Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.2006, Side 14

Víkurfréttir - 21.12.2006, Side 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ - JÓLABLAÐ II I 27. ÁRGANGUR Reykjanesvirkjun var formlega tekin í notkun með viðhöfn á föstudag að viðtöddum fjölda gesta. Hún er stærsta verkefnið sem Hitaveita Suður- nesja hefur ráðist í en heildarkostanaður við hana er um 13,5 milljarðar og fram- leiðir hún 100 MW af rafmagni. Tvær hverfilsamstæður virkjunarinnar fram- leiða hvor um sig 50 MW og fer nær öll raforkuframleiðslan til álvers Norðuráls í Hvalfirði. Hverfilsamstæðurnar eru fram- leiðddar af japanska fyrirtækinu Fuji Elect- ric. Afhending orku hófst seinnihluta í maí, aðeins síðar en áætlað var, vegna tafa við uppstart virkjunarinnar. Að öðru leiti hafa fyrstu mánuðir framleiðsl- unnar gengið vel ef frá er talin bilun sem kom upp í haust í annarri hverfilsamstæð- unni vegna vegna framleiðslugalla. Hita veita Suð ur nesja und ir rit aði í sumar samninga við fyrirtækið JANVS International Ltd. vegna uppsetningar á sýn- ingunni Orkuverið Jörð sem fyrirhugað er að setja upp í Reykjanesvirkjun. Áætlaður kostnaður vegna hennar er um 125 millj- ónir en reiknað er með að sýningin muni hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Hitaveita Suðurnesja hefur ákveðið að draga til baka um- sókn sína um rannsóknar- leyfi í Brennisteinsfjöllum en nokk urr ar and stöðu hefur gætt vegna þessa á meðal þeirra sem láta sig um hverf is vernd varða. Stjórn Hitaveitu Suður- nesja samþykkti á stjórn- arfundi nú í nóvember að hafa forystu um viðræður þess efnis að þau orkufyrir- tæki sem eiga umsóknir um rannsóknarleyfi dragi þær til baka. Hita veita Suð ur nesja og Orkuveita Reykjavíkur eiga sameiginlega umsókn og Landsvirkjun aðra. Hefur stjórn HS sent hinum orku- fyrirtækjunum formlegt er- indi þess efnis að umsókn- irnar verði dregnar til baka og er niðurstöðu að vænta á næstunni. Þetta kom fram í ræðu Ellerts Eiríkssonar, stjórnarformanns HS, við formlega vígslu Reykjanes- virkjunnar á föstudaginn. Í máli Ellerts kom einnig fram að í síðustu viku barst HS heimild frá iðnaðarráðu- neytinu til rannsókna á há- hitasvæðinu í Krísuvík. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja hf., segir erfitt að sætta sig við hið þéttriðna net laga og reglugerða sem gilda um um- hverfismál, svo ekki sé minnst á geðþótta túlkun viðkom- andi aðila á þessum lögum og reglugerðum. Júlíus segir að búið væri að kæra stjórnvöld fyrir of litla möskvastærð ef um væri að ræða sjávarútveg. Þetta kom fram í máli Júlíusar í ræðu sem hann flutti við formlega opnun Reykjanes- virkjunnar á föstudaginn. Júlíus segir að erfiðleikarnir hafi byrjað strax við upphaf rannsókna á svæðinu árið 1997, vegna krafna frá „reglubákn- inu“, eins og hann kallar það. Hann segir afleiðingar þess að allt þurfi að teikna fyrirfram, áður en margvíslegra og nauð- synlegra upplýsinga sé aflað, að margvíslegar breytingar verði óhjákvæmlegar á hönnunar- og jafnvel byggingarstigi. „Þær geta verið mis umfangs- miklar og HS hf lenti m.a. í því í miðju verki að fá úrskurð um að ákveðnar breytingar þyrftu að fara í formlegt mat á umhverfisá- hrifum, sem var óframkvæman- legt vegna óheyrilega langs tíma sem allur sá ferill tekur. Þá hafa menn einnig misst tölu á auglýs- ingum á breyttu deiliskipulagi o.fl,“ sagði Júlíus. „Skipulagsstofnun og síðan um- hverfisráðherra úrskurðuðu eftir kæru að sú framkvæmd að grafa kælisjávarlögn frá sjó- tökusvæðinu niður við sjó beint til orkuversins gæti haft svo al- varlegar afleiðingar fyrir lands- lagsheild svæðisins að ekki væri unnt að leyfa það án formlegs mats á umhverfisáhrifum. Þar sem slíkt mat tekur a.m.k. ár var það út úr myndinni og því varð að taka krók á lögnina suður fyrir gíg sem þarna er. Þessi ákvörðun hafði í för með sér yfir 100 m.kr. viðbótarkostnað þannig að ég bið ykkur að njóta vel þessarar 100 m.kr. landslags- heildar þegar þið eigið leið hér um svæðið í björtu,“ sagði Júlíus ennfremur í ræðu sinni. Júlíus gat þess að HS legði mikla áherslu á að virkjunin kæmi til með að mynda grunn nýs auð- lindagarðs í anda orkuversins í Svartsengi, án tillits til allra laga og reglugerða. Fyrirtækið geri sér grein fyrir að virkjun sem þessi verði ekki byggð án þess að skilja eftir sig spor en lögð væri áhersla á að þau yrðu sem minnst, sem snyrtilegast gengið frá öllu og að möguleikar til þess sem kalla mætti mótvæg- isaðgerðir yrðu nýttar eftir því sem kostur yrði. REYKJANESVIRKJUN FORMLEGA TEKIN Í NOTKUN Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, Sigríður Jóna Jóhannesdóttir og Þorsteinn Erlingsson, skála í saki fyrir nýrri Reykjanesvirkjun. - Búið væri að kæra stjórnvöld fyrir of litla möskvastærð ef um væri að ræða sjávarútveg, segir Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja hf. Hitaveituforstjóri gagnrýnir „reglubáknið“ Hætt verði við rannsóknir í Brennisteins- fjöllum Júlíus Jónsson, forstjóri HS, og fulltrúi frá Fuji El- ectric brutu lokið á trétunnunni sam- kvæmt japönskum sið og skenktu gestum saki í litlum tréöskjum sem gefnar voru gestum til minningar. Forsetar bæjarstjórna í Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ ræsa virkjunina.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.