Víkurfréttir - 21.12.2006, Blaðsíða 34
34 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ - JÓLABLAÐ II I 27. ÁRGANGUR
Kaldalónsklúbburinn í Grindavík stendur fyrir tón leik um í Kvennó
29. og 30. desember n.k. með
þeim hjónum Valdimar Hilm-
arssyni baritón og Alexöndru
Rigazzi-Tarling mezzosópran.
Koma þau beint frá Ítalíu þar
sem sjálfur Kristján Jóhanns-
son hefur verið með master
klass námskeið og hafa þau
notið leiðsagnar hans undan-
farnar vikur.
Valdimar Hilmarsson er fæddur
16 janúar 1976. Foreldrar Valdi-
mars eru Hilm ar Helga son
skipsstjóri á Hrafni Sveinbjarn-
arsyni GK 265 og Ragna Valdi-
marsdóttir. Valdimar byrjaði
sinn tónlistarferil í rokkhljóm-
sveit og hélt svo áfram í Mennta-
skólanum við Sund þar sem
hann tók þátt í söngleikjum
og útskrifaðist þaðan af tónlist-
arbraut. Valdimar stundaði
nám við Nýja tónlistarskólann
og lauk þar prófi 1999. Þaðan
lá leiðin til London þar sem
hann innritaðist í Guildhall
School of music. Árið 2003 út-
skrifaðist hann með meistara-
gráðu úr óperudeild. Valdimar
hefur stundað nám við Mozart
háskólann í Salzburg í Austur-
ríki síðan árið 2004. Valdimar
hefur haldið tónleika á Íslandi,
Englandi, Ítalíu og Austurríki.
Hann hefur einnig sungið á
skemmtiferðaskipum sem sigla
um Persaflóa og Indlandshaf.
Al ex andra Rig azzi-Tar l ing
Fæddist 1977 á Englandi. Hún
Stundaði nám við Guildhall
School of Music and Drama í
London þar sem hún kláraði
Meistaragráðu í tónlist ásamt
því að útskrifast úr óperudeild
árið 2003. Eftir útskrift söng
Alexandra eitt tímabil með
Glyndbourne óperukórnum
í Englandi og hélt svo þaðan
til Sviss þar sem hún var í eitt
ár samningsbundin við óperu-
stúdíó óperuhússinns í Zurich.
Al ex andra hef ur sung ið
óratoríur í Royal Albert hall
og St.John´s, Smith Square í
London ásamt fjölda tónleika-
húsa í evrópu.
Blaðamaður Víkurfrétta ákvað
að slá á þráðinn til Valdimars
og heyra í þeim hljóðið.
Hvern ig hef ur geng ið hjá
ykkur síðan þið voruð á Ís-
landi síðastliðið sumar?
Það hefur gengið alveg ljóm-
andi vel, við vorum með nokkra
tónleika á ítalíu í lok sumars og
gengu þeir mjög vel.
Hvar dveljið þið núna?
Núna erum við að flytja okkur
um set frá Abruzzo héraði á
Ítalíu þar sem við höfum búið
undanfarin 2 ár, til Lago di
Garda sem er á norður Ítalíu
og kannski meira í miðju óperu-
heimsins hérna og jú þar sem
Kristján Jóhannsson býr.
Hvernig kom til að þið komust
að hjá Kristjáni Jóhanssyni ?
Ég hef lengi verið á leið til að
syngja fyrir kappan, hafði heyrt
að hann væri duglegur að koma
fólki áfram ef honum finndist
tilefni til. Þannig að ég kom
við í byrjun nóvember á leið
frá Austurríki og það gekk svo
vel að ég er búinn að vera hjá
honum meira og minna síðan.
Hvað er það sem Kristján er
helst að kenna ykkur ?
Kristján kennir hinn svokallaða
ítalska bel canto sem ég kannski
fer ekki að útskýra frekar hér.
Er Kristján harður kennari,
hvernig er að vera hjá honum?
Harður er hann og mjög ná-
kvæmur að maður geri hlutina
rétt, ekki bara næstum því rétt,
og að maður sendi aldrei frá sér
óvandað hljóð.
Mun það greiða götu ykkar
að vera hjá Kristjáni varðandi
framtíðina, hefur Kristján
sambönd sem nýtast ykkur?
Jú vissulega greiðir það götu
okkar að hafa hann í okkar
horni, og er hann nú þegar
byrjaður að kynna okkur fyrir
umboðsmönnum og tónleika-
höldurum.
Hvernig verður söngdagskráin
hjá ykkur, verða þetta jólatón-
leikar, verða kannski íslensk
lög ?
Sitt lítið af hverju, það verða ís-
lensk lög, jólalög og óperuverk.
Þið verðið með enskan píanó-
leikara með ykkur.
Siobhain O´Higgins stundaði
einnig nám í Guildhall School
of music and Drama og vinnur
nú sem “Coach“ Raddþjálfari
og meðleikari í London og víða
um England
Hvað tekur við eftir þessa tón-
leika, verða fleyri tónleikar á
Íslandi eða farið þið fljótlega
út aftur og þá hvert ?
Í janúar er Alexandra að syngja
á tónleikum í Verona á Ítalíu á
vegum Kristjáns Jóhannssonar
þar sem hún syngur fyrir óp-
eruklúbbinn í Verona og um-
bosðsmenn. Svo erum við bæði
að syngja fyrir umboðsmenn
á nýja árinu. Annars eru mörg
járn í eldinum og margt að ger-
ast á komandi ári.
Eins og áður segir er það Kalda-
lónsklúbburinn sem hefur veg
og vanda að tónleikunum en
hann var stofnaður til að styðja
við knattspyrnudeild UMFG og
einnig til að halda nafni Kalda-
lóns á lofti. Er það meðal ann-
ars gert með því að efna til ým-
issa tónleika. Tónleikar Kalda-
lónsklúbbsins að þessu sinni
eru til styrktar þeim hjónum.
Kaldalónsklúbburinn í Grindavík með tónleika milli jóla og nýárs:
Njóta leiðsagnar Kristjáns Jóhannssonar
Viðtal: Þorsteinn Gunnar Kristjánsson.
Myndir: Þorsteinn Gunnar og úr einkasafni