðkomandi væri með þessu að
gefa í skyn að hátt í eitt þúsund
íbúðir væru mannlausar á Kefla-
víkurflugvelli eftir að herinn fór.
Fannst okkur það áðdáunarvert
hvað viðkomandi hafði nostrað
við að koma tölustafnum fyrir
á snyrtilegan hátt og meira að
segja látið skera út fyrir sig lím-
staf til verksins.
Í ljós hefur komið að hér var ekk-
ert grín á ferðinni heldur stóðu
bæjaryfirvöld sjálf fyrir því að
tölustafnum var bætt við. Á
skipulagsþingi Reykjanesbæjar
fyrir helgi kom fram í setning-
arræðu Steinþórs Jónssonar, for-
manns USK, að um 1800 íbúðir
væru í byggingu í Reykjanesbæ
ef allt er tekið saman og miðað
við öll byggingarstig.
Segja má að fréttamenn VF hafi
verið „teknir“ í þetta skiptið en
það er þó huggun harmi gegn
að við vorum ekki þeir einu, því
all margir hringdu til okkar með
ábendingu um breytinguna á
skiltinu góða.
Víkurfréttamenn „teknir“:
Frá Skipulagsþinginu í Reykjanesbæ. VF-mynd: elg